Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 Helgarblað I>V Þúfa sem fellt hefur marga: Undir stækkunargleri Ríkisendurskoðunar Skýrsla Ríkisendurskoðunar hef- ur oft verið upphafið að endalokun- um hjá stjómendum ríkisfyrirtækja eða stofnana sem verða uppvísir að hvers kyns vafasömum bókhalds- brellum. Ekki er það þó Ríkisendur- skoðun sem úrskurðar endanlega um hvort stjórnandinn sé hæfur til að sinna starfinu. Samkvæmt lögum getur ráðherra málaflokksins tekið ákvörðun um þaö hvort starfsmannin- um sé enn stætt á því að vera i starfi og tekur þá við tímabundinn brottrekstur og úr- skurðarnefnd. Mjög misjafnt er hversu mikið þarf til þess að sann- færa ráðherra um brottvikningar- kostinn. Góður fremur glæp Dæmi er um að Ríkisendurskoð- un hafi skilað skýrslu um forstöðu- mann stofnunar sem staðinn var að því að hafa falsað akstursdagbók. Maðurinn hafði yfir að ráða bíla- leigubil á vegum stofnunar sinnar en á sama timi útfyllti hann akst- ursdagbók sem tOgreindi að hann hefði ekið eigin bifreið. Um var að árabO leigt. í kjölfarið fór Sverrir í pólitíska krossferð tO þess að endur- heimta virðingu sína og brá hann heldur penna en brandi. Hann leit á brottvikningu sína sem persónulega aðför og samsæri tO þess að steypa sér af bankastjórastóli. Athygli vakti að bankastjórar Búnaðarbankans og Seðlabankans, sem sama ár voru staðnir að þvi að senda rangar upp- lýsingar til við- skiptaráðherra, voru ekki látnir sæta ábyrgð og rannsóknir á fag- legum afglöpum þeirra voru gerðar undir því yfir- skini að um rannsókn á stofnun- inni sem slikri væri að ræða en ekki þætti einstakra bankastjóra í þeim brotum sem þar voru skoðuð. Rétt eins og í máli Sverris komu gerðir þeirra fram í bókhaldi. í bókhaldi bankanna skorti á að greina frá yfir 20 mOljóna króna risnukostnaði, auk þess sem ráð- herra voru gefnar rangar upplýs- ingar um nokkurt skeið sem hann þuldi upp á þinginu. Vinagreiðar Nýverið afréð ríkissaksóknari Jón Trausti Reynisson blaðamaður Þjóömenningarhúsiö Forstööumaöurinn réði eiginkonu sína og féiaga i vinnu og þótti hafa falsaö akstursskýrslu. ræða fjárhæð upp á nokkur hund- ruð þúsund krónur sem ranglega var fengin. Forstöðumaðurinn við- urkenndi undanbragðalaust brot sitt og málið var sent viðkomandi ráðuneyti tO frekari umfjöOunar. Ráðherra ákvað að veita honum tO- tal vegna málsins þar sem maður- inn þótti góður starfskraftur og sýndi sanna iðrun. TOtal hefur enga merkingu lögum samkvæmt og því Ijóst að þarna var manninum sleppt með skrekkinn. Hulin hlunnindi I stærstu málum síðustu ára, þar sem Ríkisendurskoðun hefur gefiö skýrslu þar sem ljóstrað var upp háttalagi er varð háttsettum gerend- um að faOi, var oftast um að ræða að stjómendur væm vísvitandi að nota stöðu sína tO þess að ota sínum tota eða að minnsta kosti að svo hafi litið út. Þau tilfeUi þar sem út- lit var fyrir slíka spOlingu ein- kenndust af því að mikO persónuleg útgjöld stjómenda voru ekki tO- greind með viðhlítandi hætti í bók- haldi. Sverrir Hermannsson, þáverandi bankastjóri Landsbankans, var lát- inn fjúka ásamt tveimur starfs- bræðrum sínum árið 1998 að undir- lagi Finns Ingólfssonar viðskipta- ráðherra, eftir að í ljós kom leyndur laxveiðikostnaður þeirra hjá bank- anum. Þá hafði bankinn fjárfest í laxveiðOeyfi sem Sverrir hafði um Skelfir skálkanna Sigurður Þóröarson ríkisendurskoðandi og stofnun hans eiga stóran þátt i því að hreinsa til i islensku stjórnkerfi. boðssvik. Stjómendumir tveir sýndu af sér óhóflegt bróðurþel þegar þeir réðu hvor annan til vinnu hjá stofnun hins. Ríkisend- urskoðun gerði athugasemdir við embættisfærslur þeirra, þar sem fram kom meðal annars að Guð- mundur skráði aksturskostnað á bíl sinn á meðan hann fór erinda í þágu Þjóðmenningarhúss á bíla- leigubíl. Auk þess réð hann eigin- konu sína til starfa við húsið og innti hún vinnuskyldu sína ekki af hendi. Ríkisendurskoðun þótti ljóst að þeir félagarnir hefðu notað stöðu sína hjá stofnununum til þess að skara eld að eigin köku og aðstand- enda. Ekki þótti hins vegar ástæða til að fara í sakamál við þá þar sem í fyrsta lagi lægju ekki fyrir nægi- leg gögn í málinu og í tilfelli Guð- mundar þótti málsókn ekki vinna að almannaheill, þrátt fyrir að eitt tilfeUi umboðssvika hefði leynst í máli hans. Þótti ríkissaksóknara næg refsing fólgin í því að hann haföi verið leystur frá störfum. Það var Davíð Oddsson forsætis- ráðherra sem kvað upp endalok starfsferils Guðmundar sem for- stöðumaður Þjóðmenningarhúss í kjölfar þess að stjóm hússins hafði lýst yfir að Guðmundur hefði gefið henni rangar upplýsingar og ríkis- saksóknari var kominn í málið. Áður hafði Davíð legið undir ámæli stjórnarandstæðinga fyrir að veita Guðmundi einungis áminningu en sá síðarnefndi las ekki áminningu út úr máli Davíðs og taldi málinu lokið. Á Alþingi útskýröi forsætis- ráðherra síðar að málinu hefði aldrei verið lokiö, þrátt fyrir áminninguna, og að Guömundur væri leystur þegar i stað frá störf- um tímabundið. Hann sneri ekki aftur i stól forstöðumanns. að ákæra ekki Guðmund Magnús- son, fyrrverandi forstöðumann Þjóðmenningarhúss, og Ólaf Ás- geirsson þjóðskjalavörð fyrir um- „Ég kem aftur“ Sverrir Hermannsson var vígreifur eftir að honum var þröngvað til þess að segja af sér sem bankastjóri Landsbankans. Fræg varnaöarorð Tor- tímandans i samnefndri kvikmynd lýsa krossfararhamnum vel. Europris á íslandi Europris-lágvöruverðsverslun var opnuð síðasfliðinn sunnudag við Lyng- háls. Gríðarleg biðröð haföi myndast fyrir framan búðina áður en hún var opnuð en verslijnin býður mikið úrval af sérvöm og matvöru á lágu verði. Europris-keðjan er tíu ára gömul og norsk að uppruna og verslunin við Lyngháls er sú fyrsta sem opnuð er utan Noregs. Til stendur að opna aðra Europris-verslun í Skútuvogi um miðj- an ágúst. Hægrisveifla í borginni Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið samkvæmt nýrri skoðanakönn- un DV í vikunni. Könnunin var gerð í báðum Reykjavíkurkjördæmunum, norður og suður, og reyndist fylgi flokksins í báðum kjördæmum 49,9%, sem er 4 prósentustigum yfir kjörfylgi í síðustu kosningum. Framsóknar- flokkurinn bætir einnig við sig miðað við kjörfylgi en Vinstrihreyfmgin - grænt framboð og Samfylking tapa fylgi- Norðurljós stefna í réttarsali Davíð Oddsson forsætisráðherra vísaði alfarið á bug ásökunum Sigurð- ar G. Guðjónsson- ar um að hann heföi beitt sér I þeim tilgangi að knésetja Norður- ljós og tryggja öðr- um eignarhald á fyrirtækinu. Davíð er ekki sá eini sem Sigurður ásakar því hann hefur kært Búnaðarbankann til Fjármálaeftirlitsins og hótar að stefna Árna Tómassyni bankastjóra vegna ummæla hans um að Sigurður hafi leynt bankann skilyrðum bankalánsins sem Búnaðarbankinn hefúr gjaldfellt. Þá hótar Sigurður að höföa mál gegn DV vegna birtingar á ummælum Áma. Áfangasigur Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurð- aði á miðvikudaginn að stjóm SPRON væri skylt að veita Oddi Ingimarssyni stofnfjáreiganda fullan og ótakmarkað- an aðgang að skrá yfir stofnfjáreigend- ur í SPRON og kennitölur þeirra. Þetta er annar áfangasigur fimmmenning- anna sem vilja hafa milligöngu um að seþa Búnaðarbankanum hluti stofh- fjáreigenda í sparisjóðnum. Uppsagnir í aðsigi Miklar breytingar verða á starfs- mannahaldi hjá Keflavíkurverktökum á næstunni í kjölfar þess að útboð, sem vænst var af hálfu Vamarliðsins, hafa ekki farið fram m.a. vegna atburðanna 11. september. Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafé- lags Keflavíkur, segir þetta gríðarlegt áfall fyrir atvinnulíf Suðumesja. Fimm hafa áhuga Fimm erindi bárust einkavæðingar- nefod á fimmtudag um áhuga á að kaupa að minnsta kosti fjórðungshlut í ríkisbönkunum. Ritstjóri Viðskipta- blaösins taldi athyglisvert hversu fjöl- breyttur hópur fjárfesta væri hér á ferðinni sem sýndi að hans mati bæði áhuga á þátttöku í áframhaldandi hag- ræðingu í bankakerfmu og skilning á þörfmni fyrir slíka hagræðingu. Hann taldi það ánægjulegt hve mikill áhugi innlendra fjárfesta væri sem hljóti að verða ríkisstjóminni mikil hvatning tfl að halda áfram einkavæðingu af fullum krafti. -JKÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.