Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002
DV
Fréttir
Loftbelgsfarinn Thomas Seiz lauk 6 vikna dvöl í nótt - 16. skiptið á íslandi:
Verst að neyðast til að
sofa eina nótt í rúmi
- er með 55 manns í annasamri vinnu í Sviss - kemur hingað til að slaka á
„Ég kom fyrst hingað til íslands
fyrir tæpum áratug þegar við konan
ákváðum að fara eitthvað til að
ræða vandamál í hjónabandinu og
reyna að stilla saman strengina. Og
það tókst. Við dvöldum hér í á
þriðju viku, náðum að slaka mjög
vel á, ekki síst á tjaldstæðinu á Ak-
ureyri og víðar á Norðurlandi sem
er í mestu uppáhaldi hjá mér,“
sagði Thomas Seiz, 41 árs, frá Zug-
héraði í Sviss, sem er aðaleigandi 55
manna ráðgjafarfyrirtækis í heima-
landinu.
Hann flaug af landi brott í nótt
eftir sína sextándu íslandsdvöl. 1
þetta skiptið kom hann með Hum-
mer-jeppann sinn, loftbelg og flug-
mann sem hann ferðaðist með á
ýmsum stöðum á landinu i samtals
13,5 klukkustundir. Fylgdarliðið var
11 manns, þar á meðal móðir Thom-
asar og 9 ára dóttir hans, sem
dvöldu hér i tvær vikur.
Dýrum myndabúnaði stoliö
„Ferðalagið byrjaði reyndar ekki
vel,“ segir Thomas. Einhvers staðar
frá því að hann afhenti starfsmönn-
um Eimskips lyklana af Hummer-
bíl sínum sem fór með Goðafossi frá
Hamborg og þangað til hann sótti
bílinn í Reykjavík hvarf ljósmynda-
búnaður úr bílnum. Hann er metinn
á um 2 milljónir króna. „Ég ákvað
að hugsa ekki meira um þetta til að
Skugglnn fylglr belg
Á ferö á Norðurlandi.
spilla ekki dvölinni, fékk mér ann-
an ljósmyndabúnað en Eimskip
neitar ábyrgð í málinu. Ég mun
snúa mér að því brasi frekar er ég
kem heim til Sviss.“
Thomas segist hafa neyðst til að
sofa eina nótt í rúmi á meðan ís-
landsdvölinni stóð - það hefði verið
heldur slæmt - honum hafx ekki
veriö afhentur bíllinn og tjaldbún-
aðurinn strax úr skipinu.
„Vissulega á maður allt til alls
heima, meðal annars sumarhús, en
ég vil sofa í tjaldi og gera aðra hluti
en venjulega þegar ég dvel á íslandi.
Ég vil þurfa að hafa fyrir lífinu,
leggja mig til dæmis fram við að
versla, útbúa morgunmat og halda á
mér hita. Það er líka gott fyrir böm-
in að upplifa hve lífið getur verið
breytilegt," sagði Thomas sem á 9
ára dóttur, Önnu Katharinu, Krist-
inu, 4 ára, og Adinu, sem er 15 mán-
aða. Carmen, 35 ára, konan hans, er
alfarið heima í Sviss í þetta skiptið
vegna litlu stúlkunnar.
„Uppáhaldsstaðirnir okkar eru
Akureyri, Askja og Raufarhöfn. Hér
á íslandi er maður innan við sólar-
hring að ná að slaka á. I New York
ertu viku að ná því,“ segir Thomas
sem hefur eignast marga vini og
kunningja hér á landi þar sem hann
vill framar öllu dvelja í fríum.
DV-MYNDIR: THOMAS SEt
Jarðbundnlr flugkappar
Á myndinni er Thomas Seiz meö aö
alflugmanninum, Urs Mattle.
Belgurlnn á hllðlnnl eftir lendingu
„Viö neyddumst til aö lenda á veginum þegar viö sáum þykkan skýjabakka
og hraun fram undan. “
Furðu lostnir hestamenn
En hvernig gengu loftbelgsferð-
imar i landi hinnar breytilegu veðr-
áttu? „Við áttum ekki von á að geta
verið svona lengi á lofti og raun bar
vitni, samtals 13,5 klukkustundir
enda má belgurinn ekki við meira
en 5-8 sekúndumetrum. Fyrst flug-
um við um Borgarfjörö, til dæmis
yfir Reykholt. Það var hægt frá
klukkan 5 að nóttu til klukkan 9 að
morgni því eftir það hitaði sólin
landið og ókyrrð myndaðist. Við
fómm reyndar aldrei I meiri hæð
en eitt þúsund metra af öryggisá-
stæðum," segir Thomas.
Hann og ílugmaðurinn héldu eftir
þetta með belg og búnað norður til
Blönduóss þar sem flogið var yfir
Blöndusvæðið. Þvi næst fór loftbelg-
urinn upp suður af Sauðárkrók og
lent var við Glaumbæ. Einnig var
flogið yfir Varmahlíð og þar sem
Landsmót hestamanna fór fram á
Vindheimamelum.
„Fólk spurði okkur gjarnan;
Island er landið sem ...
Thomas Seiz er búinn aö koma í 16
skipti til íslands og nú síöast á loftbelg.
Hann hyggur á frekari dáöir í háloftunum
og mun fara i meira en þúsund metra
hæð þegar komiö veröur meö belginn til
íslands í annaö skiptiö.
Niu ara ofar skýjum með pabba
Dóttirin, Anna Katharina Seiz, glaö-
hlakkaleg í sólinni fyrir ofan skýin i
Skagafiröi.
„hvers vegna eruð þið að þessu?"
Við svöruðum að það væri fyrir
ánægjuna. Það átti fólk erfitt með
að skilja," segir Thomas og brosir
og minnist á að um 200 manns hafi
jafnan safnast í kringum belginn er
hann var á ferð meö hann í Burma.
Loftbelgurinn fór tvisvar á loft
við Mývatnssvæðið en eftir það var
ekið suöur Kjöl og belgnum flogið
frá Ingólfsfjalli að Þjórsárbrú. Það
var síðasta lendingin i ferðinni.
„Við höfum öðlast mikla reynslu
á loftbelgnum í þessari dvöl og átt-
um einstaklega gott samstarf við
Flugmálastjóm í Reykjavík. Það
urðu engin óhöpp og ég vil þakka
öllum þeim íslendingum sem veittu
okkur einstaka aðstoð." -Ótt
Forstöðumanns leitað:
Þorfinnur áfram í
úthlutunarnefnd
Ekki kom fram
tillaga um van-
traust á Þorfinn
Ómarsson sem
meðlim úthlutun-
arnefndar Kvik-
myndasjóðs á
fundi stjómar
sjóðsins í gærdag.
„Ég persónulega
treysti Þorfmni og
honum er ekki
vantreyst til starfa í úthlutunamefnd-
inni,“ segir Bjöm Sigurðsson stjóm-
armaður.
Skemmst er þess að minnast að
Þorfinni var vikið tímabundið úr
stöðu forstöðumanns Kvikmyndasjóðs
á þriðjudag. Næsta verkefni stjórnar
sjóðsins verður að finna eftirmann
Þorfinns, að minnsta kosti þar til mál
hans verður afgreitt hjá úrskurðar-
nefnd. Leitin að nýjum forstöðumanni
verður tekin fyrir á fundi stjórnar
sjóðsins á mánudag. -jtr
Fyrsti ársfjórðungur:
Baugur hagn-
ast um hálfan
milljarð
Eignarhaldsfélagið Baugur Group
hf. hagnaðist um 513 milljónir króna á
fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Félagið
á og rekur Baug-Island, Baug-USA og
Baug-fjárfestingu og þróun. Allur
verslunarrekstur Baugs á íslandi fell-
ur undir Baug-ísland, og var 328 millj-
óna króna hagnaður á þeirri rekstrar-
einingu.
Veltuaukning Baugs Group hf. er-
lendis á tímabilinu er gríðarleg, en á
meðan veltuaukningin var 16,5 pró-
sent á Baugi-ísland var hún 84 prósent
á eignarhaldsfélaginu í heild sinni.
Þrátt fyrir gott gengi Baugs-Island
hefur stöðugildum fækkað um 70 á
fyrsta ársfjórðungnum og rekstur Ný-
kaups í Kringlunni verið lagður nið-
ur.
Eigendur Bonus Stores Inc., versl-
unarkeðju Baugs í Bandaríkjunum,
hafa ákveðið að auka hlutafé um tæp-
lega 600 milljónir króna, í þeim til-
gangi að flýta umbreytingu Bill’s Doll-
ar Stores yfir í Bonus Dollar Store,
þar sem síðarnefht form hefur valdið
30 prósenta söluaukningu í verslun-
unum. Baugur mun ekki taka þátt í
þessari hlutafjáraukningu og mun
eignarhlutur hans því minnka eitt-
hvað í bandaríska fyrirtækinu. -jtr
Bæjarráð Akureyrar:
Áfrýjun ákveöin
Bæjarráð Akureyrar hefur ákveðið
að áfrýja til Hæstaréttar dómi Héraðs-
dóms Norðurlands eystra í máli Guð-
rúnar Ólafíu Sigurðardóttur gegn Ak-
ureyrarbæ vegna brota á jafhréttislög-
um. Var Akureyrarbær dæmdur til að
greiða Guðrúnu, sem gegnir starfi
deildarstjóra ráðgjafadeildar bæjarins,
um 4,7 milljónir króna í bætur.
Bæjarráð samþykkti áfrýjunina með
fjórum atkvæðum gegn einu en Oktav-
ía Jóhannesdóttir, bæjarfulltrúi Sam-
fylkingar, greiddi atkvæði gegn áfrýj-
uninni og kemur fram í bókun að hún
telji nauðsynlegt að leita lögfræðiálits á
dómnum áður en ákvörðun um frekari
málarekstur verði tekin. Valgerður H.
Bjamadóttir, bæjarfulltrúi VG og fram-
kvæmdastýra Jafnréttisstofu, tók ekki
þátt í atkvæðagreiðslunni þar sem hún
kom að málinu á fyrri stigum þegar
hún gegndi starfi jafnréttis- og fræðslu-
fulltrúa hjá Akureyrarbæ. -ók
Ec
V4 /j/ '
ÞÚ 59ií) 3ÍJT!,i
hvort það leynist .. .
óvæntur glaðningur :
í Engjaþykkninu þínu! M ^
& <:k
J:
MJÚLKURSAMSAUN