Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Blaðsíða 17
LAUCARDAGUR 27. JÚLf 2002
HeIqarhlað H>V
*7
Svo nærri,
en samt svo fjarri
Það eru ekki margir staðir orðnir eftir á jörðinni sem ekki hafa verið
heimsóttir af mannskepnunni. Mörg hundruð manns hafa komið á
Mount Everest, Suðurskautslandið og Galapagosegjar. Sjórinn er
hins vegar svo til ókannað svæði enda er vitað meira um gfirborð
tunglsins heldur en hafsbotn jarðarinnar. Það er því varla nema von
að köfunaríþróttin sé íörum vexti, enda að sögn köfunarkennarans
Héðins Ólafssonar spennandi tilhugsun að skoða sig um á stöðum
sem enginn annar hefur komið á áður.
■ Sjá næstu opnu
„Ef þú ferð upp á hálendið eða inn í afdali geturðu
verið pottþéttur á því að þar hafi einhver manneskja
gengið áður. Þú þarft hins vegar ekki að fara langt,
getur í raun bara keyrt niður í næstu fjöru og stung-
ið þér á kaf og verið nokkuð viss um að þangað hafi
enginn komið áður, að þú sért fyrsta manneskjan
sem kemur á þennan stað. Það er mjög spennandi."
Þetta segir kafarinn Héðinn Ólafsson, en það eru
tæp fjögur ár síðan hann sökk á kaf í íþróttina. í dag
rekur hann köfunarskólann Kafarinn.is og kynnir
ekki bara íslendingum íþróttina heldur fylgir hann
einnig erlendum ferðamönnum um hinn íslenska
neðansjávarheim. „Ég hef aldrei upplifað það að
þeim sem prófa að kafa sjálfir finnist þetta ekki æð-
islegt. Þessi heimur kemur öllum skemmtilega á
óvart,“ segir Héðinn af einlægni.