Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Blaðsíða 42
50 Helgarblaö I>V LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 Formúla 1 > i i \ I -v t I Michael Schumacher vann sinn fimmta heims- meistaratitil í Frakklandi í síðustu viku Síðasta keppni keppnistímabilsins sem háð var í Frakklandi fyrir viku hefur verið skráð á spjöld sögunnar því þar innsiglaði Michael Schumacher fimmta heimsmeistara- titil sinn og jafnaði þar með met Argentínu- mannsins Juans Manuel Fangio sem vann sama afrek á árunum 1952 tii 1957. Það sem meira er er að aldrei hefur meistaratitill ver- ið svo fljótt í höfii, eða á 140 dögum, og þeg- ar sex keppnum er ólokið af keppnistímabil- inu. Þó svo það hafi verið ljóst þegar líða tók á keppnistimabilið hver yrði meistari þessa árs þá óraði engan fyrir því að Schumacher gæti tryggt sér tignina svo fljótt en röö óhappa og atvika urðu þess valdandi aö þeg- ar fiórir hringir voru til loka keppninnar rann sigur úr greipum Kimis Raikkonens í hendur Schumachers er Finnanum fataðist flugið á olíupolli. Keppnistímabilið er því farið að snúast um hvaða ökumaður eða keppnislið klárar í öðru sæti á stigalistan- um. Fögur orö um kappann Eftir að Ferrari-fákurinn númer eitt kom fyrstur í mark fyrir viku á Magny-Cours hafa menn ekki verið sparir á yfirlýsingar sínar um ágæti Þjóðverjans sem aðeins er á sínu 33. aldursári og búinn að „endurskrifa" allar sögubækur Formúlu 1. Italska íþrótta- blaðið La Gazzetta dello Sport sló tif dæmis upp á forsíðu sinni: „Schumacher er ekki Keppnísdagatal 2003 Keppni t Dagsetning Land Braut 1 9. mars Ástralía Melbourne 2 23. mars Malasía Sepang 3 6. april Brasilía Interlagos 4 20. apríl San Marino Imola 5 4. maí Spánn Barcelona 6 18. maí Austurríki A1 7 l.júní Mónakó Monte Carlo 8 15. júní Kanaría Montreal 9 29. júní Evrópa Númburgring 10 6. júlí Frakkland Magny-Cours 11 20. júlí Bretland Silverstone 12 3. ágúst Þýskaland Hockenheim 13 17. ágúst Ungverjaland Hungaroring 14 31. ágúst Belgía Spa 15 14. september Ítalía Monza 16 28. september Bandaríkin . Indy 17 12. október Japan Suzuka ökumaður, hann er fallbyssa.“ Síðan bættu þeir við í undirmálstexta: „Við erum ekki að tala um mann sem fyrir tilviijun vinnur fimm heimsmeistaratitla heldur er þetta án nokkurs vafa hæfileikaríkasti ökumaður allra tíma.“ Fyrrverandi Ferrari-ökumaður, Nikki Lauda, sem á árum áður vann fimmt- án keppnir fyrir Ferrari og stjómar nú Jagú- ar-keppnisliðinu, var ekki feiminn við að segja það sem honum lá á hjarta. „Ham ekur eins og guð. Harm er fullkominn ökumaður, hann er sá besti frá upphafi.“ Þetta em ekki lítil orð frá þreföldum heimsmeistara. „Schumacher á mikinn heiður skilinn fyrir það hvemig hann hefur stutt Ferrari-liðið áfram. Hann vissi frá upphafi þess tíma sem hann byrjaði hjá Ferrari árið 1996 hvaða fólk hann vildi í kringum sig til að móta hið óskipulagða keppnislið í súperlið.“ Luca di Montezemolo, forstjóri Ferrari, er á sömu línu og fyrrverandi ökumaður hans hjá lið- inu. „Besti ökumaður fyrr og síðar sem ekið hefur fyrir Ferrari." Hugsanlega með Ferrari til 2006 Willi Weber, sem hefur verið umboðsmað- ur Michaels frá upphafi ferils hans, er að sjálfsögðu ánægður með árangurinn. Eftir að Schumacher hafði unnið tvo meistaratitfla með Benetton á árunum 1994 og 1995 var stefnan tekin á Ferrari og launaskalar For- múlunnar vom sprengdir og í dag er kapp- inn launahæsti íþróttamaður heimsins. Þrír milljarðar í árslaun er ekki óvarlega áætlað. Nú hefur hann bætt þremur titlum við með ítalska liðinu sem fyrir sex árum var hvorki fúgl né fiskur. Fimm titlar í höfh og jafnvel sá sjötti á næsta ári? Weber er ekki í nokkmm vafa um það. „Tölffæðin er Schumacher ekki mikils virði en að jafna met Fangio er honum mjög dýrmætt. Á næsta ári kemur hann til með að gera betur. Það yrði yndislegt. Hann á það sannarlega skilið." Núverandi samningur meistarans við Ferrari rennur út í lok 2004 en þrátt fyr- ir það hafa menn verið að spá fyrir um lok- in á ferli Schumachers. En er hugsanlegt að hann aki jafnvel lengur en út ‘04? „Já, það gæti vel farið svo að við framlengdum samn- inginn við Ferrari út árið 2006. Ég sé enga ástæðu á þessari stundu til þess að Michael ætti að hætta eftir tvö ár,“ sagði Weber. Jean Todt, liðsstjóri Ferrari, þakkar fyrir að hafa haldið kappanum í sinum röðum allan þenn- an tima. „Eftir sex mánuði með Ferrari 1996 sögðu allir aö Michael Schumacher væri þeg- ar kominn í samningaviðræður við önnur lið. I dag gæti enginnÝímyndað sér að hann gæti ekið fyrir annað lið en Ferrari. Og fyrir mig er þaö stærsti vinningurinn." Löngunin enn til staðar Aðspurður um löngunina til að keppa áfram og stefna á sjötta titilinn hafði Michael þetta að segja: „Ég hef enn þá löngunina en ekki vegna þess sem spurt er um heldur ein- faldlega vegna ánægjunnar af að keppa og reyna að ná eins mörgum ánægjulegum keppnum og við getum. I framhaldi af þvi getum við afrekað meira - vonandi náð fleiri meistaratitlum" Schumacher hefur ekki alltaf verið á besta bílnum í gegnum tíðina en það er engin spummg hvemig staðan er í dag. „Við erum í svo góðu formi varðandi lið og árangur að við ættum að geta náð viðlíka frammistöðu áffam og átt jafn góðar keppnir og um síðustu helgi í Frakklandi, sem ég held að hafi verið mjög spennandi. Það er þetta sem við lifum fyrir, viö elskum íþrótt- ina og njótum meira en alls annars." Mikið hefur verið reynt að bera saman afrek Schumachers og Argentinumannsins J.M. Fangio sem varö fyrstur manna til að ná fimm titlum. „Mér finnst það ekki viðeigandi að bera saman þessa tvo hluti, það er í það minnsta mín skoðun, og ég reyni einfaldlega að njóta þessa afreks sjálfúr, án þess að bera það saman við eitthvað annað" var haft eftir heimsmeistaranum. „Mér finnst það sem Fangio gerði á sínum tíma alls ekki sam- bærilegt við það sem við erum að gera hér í dag. Ég trúi því að það sem hann gerði hafi sennilega verið miklu meira en að vera bara ökumaðurinn. Það er öðruvísi en í dag, þar sem við höfum svo marga til að aðstoða okk- ur og þar sem liðsheildin hefur mun meira að segja en í fortíðinni." Formúlan í sumarfrí Eftir keppni helgar- innar, sem er sú tólfta á tímabilinu og haldin á Hockenheim-brautinni í Þýskalandi, fer Formúl- an í langþráð sumarfrí. Þá koma til með að vera þrjár vikur í ungverska kappaksturinn þann 18. ágúst og ökumenn, jafnt og ekki síst sem liðs- menn, sem ævinlega vinna eins og hestar daga og nætur, geta hvílt lúin bein. Prófunarbann kemur til með að standa yfir þennan tima svo allir fá nægan tíma. Hockenheim hefur gengið í gegnum miklar breytingar á milli ára (sjá graf til hægri) og er mikill sjarmi far- inn af brautinni gömlu sem lá um þéttan skóg svæðisins þar sem ökumenn náðu geysilegum hraða á löngum beinum köflum. Eftir mikla pressu frá sirkusstjóra Formúl- unnar, Bemie Ecclestone, neyddust eigendur brautarinnar til að breyta legu hennar af ör- yggisástæðum. Fleiri áhorfendur komast nú á viðburðina og fleiri og áhugaverðari beygj- ur em komnar til sögunnar. Flestir þeir öku- menn sem skoðað hafa aðstæður eru ánægð- ir með árangurinn. Keppnisdagatal næsta árs (sjá töflu) hefur verið gefið út og er aug- ljósasta breytingin á milli ára sú að þetta góða sumarfri, sem F1 er að fara í eftir þessa helgi, hefur verið tekið burt. Breski og franski kappaksturinn hafa skipt um stöðu en að öðru leyti era engar breytingar. Þeir sem hafa þann vana að gera tímaáætlanir langt fram í tímann ættu þvi að gefa mótaröð næsta árs góðan gaum. -ÓSG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.