Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Blaðsíða 34
-42 Helgorbloö DV LAUGARDAGUR 27. JÚLf 2002 Brjóst, brjóst og aftur brjóst. Fólk virðist aldrei fá nóg af þvíað tala um og dást að þessum fitukirtlum sem konur bera fram- an á sér. Lýtalæknirinn Sigurður F. Þor- valdsson, sem hefur það að atvinnu að fást við brjóst, vill þó frekar tala um hol- gómaaðgerðir, brunasár og krepptar hend- ur en silíkonaðgerðir, enda finnst honum nóg hafa verið um þær rætt. Helgarblaðið tók hús á Sigurði í vikunni, en hann er sá starfandi lýtalæknir á Islandi sem er með hvað lengstan feril ígreininni, og fékk hann til þess að ræða um silíkonbjóst. Leiður íi að tala um brjóst „Það má taka þéttingsfast á þesstim brjóstum," segir Sigurður sem segir það þurfi meira til en svo að sílikonbrjóst springi DV-myndir Sigurður JökuII „Æi, við lýtalæknar erum orðnir dálítið leiðir á því að tala alltaf um bijóst. Starf okkar er fólgið i fleiru en brjóstastækkunum," segir lýtalæknirinn Sigurður E. Þorvaldsson þar sem hann situr á skrifstofu sinni í Læknastöðin í Glæsibæ. Sigurður er sá lýtalæknir sem hefur hvað lengstan starfsferil að baki af þeim átta lýta- læknum sem hér eru starfandi í fullu starfí. Hversu mörg brjóst hann hefur séð um dagana hefur hann ekki tölu á en þau eru orðin þónokkur - enda eru brjóstaað- gerðir langalgengustu lýtaaðgerðir dagsins í dag. Slíkar aðgerðir eru þó ekkert sem Sigurður ákvað að einbeita sér að heldur er þetta allt spuming um framboð og eftirspum. „Aðstæðumar í því umhverfi sem þú starfar beina þér ósjálfrátt inn á ákveðnar brautir. Það hefur farið svo að ég geri mikið af fegrunaraðgerðum sem snúa aðallega að brjóstum og andliti. Síðustu 10-15 árin hef ég einnig unnið mikið að endursköpun btjósta hjá konum sem misst hafa bijóstið vegna krabbameins," segir Sigurður og heldur áíram: „Það er mikii þörf fyrir þetta fag því ekki má gleyma að fyrir utan fegrunarað- gerðimar, sem era ágætur þáttur í starfínu í sjáifu sér, sinna lýtalæknar jafnframt bömum með fæðingargalla eins og klofna vör, brunasjúklingum, og fólki með ör efrt- ir bruna og slys. Einnig sinnum við sjúklingum með krepptar hendur og handardofa, og við gerum einnig mikið af því að taka smáæxli af fólki sem stundum reyn- ast alvaleg sortuæxli. Sú tæknikunnátta sem við erum að beita við fegrunarlækningar nýtist okkur vel í hinum að- gerðunum." Sílikon er aðskotuhlutu Á hveiju ári era framkvæmdar um 100 brjóstastækk- unaraðgerðir á íslandi en þær hófust hér á landi um það leyti sem Sigurður kom heim frá námi árið 1974. „Það var meira feimnismál þá en nú. Nú er þetta ósköp opið og frjálslegt, þó stúlkur séu svo sem ekkert að auglýsa það að þær hafi fariö í slíkar aðgerðir. Aftur á móti er talað mun fijálslegar um málið og stúlkur vita mun meira um eðli slíkra aðgerða en áður,“ segir Sigurður. Hann viðurkennir þó að það séu margar rangar upplýs- ingar í gangi meðal almennings sem þurfi að leiðrétta. „Til dæmis halda margir að það þurfi að skipta púðun- um út eftir ákveðinn tíma, saltvatnspúðum eftir 5 ár og silíkoni eftir 10 ár. Þetta era hins vegar staðlausir stafir sem engar rannsóknir styðja," segir Sigurður. Hann út- skýrir að aðalhættan við að fara í brjóstastækkun sé sú að líkaminn líti alltaf á púðann sem aðskotahlut og reyni að losa sig við hann með því að láta bandvef vaxa utan um púðann. Ef bandvefurinn dregur sig mikið saman utan um púðann getur bijóstið orðið óeðlilega hart og þá þarf konan að fara í aðra aðgerð. „Það era svona 7-8% kvenna sem fá hart brjóst og þurfa að fara í aðra aðgerð. Þá er örvefurinn fjarlægður og rýmið um efhið víkkað. En maöur veit að það myndast ailtaf bandvefur aftur, það er bara spuming hversu mikið hann dregst saman. Bandvefúr myndast t.d. líka utan um hjartagangráð en þar sem slíkt tæki er hart þá er það í lagi en bijóst á að vera mjúkt þannig að ef bandvefurinn dregur sig saman getur bijóstiö orðið óeðlilega stinnt. Ég er með margar stúikur úti í bæ sem eru búnar að vera með púða frá mér í 15-20 ár sem er allt i lagi með,“ segir Sigurður. Fyrir utan hættuna á hörðu bijósti er fræðilegur möguleiki á örliöum doða I brjóstinu þar sem farið er inn í brjóst þar sem era einhveijar skyntaugar og þá getur komið örlít- ill doði í húðina við bringubeinið eða við geirvörtuna. Yf- irleitt er þetta ekki varanlegt en það er fræðilegur mögu- leiki. Springa ekki svo létt Önnur staðlaus staðhæfmg, sem að sögn Sigurðar lifir einnig góðu lífi, er sú að bijóstastækkun hafi áhrif á hæfni kvenna til þess að hafa bam á bijósti en hann bendir á að það geti hins vegar bijóstalyftmgar eða brjóstaminnkanir gert. „Ég fæ líka alltaf reglulega spumingar um hvort það sé óhætt að fara í flug með silíkonbijóst og ég get fullyrt að það er óhætt, enda er þetta mjög algeng aðgerð hjá fólki sem hefur flug að atvinnu. Silíkonpúðar springa ekkert si svona," segir Sigurður með áherslu og slær af miklum krafti í silíkonpúða á borðinu hjá sér til þess að sanna hversu sterkt efhið er. „Það má taka þéttingsfast á þessum bijóstum, þau springa ekkert við þrýsting. Ef maður lendir t.d. hins vegar í bílslysi og rifbeinið brotn- ar og stingst í púðann þá getur komið gat á hann. Ef slíkt gerist þá er innihaldið bara kjurt á staðnum, það lekur ekkert niður i nára eða út um allan líkamann. Það verð- ur hins vegar útlitsbreyting á bijóstinu og þá verður að sinna því eins og öðrum áverka," segir Sigurður Fyrir 10 árum fór af stað umræða um hvort silíkonfyll- ingar gætu verið krabbameinsvaldandi en Sigurður seg- ir að það sé alveg klárt að það sé engin tenging þar á milli. „Aftur á móti vitum við að sirka áttunda hver kona fær brjóstakrabbamein. í þeim hópi era alltaf ein- hveijar konur sem hafa fengið í sig silíkon á sínum tima en þar er engin orsök og afleiðing. Enda er silíkon notað út um allan heim til þess að endurskapa bijóst fyrir kon- ur sem misst hafa bijóst vegna krabbameins," segir Sig- urður. Telur stúllium oft hughvarf Talið berst að þessari útlitsdýrkun í þjóðfélaginu í dag og hvort allar þessar stúlkur sem fari í aðgerð hjá hon- um hafi virkilega þörf fyrir silíkon í brjóstin. Sigurður segir að svo sé ekki endilega en hann bendir á tilvik þar sem aðgerð geti algjörlega breytt lífl kvenna, eins og t.d þegar bara annað brjóstið þroskast en slík tilvik era mun algengari en flestir geri sér grein fyrir. „Þá er silíkonið algjör guðs blessun fyrir þær stúlkur sem svo er ástatt fyrir því með því er hægt aö komast nær því að þeirra likamsmynd sé eðlileg. En það er einnig mjög oft sem ég verö að segja við stúlkur að mér frnnist engin ástæða til
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.