Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002
HelQarblað II>"V
25
...vandamál vikunnar
16 ára gömul frænka þín er á leið á útihátíð um
i/erslunarmannahelqina. Hún kemur til þín og bið-
ur þig að kaupa áfengi fyrirsig. Hvað gerir þú?
Drekka á ábyrgan hátt
„Ég myndi byrja á að segja þessari frænku minni frá minni reynslu af áfengi og að
ég hafi ekki sjálfur byrjað að drekka fyrr en ég var 24 ára. Ég myndi gefa henni góð
ráð varðandi það hvernig hún gæti minnkað pressuna frá vinum og kunningjum.
Einnig myndi ég segja henni að hún væri orðin nógu gömul til þess að taka ákvörðun
varðandi þessi mál sjálf og ef hún væri ákveðin í því að drekka þá myndi hún redda
sér áfengi, enda þótt ég myndi ekki vilja kaupa það fyrir hana. Ef hún væri búin að
taka þá ákvörðun að drekka myndi ég segja henni að hún ætti að drekka á ábyrgan
hátt og engir væru betur til þess fallnir að kenna henni það en foreldrar hennar svo
ég myndi segja henni að hún skyldi leita til þeirra.“
Kjartan Guðbergsson, (Daddi diskó) plötusnúður og dagskrárgeröarmaöur á Stöö 2
Færi ekki í Ríkið
„Ég yrði svolítið hneykslaður á meintri frænku að vilja fara með áfengi á útihátíð -
aðeins 16 ára. Vitaskuld fer ég ekki í Ríkið fyrir hana. Mig grunar samt að hún geti
alltaf fengið einhvem annan til að kaupa áfengið og hef því smááhyggjur. Ef mér tekst
ekki að tala stúlkuna ofan af fyrirhuguðum áfengiskaupum er ekki um annað að ræða
en að tala við foreldra hennar og segja litlu frænkunni það.“
Bjarni Harðarson, ritstjóri Sunnlenska fréttablaösins
Prédikaði yfir foreldrunum
„Ég mundi sennilega neita þessari frænku minni um áfeng-
iskaupin. Því næst væri ég likleg til að hafa uppi á foreldrum
hennar og prédika yfir þeim nokkur varnaðarorð - ekki vegna áfengislöngunar
frænku minnar heldur vegna væntanlegrar útihátíðarferðar sem ég tel háskalegt að
senda 16 ára stelpur á. I raun er ég þeirrar skoðunar að foreldrar ólögráða barna sýni
vítavert kæruleysi með því að heimila þeim að fara á þessar útihátiðir þar sem nauðg-
anir, þjófnaðir, slagsmál og eiturlyfjaneysla eiga sér nær undantekningarlaust stað.
Varðandi áfengiskaup fyrir börn þá býst ég við að ef ég ætti 16 ára dóttur mundi ég
sjálf vilja sjá um áfengiskaup hennar og hafa þar með einhverja stjórn á magni og
gæðum - en vandi er um slíkt að spá þar sem ég er barnlaus."
Bryndís Loftsdóttir, verslunarstjóri Pennans-Eymundssonar
..eitthvað íyrir þig?
Líkamslína byggð á ilmolíufræðum
U.NCÖMt
— lyktarskyninu gert til hæfis og gagns
„Aroma Fit“ er nafnið á
hressandi ferskri líkamslínu frá
Lancomé sem stuðla á að jafnvægi
og hreysti bæði huga og líkama.
Vörur þessa eru byggðar á arom-
atheraphy eða ilmolíufræðum en
þetta er þriðja líkamslínan sem
Lancomé framleiðir undir þeim for-
merkjum. Áður hafa komið á mark-
aðinn frá þeim likamslinurnar
sem stuðlar að aukinni orku, og
sem dregur úr streitu. Markmið
„Aroma Fit“ er hins vegar að fegra bæði líkama og
sál. Allar vörurnar í þessari línu líta ekki bara mjög
girnilega út og gefa ómótstæðilega áferð heldur lykta
þær einnig afskaplega ljúft, enda er lögð áhersla á að
þær séu lyktarskyninu bæði til hæfis og gagns.
„Aroma Fit“ vörurnar eiga það sameiginlegt að vera
í appelsínugulum umbúðum og formúla þeirra bygg-
„Aroma
„Aroma
tonic“
calm“
ist á olíum ávaxta- og grænmetisseyðis.
Þessi kokkteill samanstendur m.a. af sell-
eríi, gulrótum, basiliku og appelsínum,
með öðrum orðum kokkteill sem er stút-
fullur af vítamínum og rakagefandi efn-
um. í línunni er m.a. að finna gel gegn
appelsínuhúð, húðmjólk, sturtusápu, lík-
amsilm og styrkjandi vökva fyrir brjóstin,
svo eitthvað sé nefni. Likamslína þessi
lagar línurnar, grennir, örvar sogæðakerf-
ið, flýtir fyrir losun úrgangsefna og hefur
vatnslosandi áhrif. í sumar bættust þrjár
vörur í þessa línu; styrkjandi brjóstagel
sem gerir brjóstin stinnari og þéttari, gel
gegn appelsínuhúð, sem gefur húðinni
samstundis þéttandi tilfinningu og á að
gefa sýnilegan mun eftir 20 daga, og aö
lokum kornagel sem örvar blóðrás og los-
ar um dauðar húðfrumur. -snæ
ITALSKVR 1/TI4RIM - GRIJUL
Yfir 2 m á hæð
Hægí að mála i
hvaða lit sem er
llægt að tengia
við gas
Tilvaiið í
sumarbústaðinn
og garðinn
Verð 49.900 kr.
Kynningarevrð
Verð 69.900 kr.
Kynningarvvrð
...með GSM áskrift
hjá Íslandssíma.
Hringdu í 800 1111, komdu í verslun
okkar í Kringlunni eða líttu á islandssimi.is.
Með Íslandssíma hringir þú frítt í fjögur
númer innan kerfis og á þjónustusvæði okkar.
18.900 kr.
Nokia 3510 á 18.900 kr.
- með 12 mánaða áskrift.
Ekkert stofngjald 2,100 kr.
V________________________________)
Nokia 3410 á 14.900 kr.
- með 12 mánaða áskrift.
Ekkert stofngjald 2L400 kr.
9.900 kr.
Nokia 3310 á 9.900 kr.
- með 12 mánaða áskrift.
Ekkert stofngjald 2.1C0 kr.
)
wc*>*
14.900 kr.
Akralind 1 - 201 Kópavogur - Sími 564 0910
ELDUR
tJORÐ
Íslandssími |