Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Blaðsíða 12
Erlendar fréttir vikunrtí Eiríkur Stefán Ásgeirsson blaðamaöur Fréttaljós LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002 Helgarblað DV Óróleiki á mörkuðum Ekkert lát var á óróleikanum á verð- bréfamörkuðum í Bandaríkjunum í vik- unni í kjölfar fjölda bókhalds- og fjár- svikamála sem upp hafa komið í þarlend- um stórfyrirtækjum að undanfömu og fór svo að Dow Jones-vísitalan seig niður fyrir 8000 stig á mánudaginn, í fyrsta skipti siðan í október 1998. Sigið hélt áfram næsta dag en á miðvikudag, eft- ir afgreiðslu þingsins á nýjum lögum um hertar aðgerðir gegn fjársvikum, rauk visitalan upp um heO 500 stig sem er það mesta í 15 ár. Síðan hefur leiðin aftur legið niður á við og hafði DJ sigið um tæp 50 stig á fimmtudag. Minnst 800 hafa farist Rannsókn hjálparstofnunarinnar Global Exchange gefur til kynna að að minnsta kosti 800 óbreyttir borgarar hafi farist i loftárásum Bandaríkja- manna á Afganistan. Þá er sagt að þessar tölur muni hækka þegar fréttir berast frá afskekktari svæðum lands- ins. Kæruleysi bandaríska hersins um líf óbreyttra Afgana er í reynd kennt um fjölda þeirra sem féllu. Bhutto í framhoð Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætis- ráðherra Pakistans, hefur ákveðið að snúa aftur heim til Pakist- ans, til að leiða kosn- ingabaráttu flokks síns vegna þingkosn- inganna sem fram fara 10. október nk., þrátt fyrir það að ný lög Musharrafs, forseta landsins, banni henni þátttöku í kosningunum. Bhutto, sem nýlega var dæmd af pakistönskum dómstóli til þriggja ára þrælkunarvinnu, sökuð um spillingu, tekur þar með þá áhættu að verða handtekin. Skipulagðar aftökur Alþjóðleg mannréttindasamtök, hafa sakað rússneska herinn um að stunda skipulagðar aftökur á ungum tsjetsjenskum karlmönnum. Þetta kemur fram í skýrslu sem birt var á þriðjudaginn en þar segir að mönn- unum sé reglulega rænt og þeir svo myrtir af rússneskum hersveitum sem starfa undir því yfirskini að þeir séu að leita uppreisnarmanna. Best að búa í Noregi Annað árið í röð telja Sameinuðu þjóðimar að best sé að búa í Noregi. Þá koma Sviþjóð, Kanada, Belgía, Ástralía og Bandaríkin. ísland- er i 7. sæti. Afríkuríkið Sierra Leone var neðst á lista 173 landa og reyndar voru 24 síðustu löndin á listanum öll í Afriku. Sátt um Perejil-eyju Spænski herinn yfirgaf klettaeyj- una Perejil um síðustu helgi eftir ár- angursríkar milligönguviðræður Col- ins Powells, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna. Þar með náðist mikilvægur áfangi í 10 daga deilu Spánar og Marokkós um eyjuna sem hófst með því að tylft marokkóskra hermanna komu sér fyrir á henni að næturþeli. Ákveðið hefur verið að við taki aftur hið óbreytta ástand sem áður ein- kenndi stöðu þessarar lítiifjöriegu eyj- ar undan ströndum Marokkó. Ingrid Betancourt: Forsetaframbjóðandi í gíslingu skæruliða 16 farast í árás á Gaza Sextán Palestínu- menn, þar af tíu börn, létu lífið og tugir slös- uðust þegar ísraelsk herþota gerði eld- flaugaárás á íbúða- byggð í Gaza á mánu- dagskvöld. Salah Sha- hada, stofnandi vopn- aðs arms Hamas-hreyfingarinnar, var meðal hinna fóllnu og mun árásinni hafa verið beint að heimili hans með þessum skelfilegu afleiðingum. Árás- in hefur verið harðlega fordæmd víða um heim, en ísraelsk stjórnvöld segja hana þátt í varnaraðgerðum gegn hryðjuverkum. Vopnuð samtök Palestínumanna hafa hótað grimmilegum hefndum. Laugardaginn 23. febrúar síðast- liðinn hélt kólumbiski forsetafram- bjóðandinn Ingrid Betancourt af stað frá höfuðborginni Bogota til San Vicente, sem er um 250 km suð- ur af borginni. Hún komst þó aldrei á leiðarenda þar sem henni var rænt af liðsmönnum skæruliðasam- takanna FARC sem í fjölda áratuga hafa barist gegn þarlendum stjórn- völdum. Betancourt er 40 ára gömul og hefur í gegnum tíðina verið mikill andstæðingur FARC. Hún bauð sig fram til forseta til að vekja athygli á málefnum sínum og vildi fyrst og fremst koma Kólumbíu á réttan kjöl. Eiturlyf og spilling eru nánast hvergi jafn áberandi og í heima- landi hennar. Henni gekk þó ekki vel I skoðanakönnunum og var með minnsta stuðninginn af frambjóð- endunum. Hún hugðist ferðast til San Vicente til að vera viðstödd fjölda- samkomu til heiðurs mannréttinda- málum en eiginmaður hennar, Juan Carlos Lecompte, sagði hana finna fyrir þörfinni að vera með borgur- um San Vicente „á góðum stundum og slæmum". Til þess að komast þangað þurfti hún að ferðast í gegn- um svæði sem áður hafði verið grið- arsvæði FARC og vöruðu bæði stjómvöld og herinn hana viö að hætta sér ekki um vegi sem ekki væru öryggir. Hún tók ekki mark á þeim viðvörunum. Hörð viðbrögð Viðbrögð við mannráninu voru mikil um heimsbyggð alla. Samein- uðu þjóðirnar, Bandarikin og Evr- ópusambandið fordæmdu atvikið og kröfðust þess að Betancourt og öll- um þeim sem FARC hefur rænt í gegnum tíðina yrði sleppt umsvifa- laust. Árið 1999 hóf forseti Kólumbiu, Andres Pastrana, friðarviðræður við FARC og gaf þeim landssvæði á stærð við Sviss sem griðarsvæði og yrðu þeir ekki angraðir af hermönn- um landsins héldu þeir sig þar. Pastrana batt hins vegar endi á aliar viðræður eftir að samtökin rændu farþegaþotu og háttsettum öldungar- deiidarþingmanni með skömmu miilibili. Þetta gerðist aðeins nokkrum dögum áður en Betancourt var rænt og var herinn byrjaður að ná aftur völdum á því landssvæði sem Pastrana hafði látið FARC eftir. Þau elstu og bestu En FARC eru ekki eins og upp- reisnarsamtök eru flest. Þau eru eldri en uppreisn Fidel Castro og Che Guevara á Kúbu og hafa enst lengur en allar aðrar suður-amer- ískar skæruliðahreyfingar. Rætur þeirra má rekja til borgarastriðs fjálslyndra og íhaldssamra sem stóð yfir frá 1948 til 1958. Einni skæru- liðasveitinni var stjómað af Pedro Antonio Mann, „Sureshot Maru- landa“ eins og hann er kallaður, sem skírði sveitina nafninu FARC (Byltingarher Kólumbíu) árið 1966. Eiturlyfjapeningar Það var þó ekki fyrr en á 9. ára- tugnum sem samtökin tóku að stækka að ráði. Þau fóru að einbeita sér að eiturlyfjaiðnaðinum og hafa ætíð síðan fjármagnað starfsemi sina með framleiðslu og sölu á eit- urlyfjum eins og kókaíni og heróíni. Tekjur þeirra sem stafa einungis af þeim viðskiptum nema nú um 25 milljörðum ár hvert. Auk þess rukka þau inn lausnargjöld fyrir þá sem lent hafa í klóm samtakanna en talið er að um 800 manns séu nú í haldi FARC, þar af fimm þingmenn og einn forsetaframbjóðandi. Tekjur þeirra af lausnargjöldum sem þeir krefjast af aðstandendum fanga REUTERS-MYND Ingrid Betancourt Betancourt var frambjóðandi til forseta Kólumbíu og var rænt á ferð sinni um landið þar sem hún hugöist berjast fyrir málstað sínum og málefnum. Hún hefur nú verið í haldi skæruliðasamtakanna FARC í meira en fimm mánuði ásamt um 800 öðrum sem haldið er gegn vilja sínum. Hvað gerir sá nýi? Uribe hefur einsett sér að berjast gegn skæruliðasamtökum eins og FARC. Hvað hann mun þó gera þeg- ar hann tekur við embætti er vitan- lega óljóst, og hvort hann mun beita sér óspart í því aö frelsa Betancourt og þingmennina fimm er ekki hægt að segja til um. Aðgerðir FARC eru harkalegar. í júní síðastliðnum gáfu þeir út við- vörun til borgarstjóra 100 borga í landinu með þeim skilaboðum að segja af sér hið fyrsta ellegar verða að skotmarki samtakanna. Ríkis- stjórnin svaraði með því að bjóða borgarstjórum landsins lifvörslu og skotheld vesti. FARC-samtakanna, sem handtekinn var þann 18. júlí. Samkvæmt honum átti að ræna farþegaflugvél og fljúga henni á forsetasetrið eða þinghús landsins, annaðhvort þann 20. júlí, þjóðhátíðardags Kólumbíu, eða 7. ágúst, þegar Uribe sver embættiseið forseta. Það er því óhætt að segja að FARC ætla að láta verulega til sín taka á þessum viðkvæma tíma- punkti, þegar einn forseti lætur af völdum og annar tekur við. Sorgarsaga Ekki lítur út fyrir að Ingrid Betancourt verði sleppt á næstunni. Statt og stöðugt hefur verið unnið að því, innanlands og utan, að fá hana lausa, en án árangurs. Sér- staklega var sótt eftir því þegar fað- ir hennar dó um miðjan mars, 83 ára að aldri. Heilsu hans hafði hrak- að verulega eftir að Betancourt var rænt í febrúar og kom hann marg- sinnis fram í sjónvarpi til þess að biðla til skæruliðanna að sleppa henni úr gíslingu sinni. Fyrr í vikunni var birt, í tilefni af því að fimm mánuðir höfðu liðið frá því að henni var rænt, myndband sem tekið hafði verið upp þann 15. mai. Íþví gagnrýndi hún í ávarpi sínu kólumbísku ríkisstjórnina fyr- ir að „yfirgefa land sitt“ og fyrir að láta hana „rotna“ i frumskóginum. Hún sagði einnig að dagarnir 82 sem liðið hefðu frá þvi að henni var rænt hefðu verið „stórkostlega ein- manalegir". Hún og kosningastjóri hennar, Clara Rojas, sem var með Bet- ancourt í fór þegar henni var rænt, litu ekki vel út og voru folar og horaðar. Viöeigandi ráðstafanir Uppreisnarseggirnir standa fastir við sitt og krefjast lausnar sinna manna í skiptum fyrir frelsi Bet- ancourt og gefa ríkisstjóminni eitt ár til að aðhafast eitthvað í málinu. Áður en þeir „grípa til viðeigandi ráðstafana". Byggt á efni frá Reuters, BBC og Washington Post. Hrikalegt hryðjuverk í bígerð Þá gaf kólumbíska lögreglan út núna í vikunni að komið hefur verið í veg fyrir hugsanlega sjáifs- morðsárás samtakanna. Lögreglan komst á snoðir um verknaðinn við yfirheyrslu á Jorge Enrique Car- vajalinu, háttsetts yfirmanns innan REUTERS-MYND Jaröarförln Faðir Ingrid Betancourt lést um miðjan mars, á meðan hún var fangi FARC- skæruliðasamtakanna. Á myndinni sést eiginmaður hennar, Juan Carlos Lecompte, sem hefur barist ötullega fyrir frelsi eiginkonu sinnar. þeirra eru einnig töluverðar. Samtökin hafa ítrekað gefið út að þeir muni ekki sleppa þeim áhrifa- mönnum nema í skiptum fyrir leið- toga innan vébanda þeirra sem eru í haldi kólumbískra stjómvalda. Þar sem valdaskipti voru á dag- skrá í landinu var ekki búist við að eitthvað væri hægt að gera fyrr en þau höfðu gengið í gegn. Pastrana er enn við völd en hann lætur senn af embætti og nýkjörið forsetaefni, Alvao Uribe, tekur við. Hann er fyrsti forsetaframbjóðandinn í sögu landsins sem vinnur kosningar með því að fá hreinan meirihluta í fyrstu umferð þeirra. Ingrid Betancourt, sem enn er haldið gíslingu, fékk innan við 1% atkvæða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.