Dagblaðið Vísir - DV - 27.07.2002, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 27. JÚLÍ 2002
DV
Fréttir
Bankastjóri Búnaðarbankans um „fúkyrðaflaum“ formanns úrskurðarnefndar:
Krefst þess að for-
maðurinn víki sæti
- sagði það sem allir hugsuðu, segir Guðjón Ólafur
Búnaðarbankinn hefur kraflst þess í
bréfi til úrskurðamefndar um viðskipti
við fjármálafyrirtæki, að Guðjón Ólaf-
ur Jónsson víki sæti sem formaður
nefndarinnar í öllum málum sem
varða Búnaðarbankann með einum
eða öðrum hætti. Ástæðan er hörð
gagnrýni Guðjóns Ólafs í garð bankans
í grein á vef reykvískra framsóknar-
manna, Hriflu.is, og ummæli hans i
flölmiðlum í kjölfarið. Guðjón skrifaði
greinina sem formaður Kjördæmissam-
bands framsóknarfélaganna í Reykja-
vikurkjördæmi suður.
„Fúkyrðaflaumur“
„Það segir sig sjálft hvers vegna við
förum fram á þetta,“ segir Sólon Sig-
urðsson, annar bankastjóra Búnaðar-
bankans.
„Mér finnst áhyggjuefni ef eitt
stærsta flármálafyrirtæki landsins ætl-
ar að reyna að hafa áhrif á fiármálaum-
ræðuna með þessum hætti,“ segir Guð-
jón Ólafur og telur ekki að efasemdir
bankans um óhlutdrægni hans séu á
rökum reistar.
„Ég hef náttúrlega lengi tekið þátt í
opinni og lýðræðislegri umræðu og
með því hef ég ekki afsalað mér nein-
Guðjón Ólafur Halldór J.
Jónsson. Kristjánsson.
um rétti til að taka að mér trúnaðar-
störf sem mér hafa verið falin. Ég held
að ég hafi ekki opinberlega sagt annað
en það sem allir voru að hugsa en fáir
þorðu að segja."
Sólon Sigurðsson svarar því til að
bankinn telji ótvírætt að Guðjón Ólafur
sé vanhæfur til að flalla um mál bank-
ans eftir þann „fúkyrðaflaum sem
hann jós yfir okkur - hann getur gegnt
hvaða opinbera starfi sem er fyrir mér
nema þessu,“ segir Sólon.
„Miður lukkuð háttsemi"
í greininni á Hriflu.is segir Guðjón
meðal annars að Búnaðarbankinn virð-
ist hafa gefið þriðja aðila upplýsingar
um skuldastöðu Norðurljósa. Það sé
„grafalvarlegt mál
og bankanum mjög
til vansa svo ekki
sé meira sagt“.
Þetta sé „ekki í
fyrsta skipti sem
Búnaðarbankinn
vekur athygli fyrir
sérstaka og undar-
Sólon lega viðskipta-
Sigurðsson. hætti“.
Nefnir hann
meðal annars til sögunnar viðskipti yfir-
manna verðbréfaviðskipta bankans fyrir
fáeinum misserum og segir loks „margt
ótalið af miður lukkaðri háttsemi þess-
arar rómuðu flármálastofhunar".
Skilningur Halldórs
Úrskurðamefndin sem Guðjón Ólaf-
ur stýrir starfar samkvæmt samkomu-
lagi viðskiptaráðuneytisins, Samtaka
banka og verðbréfafyrirtækja (SBV) og
Neytendasamtakanna. Hlutverk henn-
ar er að fialla um ágreining viðskipta-
manna við lánastofnanir og verðbréfa-
fyrirtæki. Guðjón Ólafur er fulltrúi við-
skiptaráðuneytisins og skipaður af Val-
gerði Sverrisdóttur.
Stjómarformaður SBV er Halldór J.
Kristjánsson, bankastjóri Landsbank-
ans. Hann segir að máfið hafi ekki ver-
ið tekið fyrir á vettvangi samtakanna.
„En menn sem gegna stöðu sem þessari
verða að gæta þess að geta verið óháð-
ir gagnvart þeim aðilum sem um er að
ræða. Þannig að ég hef skilning fyrir
því að þessi krafa komi fram.“
Halldór er varkár þegar kemur að
því hvort Guðjón Ólafur hafi að sínu
mati farið yfir strikið. „Ég get bara orð-
að það þannig að ég hef skilning á því
að þessi krafa komi fram.“
Dómsmál?
Guðjón Ólafur segir að það sé hlut-
verk nefndarinnar sjálfrar að taka af-
stöðu til kröfu Búnaðarbankans. Það
verði gert í næstu viku og hann geri
ekki ráð fyrir að taka þátt' í umræðu
um málið sjálfur.
Óljóst er hvaða leiðir Búnaðarbank-
inn hefur ef nefndin fellst ekki á kröfu
bankans, t.d. hvort hægt sé að vísa nið-
urstöðu nefndarinnar til ráðherra, Fjár-
málaeftirlitsins eða annað. Bankinn
gæti vitanlega beitt sér fyrir því að SBV
segðu sig frá úrskurðamefndinni og eins
látið reyna á vanhæfi Guðjóns Ólafs i til-
teknu máli fyrir dómstólum. -ÓTG
Bílslysið í Danmörku:
Stúlkan
komin heim
til Akureyrar
Litla stúlkan frá Akureyri, Sig-
rún Maria Óskarsdóttir, sem lenti
i bílslysi í Danmörku í byrjun
mánaðarins, var flutt með sjúkra-
fiugvél frá Árósum til Akureyrar í
gærmorgun. Fylgdu henni í flug-
vélinni foreldrar hennar, danskur
læknir sem og hjúkrunarfræðing-
ur. Sigrúnu var haldið sofandi í
rúmar tvær vikur og enn er verið
að vekja hana.
Faðir stúlkunnar, Óskar Þór
Halldórsson, segir að nú taki viö
markviss endurhæflng sem óvíst
sé hve langan tíma taki. Sigrún
dvelst á barnadeild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri og segir
faðir hennar hana vera þar í góð-
um höndum afar færra
sérfræðinga. -sbs
Þingmenn á Þingvöllum
Þaö varglatt á hjalla viö opnun fræöslumiöstöövar á Þingvöllum í gær. Meðal þeirra sem mættu voru þingmennirnir
Björn Bjarnason og Össur Skarþhéðinsson, en báöir sitja þeir í Þingvallanefnd, og Rut Ingólfsdóttir. Fræöslumiðstöðin
góöa stendur á Hakinu og er þar sögu Þingvalla gerö skil, meöal annars meö margmiðlunartækni.
Sveinn Valfells leggur fram vantrauststillögu á stjórn SPRON:
Stjórnin hunsar vilja stofnfjáreigenda
Sveinn Valfells, einn fimmmenn-
inganna sem hefur fyrir hönd Bún-
aðarbankans gert tilboð í SPRON,
ætlar að leggja fram vantrauststil-
lögu á stjórn sparisjóðsins. Þetta
ætlar hann að gera á fundi stofnfjár-
eigenda sem stjómin hefur boðað til
þann 12. ágúst. Óskar Sveinn eftir
að tillaga sín verði tekin fyrir sem
fyrsti dagskrárliður á fundinum og
verði hún samþykkt verði ný stjórn
kjörin strax þar á eftir.
í bréfi sem Sveinn hefur sent for-
manni sjóðsstjórnarinnar, Jóni G.
Tómassyni, segir að núverandi
stjóm hafi opinberlega skýrt frá því
að hún hyggist ekki samþykkja við-
skiptasamninga með stofnfé í spari-
sjóðnum sem gerðir verða á grund-
velli samnings umræddra fimm-
menninga við Búnaðarbankann.
Jafnvel þótt forsenda þess samnings
sé að eigendur 2/3 hluta stofnflár
samþykki hann. „Virðist þá engu
máli skipta fyrir stjórnina, þó að
hún sæki umboð sitt til þessara
sömu stofnfláreigenda. Hún lýsir
því einfaldlega yfir að hún hyggist
hundsa vilja þeirra verði hann sá að
gera viðskiptin," segir Sveinn í
bréfi sínu.
í samtali við DV í gærkvöld
kvaðst Sveinn ekki vilja tjá sig frek-
ar um þessa vantraustsyfirlýsingu
sina en sagði yfirlýsinga að vænta í
dag, laugardag. -sbs
Blaðið í dag
Maðurinn bak
við bindið
Áml
Tómasson
ísland
sparkaði í
rassinn á mér
Leonardo Moran
Leiður
á að tala
um bijóst
Slguröur E.
Þorvaldsson
Forsetafram-
bjóðandi í gísl-
ingu skæruliða
Erlent fréttaljós
Undir stækk-
unargleri
Ríkisendur-
skoðunar
Innlent fréttaljós
Svo nærri, en
samt svo
fjarri
Köfun á íslandi
Vakið og sofið
yfir svínum og
hænsnum
Kristinn Gylfi
Jónsson
Mótmælir kvóta
Bæjarstjóm Vest-
mannaeyja sam-
þykkti á fundi sínum
í vikunni tillögu Lúð-
víks Bergvinssonar
bæjarfulltrúa og al-
þingismanns að mót-
mæla nýlegum
ákvörðunum sjávar-
útvegsráðherra um að setja keilu,
löngu, skötusel og kolmunna í kvóta.
Er ráðherrann hvattur til að draga
þessa ákvörðun til baka.
Rmm tankar suður
Fimm stórir olíutankar verða dregn-
ir á næstu dögum frá norðanverðum
Vestflörðum og suður á Kjalames. Þar
verða þeir notaðir sem fóðurgeymslur
fyrir svínabú. Tankamir verða teknir
á Þingeyri, á Flateyri, í Súðavík, í Bol-
ungarvík og á ísafirði og verða dregnir
allir í einu. BB.is greindi frá.
Fagnar Sólheimarannsókn
Sflóm Þroskahjálpar á Suðurlandi
hefur sent frá sér ályktun þar sem
fagnað er þeirri rannsókn sem nú fer
fram á starfsemi Sólheima í Grimsnesi
hjá Ríkisendurskoðun og Félagsmála-
ráðuneyti. Segir að ekki sé unnið á
staðnum með hagsmuni fatlaðra að
leiðarljósi.
Hagnaður íslandsbanka
Hagnaður íslandsbanka nam um 860
milljónum króna fyrir skatta á öðrum
ársfiórðungi. Hagnaðurinn nemur því
um 2 milljörðum króna fyrir skatta á
fyrstu sex mánuðam þessa árs. Eftir
skatta nemur hagnaður fyrra helmings
ársins um 1,6 milijörðum króna eftir
skatta.
/ /
1 /
Takmarkaður aðgangur
Landeigendur þriggja jarða við
Hornaflörð hafa tekið ákvörðun um að
takmarka aðgang hreindýraveiði-
manna að veiðisvæði 8. Bændumir
telja Hreindýraráð hafa úthlutað of
háum hreindýrakvóta þar. Samkvæmt
veiðikvóta Hreindýraráðs mun 30 dýr-
um úthlutað á svæðinu en talið er að
þau séu um 200 alls. RÚV greindi frá.
Forstjóri yfirheyrður
Sigurður G. Guðjónsson, forsflóri
Norðurljósa, var í gær yfirheyrður af
lögreglu um hvemig hann hefði komist
yfir gögn frá Búnaðarbankanum, þar á
meðal yfirlýsingu Fjölmiðlafélagsins
um skuldaskil Norðurljósa. RÚV
greindi frá.
Dregnir af strandstað
Tveir bátar, sem strönduðu við Ytra-
skarð á Snæfiallaströnd í gær, voru
dregnir af strandstað. Það var björgun-
arskipið Gunnar Friðriksson sem bjarg-
aði bátunum. Leki kom ekki að bátun-
um og engin slys urðu á mönnum.
Bankakerfi of dýrt?
Bankaráð Islandsbanka telur banka-
kerfið hérlendis of dýrt í samanburði
við helstu viðmiðunarlönd. í yfirlýs-
ingu ráðsins segir m.a. að samþjöppun
í bankakerfinu sé forsenda hagræðing-
ar og kostnaður íslenska kerfisins tvö-
falt meiri en annars staðar Norður-
löndum. -aþ
Haldið til haga
í frétt DV i gær þar sem sagt var frá
söfhun til styrktar starfi Rauða kross-
ins með ungu fólki var SPRON nefnt í
yfirfyrirsögn. Þar hefði farið betur á að
nefna Sparisjóðina, íslandspóst og
Flugleiöir Frakt sem stóðu að söfhun-
inni í samstarfi við Rauða krossinn.