Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Blaðsíða 22
22
Helcjorbioö 13 V
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002
...kíkt í snvrtibudduna
V
Pilla sem getur
breytt þér í Barbie
Kolbrún Björnsdóttir hefur ínógu að snú-
ast þessa daqana en hún er annar stjórn-
enda Djúpu lauqarinnar á Skjá einum.
Djúpa lauqin fersem kunnugt er íloftið á
hverju föstudaqskvöldi klukkan 22. Kol-
brún qerir fleira en að svamla íDjúpu lauq-
inni þvíhún vinnursem hársnqrtir á hár-
qreiðslustofunni Kontrast íSelásnum.
Léttur oq látlaus farði er einkenni Kol-
brúnarsem var fús að opna snqrtibuddu
sína upp á qátt.
Sólbrúnn og spenqilequr líkami. Falleq húð oq aukin kqnlífslönqun.
Þetta er meðal þess sem nqtt Iqf, Melanotan, er talið qeta fært
fólki. Unnið er að þróun Iqfsins íBandaríkjunum oq Ástralíu oq ef
þessi kraftaverkablanda stenst væntinqar er hún talin qeta breqtt
lífi oq lífsstíl fólks svo um munar.
Þetta kann að hljóma fáránlega en staðreyndin
er sú að lyfjafyrirtæki vinna nú að þróun lyfs
sem gengur undir nafninu Melanotan. Mikið hef-
ur verið fjallað um þetta kraftaverkalyf í erlend-
um fjölmiðlum og það gjarna kennt við Barbie -
enda þykja áhrifin minna á þá ofurkonu - nú eða
félaga hennar, Ken.
Það er ekki að undra að eftirvænting hafi grip-
ið um sig því að það er ekki á hverjum degi sem
fregnir berast af efni sem gerir kroppinn sólbrún-
an, slær á matarlystina og eykur löngun til kyn-
lífs. Ekki er minna vert að lyfið er talið geta ver-
ið fyrirtaks vörn gegn húðkrabbameini.
Upphaf þessa lyfs má rekja til Arizona i Banda-
ríkjunum. Arizona er sólríkt ríki og húðkrabba-
mein vel þekktur sjúkdómur. Vísindamenn hafa
því margir beint sjónum sínum að þeim vágesti
og fyrir fáeinum árum komust tveir slíkir,
Hadley og Levine, að því að sólbrúnkan væri
ekki bara falleg heldur bæri hún líka vott um
heilbrigði. Hún væri til þess fallin að verja húð-
ina gegn sólargeislum.
Þeir félagar byrjuðu að prófa nýtt lyf sem ætl-
að var að gera fólk sólbrúnt. Grænir froskar
fengu fyrsta skammt og á skammri stundu færð-
ist dökkur litur yfir húð þeirra. Því næst var lyf-
ið prófað á golden retriever-hundi og varð feldur
hans með tímanum svartur - en eins og flestir
vita eru slíkir hundar jafnan gulir.
Þá var komið að mannfólki og eftir aðeins sex
daga inntöku var húð fólksins orðin sólbrún -
fólkið naut engrar sólar á þessum tíma. En önn-
ur og meiri virkni lyfsins átti eftir að koma í ljós
því karlkyns þátttakendur í tilraununum greindu
nefnilega frá því að þeim risi gjarna hold við inn-
töku lyfsins. Athygli manna beindist í kjölfarið
að þessum þætti og hvort hugsanlegt að lyfið gæti
virkað svipað og hið viðfræga Viagra. Síðar hef-
ur komið í ljós að Melanotan getur virkað
kynörvandi bæði á karlmenn og konur. Þá benda
rannsóknir til að lyfiö geti verið hjálplegt við að
halda línunum í lagi auk þess sem það virðist
virka á bólur i andliti.
Einhver bið kann að verða á því að Melanotan
fylli hillur apótekanna en ráðgert er rannsóknir
verði stundað enn um sinn. Vonir standa þó til að
lyfið komist á markað eftir þrjú ár. Þar til verð-
ur fólk að notast við hefðbundnar aðferðir við að
gera kroppinn sólbrúnan og fongulegan; að ekki
sé talað um hitt.
Þessi kona þarf svo sem ekki á nýja kraftaverkalyfinu að halda - en hún getur hins vegar notað tímann í
annað en sólböð í framtíðinni.
Vöm fyrir hár og húð
„Ég nota þessa
vörn daglega.
Hún kallast Shelt-
er í Naturaltech-lín
er ítalskt. Það þarf að hrista brúsann þvi hann inniheld-
ur tvískipt efni. Þetta nota ég bæði á likamann og í hárið.
Shelter gefur finan gljáa og ver bæði hár og húö gegn sól og vindi.
Fyrir mér er þessi vörn jafnsjálfsögð og sjampó og tannkrem.“
unni og er frá Davines sem
Gyllt og glært
„Þetta er mjög flott gloss frá fyrirtæki
sem kallast Nee. Framleiðandinn er
reyndar sá sami og býr til hárvörnina
sem ég nefndi áðan. Þetta gloss er raun
blanda af glæru og gylltu. Mjög gott efni.“
Blcikt og gljáandi
„Enn ein varan mín frá Nee. Þetta er bleikt
gloss sem þekur bæði vel og gefur góðan
gljáa. Stundum nota ég það
undir gyllta glossið."
Þægilegt og gott
„Ég kaupi gjama fleiri en eina vöru í sama
merki og þess vegna á ég líka meik frá
Nee. Mér finnast púðurmeik ekki »
sérlega þægileg. Þetta meik hefur
þá kosti að það er þægilegt að bera
það á og gefur létt og eðlilegt útlit. Ég
læt oft smá sólarpúður yfir það. Mér
finnst nauðsynlegt að jafna húðlitinn þegar ég kem
úr morgunsturtunni og þetta hentar mjög vel til
þess.“
Hvítt á augun
„Já, hér er hvítur augnskuggi sem er eiginlega í
kremformi. Maður þarf ekki nota mikið til að fá góða
birtu yfir augun. Svo virkar þetta líka vel á augnlok-
in sem verða ekki þurr. Þetta er líka frá Nee og ég
keypti þetta allt saman í SensusTech sem er hár- og
snyrtistofa í Smáralind."
-■..v /■ ■