Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002
Helqarblaö 30"V
33
Pluto Nash (Eddie Murphy) er
viusæll á skemmtistöðum.
Sambíóin - Pluto Nash +
Aðalgaur-
inn á
tunglinu
Þegar löngBið er á að 100 millj-
óna dollara kvikmynd er sett í
dreifingu þá vísar það aðeins á
eitt: Myndin er misheppnuð. Þessi
vísindi eiga vel við Pluto Nash,
sem beið uppi í hillu í ein tvö ár
áður en ákveðið var að renna
henni með hraði í kvikmyndahús-
in og koma henni svo beint á
myndbandamarkaðinn. Hvað
Eddie Murphy var að hugsa þegar
hann tók að sér að leika nætur-
klúbbseiganda á tunglinu árið 2087
er erfitt að ímynda sér því hann
fær í raun ekkert tækifæri til að
sýna hvað í honum býr. Ef hann
hefur treyst á að eigin hæfileikar
myndu bjarga misheppnuðu hand-
riti þá hefur hann misreiknað sig
illilega.
Hæfileikar Murphys liggja í
kjaftinum. Hann getur þegar best
lætur fengið jarðarfararræðu til að
vera fyndna. Og fyndnustu kvik-
myndir hans eru þær þar sem
hann kjaftar alla í kútinn. Nú er
það ekki svo að hann fái ekki tæki-
færi til að segja brandara í Pluto
Nash, gallinn er að það er erfitt að
ná upp húmor í mynd sem í upp-
byggingu er spennumynd, með
þungri og mikilli sviðsmynd sem
ber oftar en ekki leikarana ofur-
liði. Þegar svo Eddie Murphy er í
aðalhlutverki þá verða árekstrar
sem ekki verða bættir.
Titilpersóna myndarinnar er
fyrrum fangi sem breytir vonlausri
búliu í vinsælasta skemmtistað
tunglsins. Þar eins og annars stað-
ar þar sem glæpir eru við lýði þá
eru til glæpaforingjar sem vilja
eignast allt og alla og vinsældir
næturklúbbs Pluto er þeim þyrnir
í augum. Myndin gengur síðan út á
það hvernig litli maðurinn sigrar
þann stóra, hvernig hið góða sigr-
ar hið illa.
Það verður að segjast eins og er
að Eddie Murphy er á skjön við allt
og alla í myndinni og hefði mynd-
inni farnast betur hefði hún ein-
göngu verið byggð upp sem
spennumynd með ódýrari leikara í
aðalhlutverki þó aldrei verði það
trúverðugt að búið sé að stofna
Litlu Ameriku á tunglinu. Eina
stjörnu fær hún fyrir sviðsmynd
og tæknibrellur.
Leikstjóri: Ron Underwood. Handrit: Neil
Cuthbert. Kvikmyndataka: Oliver Wood.
Tónlist: John Powell. Aöalhlutverk: Eddie
Murphy, Randy Quaid, Rosario Dawson,
Jay Mohr, Luiz Guzman og Pam Grier.
Hilmar Karlsson
^iðskiptaþátturinn
allt það áhugaverðasta í heimi viðskipta í dag
- það borgar sig að hlusta
Landsbankinn
Landsbréf
Útvarpi Sögu fm 94.3
Þáttur um viöskipti og efna-
hagsmál þar sem blaöamenn
Viðskiptablaðsins rýna í það
helsta á markaðnum á hverjum
virkum degi milli klukkan 17 -18
ÆrmúU 17, fOS Oeyff/a
síml: 533 133*4 FaX: 5GB 0499