Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Blaðsíða 56
+- 60
HelQarblað ID'V’"
LAUGARD AGU R 14. SEPTEMBER 2002
íslendingaþættir_________________j
Umsjón
Kjartan Gunnar
Kjartansson
*
r
Vilhjálmur Ámason
hæstaréttarlögmaður verður 85 ára á morgun
Vilhjálmur Árnason hrl., Dalbraut 25, Reykjavík,
verður áttatíu og fimm ára á morgun.
Starfsferill
Vilhjálmur fæddist að Skálanesi í Seyðisfirði og
ólst upp á Hánefsstöðum og Háeyri. Hann lauk prófi
frá Alþýðuskólanum á Eiðum 1935, formannsprófi í
siglingafræði 1937, stúdentsprófi frá MA 1942 og emb-
ættisprófi í lögum frá HÍ 1946, fékk hdl.-réttindi 1948
og hrl.réttindi 1962.
Vilhjálmur starfaði við sjávarútveg og landbúnað
1927-31, var háseti á fiskibátum 1932-37 og vélbátafor-
maður 1937-43, stundaði lögfræðistörf hjá SÍS 1946-48,
starfaði í Félags- og fræðsludeild SÍS 1948-53, var
kennari við Samvinnuskólann 1950-54, skólastjóri
Bréfaskóla SlS 1948-60, stofnaði lögfræðiskrifstofu
með bróður sínum, Tómasi Árnasyni hrl., 1960, og
ráku þeir hana saman til 1972 og síðan Vilhjálmur
einn til 1978 er Ólafur Axelsson hrl. varð meðeigandi.
Þeir ráku stofuna undir nafninu Lögmenn Höfða-
bakka, ásamt Árna Vilhjálmssyni hrl., Eiríki
Tómassyni hrl., og Hreini Loftssyni hdl., en Vilhjálm-
ur dró sig út úr rekstrinum árið 2000.
Vilhjálmur var Inspector scholae í MA 1941-42, for-
maður Orators 1944-45, var ritari Félags Sameinuðu
þjóðanna 1947-52, sat í stjórn Stúdentafélags Reykja-
víkur 1950-51, í stjórn Iðnaðarbanka íslands 1953-54,
í stjórn íslenskra aðalverktaka 1954-84 og stjórnarfor-
maður 1971-84 og 1988, sat í stjórn Skálatúnsheimilis
1970-79, í stjórn Sportvers hf. 1972-84, Herrahússins
hf. og ísbúðarinnar hf. Dairy Queen, stjórnarformað-
ur byggingarfélagsins Breiðabliks hf. 1979-88 og
Kirkjusands hf. 1973-79, og sat í stjóm Verksmiðjunn-
ar Vífilfells hf., Björns Ólafssonar og Þórðar Sveins-
sonar hf. frá 1991.
Fjölskylda
Vilhjálmur kvæntist 21.6. 1946 Sigriði Ingimars-
dóttur, f. 1.10. 1923, fyrrv. ritstjóra Húsfreyjunnar.
Hún er dóttir Ingimars H. Jóhannessonar, f. 13.11.
1891, d. 2.4. 1982, skólastjóra á Flúðum, og Sólveigar
E. Guðmundsdóttur, f. 27.2. 1893, d. 25.1. 1971, hús-
freyju.
Börn Vilhjálms og Sigríðar: Sóiveig, f. 10.3. 1947, d.
26.7. 1995 vistmaður á Skálatúnsheimilinu; Guðrún, f.
31.5.1949, hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri á dval-
arheimilinu Grund, gift Pétri Björnssyni, fram-
kvæmdastjóra og aðalræðismanni Ítalíu á íslandi, og
eru dætur þeirra Marta Sigríöur.Valgerður og Svava;
Árni, f. 4.11. 1952, hrl., kvæntur Vigdísi Einarsdóttur
líffræðingi, og eru dætur þeirra Hulda og Sólveig og
dótturdóttirin Þórdís Huld; meybarn, f. 17.9.1955, d. s.
d.; Guðbjörg, f. 14.12. 1956, lektor í námsráðgjöf við
HÍ, gift Torfa Hrafnssyni Tulinius, prófessor í
frönsku og miðaldabókmenntum við HÍ og eru börn
þeirra Kári og Sigríður; Arinbjörn, f. 14.2. 1963 arki-
tekt, kvæntur Margréti Þorsteinsdóttur fiðluleikara
og eru börn þeirra Þorsteinn og Steinunn en auk
þeirra á hann dótturina, Örnu; Þórhallur, f. 14.2.1963,
markaðsfræðingur.
Systkini Vilhjálms: Þorvarður, f. 17.11. 1920, d. 1.7.
1992, framkvæmdastjóri; Tómas, f. 21.7. 1923, fyrrv.
ráðherra og seðlabankastjóri; Margrét, f. 1.10. 1928,
leiðbeinandi í Kópavogi.
Foreldrar Vilhjálms voru Árni Vilhjálmsson, f. 9.4.
1893, d. 11.1. 1973, útgerðarmaður og skipstjóri á Há-
eyri í Seyðisfirði, og Guðrún Þorvarðardóttir, f. 7.1.
1892, d. 27.10. 1957, húsfreyja. Eftir lát Guðrúnar
kvæntist Árni aftur Magneu Magnúsdóttur frá Hólm-
fastskoti í Innri-Njarðvík en hún og Guðrún voru þre-
menningar.
Ætt
Bræður Árna voru Sigurður á Hánefsstöðum, faðir
Svanbjargar, húsfreyju þar; Hermann, afi Lilju Þóris-
dóttur leikkonu; Þórhallur, afi Snorra Sigfúsar Birg-
issonar tónskálds, og Hjálmar, fyrrv. ráðuneytis-
stjóri, faðir arkitektanna Helga og Vilhjálms. Föður-
systur Vilhjálms voru Sigríöur, móðir Vilhjálms Ein-
arssonar, skólameistara á Egilsstöðum, föður Einars
spjótkastara, og Stefanía skrifstofumaður. Árni var
sonur Vilhjálms, útvegsb. á Hánefsstöðum, bróður
Jóns, langafa Dagnýjar Jónsdóttur, formanns SUF.
Vilhjálmur var sonur Árna, b. á Hofi, Vilhjálmsson-
ar. Móðir Árna á Hofi var Guðrún Konráðsdóttir,
systir Ragnhildar, langömmu Gísla, foður Ingvars,
fyrrv. ráðherra.
Móðir Árna á Háeyri var Björg, systir Stefaníu,
móður Vilhjálms Hjálmarssonar, fyrrv. ráðherra.
Björg var dóttir Sigurðar, b. á Hánefsstöðum, Stefáns-
sonar, að Stakkahlíð, bróður Gunnars, afa Gunnars
Gunnarssonar skálds. Annar bróðir Stefáns var sr.
Sigurður á Hallormsstað, langafi Hjörleifs Guttorms-
sonar, fyrrv. ráðherra. Stefán var sonur Gunnars, b.
á Hallgilsstöðum, Gunnarssonar, ættföður Skíða-
Gunnarsættar, Þorsteinssonar. Móðir Bjargar var
Sigríður Vilhjálmsdóttir, systir Árna á Hofi.
Systkini Guðrúnar voru Arinbjörn, sundkennari i
Keflavík, Steinunn Ragna, kona Björns Franzsonar
tónskálds og Kristín, kona Ólafs Helgasonar læknis.
Guðrún var dóttir Þorvarðar, útvegsb. í Keflavík,
Þorvarðarsonar, beykis í Keflavik, Helgasonar,
langafa Þorvarðar Helgasonar leiklistarfræðings.
Hálfbróðir Þorvarðar, samfeðra, var Þorsteinn, afi
Þorsteins Ólafssonar, fyrrv. landsliðsmarkvarðar.
Móðir Þorvarðar beykis var Guörún Finnbogadóttir,
systir Jakobs, langafa Vigdísar Finnbogadóttur. Móð-
ir Þorvarðar var Guðrún Högnadóttir, langamma
Júlíus Jónasson
tjónaskoðunarmaður verður 50 ára á morgun
Júlíus Jónasson tjónaskoðunarmaður, Víðihvammi
27, Kópavogi, verður flmmtugur á morgun.
Starfsferill
Júlfus fæddist á Dalvík og ólst þar upp. Hann
stundaði nám við Iðnskólann á Akureyri, Iðnskólann
í Reykjavík, MA og Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki
og lauk prófum sem bifvélavirki og bílamálari.
Júlíus starfrækti eigið fyrirtæki á sviði bifreiða-
viðgerða á árunum 1982-98 en er nú tjónaskoðunar-
maður hjá Sjóvá-Almennum.
Þá hefur Júlíus verið tónlistarmaður frá 1965. Hann
hefur leikið í danshljómsveitum, hefur leikið inn á
hljómplötur og diska og stjórnað upptökum og gefið út
eigin tónlist og annarra.
Fjölskylda
Júlíus kvæntist 1981 Mjöll Hólm, f. 19.7. 1944,
skrifstofumanni og söngkonu. Hún er dóttir Frið-
björns Hólm, f. 13.5. 1913, d. 27.4. 1982, rennismiðs í
Reykjavík, og Sigurlaugar Ólafsdóttur Hólm, f. 12.4.
1908 d. 18.9. 1990, húsmóður.
Börn Júlíusar eru Hrefna Björg, f. 29.6. 1974, d. 25.7.
1982; Ellert Þór, f.
29.6. 1974, en kona
hans er íris
Júlíusdóttir; Ólöf
Sólveig, f. 26.11. 1980.
Börn Mjallar eru
Agnar Steinarsson, f.
5.9. 1964 en kona
hans er Matthildur
Þorvaldsdóttir;
Kristín Eva Þór-
hallsdóttir, f. 29.7.
1972 en maður
hennar er Kolbeinn
Einarsson.
Systur Júlíusar eru Nanna Jónasdóttir, f. 16.6.1939,
búsett í Reykjavík; Halla Jónasdóttir, f. 24.8. 1943,
búsett í Reykjavik.
Foreldrar Júlíusar voru Jónas Hallgrímsson, f.
28.10. 1910, d. 13.1. 1993, framkvæmdastjóri á Dalvik,
og Hrefna Júlíusdóttir, f. 7.8. 1914, d. 11.3. 1990,
húsmóðir.
Ólafs Jenssonar blóðbankastjóra. Móðir Guðrúnar
Þorvarðardóttur var Margrét Arinbjarnardóttir, út-
vegsb. í Tjarnarkoti, Ólafssonar bróður Ásbjarnar, b.
í Innri-Njarðvík, afa Ásbjarnar Ólafssonar stórkaup-
manns. Systir Arinbjarnar var Guðlaug, amma Bene-
dikts Waage, forseta ÍSÍ. Hálfbróðir Arinbjarnar var
Sveinbjörn Ólafsson, kaupmaður í Keflavík, faðir
Kristjönu, eiginkonu Hans Peter Duus kaupmanns og
Ólafs, föður Halfdan Olafsson, saksóknara í Khöfn.
Systir Margrétar var Steinunn, húsfreyja i Mountain
í Norður-Dakóta, langamma Wayne Gudmundson,
ljósmyndara og prófessors í ljósmyndun við Moor-
headháskóla í Minnesota. Arinbjörn var af Njarðvík-
urætt, sonur Ólafs, verslunarstjóra í Innri-Njarðvík,
Ásbjarnarsonar, b. í Njarðvík, Sveinbjarnarsonar,
bróður Egils, föður Sveinbjarnar rektors, föður Bene-
dikts Gröndals. Móðir Margrétar Arinbjarnardóttur
var Kristín, dóttir Björns, b. á Sjávarhólum á Kjalar-
nesi, Tómassonar Bech söðlasmiðs, og konu hans,
Margrétar Loftsdóttur, systur Odds, afa Bjarna Jóns-
sonar vígslubiskups. Systir Björns Tómassonar var
Ásta, kona Peter Duus kaupmanns og móðir Hans
Peter Duus kaupmanns í Keflavík.
Afniælí
Laugard. 14. september
90 ÁRA
Jóna Sveinbjarnardóttir,
Hlaöhömrum 2, Mosfellsbæ.
Hún tekur á móti ættingjum og
vinum á Hlaðhömrum í dag kl.
15.00-17.00.
Rósa Þorsteinsdóttir,
Engihjalla 3, Kópavogi.
80ÁRA____________________
Björg Jónsdóttir,
Hvannabraut 5, Höfn.
Sveinn Guðbjarnason,
Sandabraut 8, Akranesi.
75 ÁRA___________________
Áslaug Kristjánsdóttir,
Álfabyggð 24, Akureyri.
Jón K. Guömundsson,
Gullsmára 7, Kópavogi.
60 ÁRA___________________
Árni Ásgrímur Pálsson,
Gullsmára 9, Kópavogi.
Guömundur Agnar Axelsson,
Yrsufelli 20, Reykjavík.
Svanfríöur Larsen,
Mosateigi 10, Akureyri.
50 ÁRA___________________
Auöur Höskuldsdóttir,
Holtagötu 3, Drangsnesi.
Ásthildur B. Snorradóttir,
Hlaðhömrum 30, Reykjavik.
Gunnlaugur Sverrisson,
Arnarsíðu 8b, Akureyri.
Pálína Aöalbjörg Pálsdóttir,
Laugavöllum 15, Egilsstöðum.
Rúnar Hafberg Jóhannsson,
Dvergagili 11, Akureyri.
Sigurður Guðni Sigurösson,
Jörundarholti 168, Akranesi.
Siguröur Örn Magnússon,
Bakkaseli 5, Reykjavík.
Þórdís Sigríöur Mósesdóttir,
Klapparholti 10, Hafnarfirði.
Þráinn Öm Friöþjófsson,
Hamraborg 26, Kópavogi.
40 ÁRA___________________
Bjöm Gísli Halldórsson,
Rimasíðu 23b, Akureyri.
Guömundur L. Sverrisson,
Aðalstræti 105, Patreksfirði.
Haukur Valdimarsson,
Rfuhjalla 4, Kópavogi.
Helgi Jensson,
Hjarðarhlíð 1, Egilsstöðum.
Höröur Valdimarsson,
Krókamýri 80, Garöabæ.
Júllus Ragnar Pétursson,
Hrisholti 19, Selfossi.
Lúövík Eiríksson,
Barónsstíg 31, Reykjavík.
Svanhvrt Sverrisdöttir,
Huldubraut 22, Kópavogi.
Þorsteinn Guöbrandsson,
Kjarrási 10, Garðabæ.
Öm Guðmundsson,
Kjarrvegi 15, Reykjavík.
Sunnud. 15. september
85 ÁRA___________________
Ágúst Nathanaelsson,
Norðurbrún 1, Reykjavík.
Björg Guöný Kristjánsdóttir,
Hrafnistu, Hafnarfiröi.
Karólína Sigurpálsdóttir,
Laugarbrekku 15, Húsavík.
Ragnar Elíasson,
Árskógum 8, Reykjavík.
Sveinbjörg Ásgrímsdóttir,
Hjallaseli 55, Reykjavík.
80ÁRA
Guðlaug Guðlaugsdóttir,
Holti, Garðabæ.
Hulda Jónsdóttir,
Guðrúnargötu 4, Reykjavík.
75ÁRA
Jónína V. Þorbjörnsdóttir,
Austurbrún 4, Reykjavík.
Karólina Þorsteinsdóttir,
Sporðagrunni 4, Reykjavík.
Pálína Pálsdóttir,
Reynihvammi 35, Kópavogi.
70 ÁRA
Bjöm Magnússon,
Sæviðarsundi 33, Reykjavík.
Bragi Leopoldsson,
Völvufelli 12, Reykjavík.
Kristbjörg A. Magnúsdóttir,
Tröllagili 14, Akureyri.
60 ÁRA
Jóhannes Guömundsson,
Heiðarhjalla 7, Kópavogi.
Jón Baldvin Stefánsson,
Geitlandi 1, Reykjavík.
Oddný Aöalsteinsdóttir,
Stararima 55, Reykjavík.
50 ÁRA____________________
Anna Lísa Óskarsdóttir,
Bakkahlíð 19, Akureyri.
Bergljót Vilhelmína Jónsdóttir,
Drafnarbraut 2, Dalvík.
Gísli Gissur Ófeigsson,
Mávahlíö 21, Reykjavík.
Guöbjörg 0. Ragnarsdóttir,
Meðalholti 8, Reykjavík.
Guölaug Lýösdóttir,
Suöurmýri 46a, Seltjarnarnesi.
Höröur Óskarsson,
Grundarvegi 13, Njarðvík.
Ingibjörg Ragnh. Vigfúsdóttir,
Lindarbraut 15a, Seltj.nesi.
Sigríöur Sigurðardóttir,
Ásvöllum lOa, Grindavík.
Sigrún Ágústsdóttir,
Hjallabraut 9, Þorlákshöfn.
40 ÁRA
Benedikt Arnarson,
Rfuseli 14, Reykjavík.
Guörún Áslaug Einarsdóttir,
Eikjuvogi 28, Reykjavík.
Ingibjörg Jónsdóttir,
Bugðulæk 20, Reykjavík.
Ingimundur Birnir,
Leifsgötu 26, Reykjavík.
Konráö Gylfason,
Rfuseli 41, Reykjavík.
Margrét Kristinsdóttir,
Dverghömrum 12, Reykjavík.
Sigríöur Logadóttir,
Markarflöt 21, Garðabæ.
Sigurður Oddsson,
Jörundarholti 100, Akranesi.
Símon Þór Bjarnason,
Kirkjugerði 16, Vogum.
Steinunn A. Kristjánsdóttir,
Hringbraut 87, Reykjavík.