Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Blaðsíða 31
LAUG ARDAGU R l^. SEPTEMBER 2002
HelQorhloö H>"V
DV-Sport metur meistaraefnin úr Vesturbænum:
Reynslan gæti ráðið úrslitum
- og tryggt KR-ingum sinn 23. íslandsmeistaratitil frá upphafi
KR-ingar eru í stöðu sem þeir þekkja vel.
Framan af tíunda áratug síðustu aldar virt-
ust þeir ekki vera í stakk búnir til að
takast á við þá pressu sem fylgdi því að að
vera við toppinn í lokaumferðunum en í
dag hefur þetta sama lið unnið tvo íslands-
meistaratitla og hefur öðlast gífurlega
reynslu, reynslu sem verður dýrmæt á
morgun.
;.,0
Sigursteinn Gíslason
Sigursteinn hefur veriö mikið meiddur i
sumar og er ekki í sínu besta formi. Hefur misst
hraða og á því oft í erfiðleikum vamarlega. Hann
er hins vegar mikill karakter og fæddur
sigurvegari enda unnið sjö íslandsmeistaratitla á
ferlinum. Maður sem þrífst á svona stórleikjum.
Leikir Mörk Stoös. Spjöld DV-Sport
4 0 0 --0 3,00
Valþór Halldórsson
Fékk það erfiða hlutverk að taka við af Krist-
jáni Finnbogasyni í marki KR fyrir stuttu. Hefur
staðið sig framar vonum en líður fyrir hæð og
styrk. Veikur í úthlaupum og óöruggur með bolt-
ann á tánum en hefur sýnt að hann er góður á
milli stanganna.
Leikir Mörk Stoðs. Spjöld DV-Sport
3 -5 0 - 0 3,67
Odagur í úrslita-
leik Fylkis og KR
í Símadeild karla
- Fylkisvöllur, sunnudagur 14.00
.5
Mikið kemur til með að mæða á bakvörðum
KR í leiknum enda treysta Fylkismenn mikið á
kantmenn sína í sóknarleiknum. Sigursteinn og
Jökull verða að klára Sævar og Theódór ef leik-
urinn á að vinnast. KR-vörnin mun væntanlega
verjast aftarlega til að gefa ekki svæði á bak við
sig enda liggur styrkur hennar á öðrum sviðum
en að vera í kapphlaupi við eldfljóta sóknar-
menn Fylkis.
Jökull Elísarbetarson
Jökull hefur vaxið mikið í sumar. Hann átti í erf-
iðleikum í byrjun en hefur fengið aukið sjálfstraust
eftir því sem leikjunum hefur fjölgað. Hann er fljót-
ur og grimmur og skilar boltanum vel frá sér i stuttu
spili. A í vandræðum með lengri sendingar auk þess
sem hann á það til að missa menn inn fyrir sig.
Leikir Mörk Stoðs. Spjöld DV-Sport
16 0 1 -0 3,25
Það hafa verið miklar sveiflur
hjá KR-ingum undanfarin þrjú ár.
Liðið varð íslandsmeistarari árið
2000, stóð í botnbaráttu í fyrra en í
ár hefur liðið risið upp á nýjan
leik og hefur ásamt Fylki borið
höfuð og herðar yfir önnur lið á
landinu.
KR-liðið hefur notið þess að
hafa fengið til sín ferskan og fjör-
mikinn þjáifara, Willum Þór Þórsson,
Gunnar Einarsson
Gunnar er sterkur og fljótur vamarmaður
með mjög góðar sendingar. Hann á það hins
vegar til áð staðsetja sig vitlaust og getur brotið
ansi klaufalega af sér, sem hefur oft verið KR-
ingum dýrkeypt. Hefur ekki mikið sjálfstraust og
missir oft móðinn ef iRa gengur.
Leikir Mörk Stoðs. Spjöld DV-Sport
15 1 0 -0 3,00
Þormóöur Egilsson
Þormóður er hjartað í KR-liðinu. Hann hefur
spilað frábærlega í sumar og leitt KR-liðið með
glæsibrag. Þormóður er sterkur í návígum, les
leikinn vel og stjórnar liðinu eins og hershöfð-
ingi. Hann hefur misst hraða en bætir það upp og
gott betur með reynslu og skynsemi.
Leikir Mörk Stoðs. Spjöld DV-Sport
^16 1 1 -0 3,68
32 stig
9 mörk í
plús
fyrir
timabilið og á hann ekki síst þátt í því að
andinn í liðinu er allur annar en hann
var í fyrra. Baráttuandinn er kominn
í liðið á nýjan leik eftir ládeyðuna í
fyrra og Willum sjálfur gefið tóninn
með líflegum töktum á hliðarlínunni.
KR-ingar hafa yflr að ráða besta
leikmannahópnum í Símadeildinni og
það hefur gert það að verkum að þeir
hafa getað leyst vandamál sem hafa komið
upp vegna meiðsla og leikbanna.
KR-ingar njóta þess einnig að
innan raða liðsins eru margir
mjög leikreyndir menn sem hafa
verið mjög sigursælir í gegnum
tíðina. Það mun fleyta liðinu langt
i leiknum á morgun því að
reynsla í leikjum á borð við þenn-
an er gífurlega dýrmæt.
KR-ingar hafa grætt á því að
geta einbeitt sér að deildinni. Þeir
duttu út úr bikarnum í 16-liða úr-
slitum og voru í Evrópukeppninni
í sumar og það hefur gert það að
verkum að minna álag hefúr verið
á liðinu en t.d. Fylkismönnum.
Pressan er líka minni á KR því
að þeir hafa unnið tvo íslands-
meistaratitla á síðustu þremur ár-
um öfúgt við Fylkismenn sem eru
enn að reyna að landa þeim fyrsta
og eru brennimerktir hrakforum
síðustu tveggja ára þar sem þeir
klikkuðu á lokasprettinum.
-ósk/ÓÓJ
n
Þorsteinn Jónsson
Þorstemn er ekki i KR-liðinu vegna frábærra
knattspyrnuhæfileika. Hann er baráttuhundur með
mikla yfirferð. Þorsteinn er reynslumikill og sterkur
í loftinu en á í vandræðum með að skila boltanum al-
mennilega frá sér. Hann er enn svolítið villtur og á
til að skilja stór svæði opin á miðjunni fyrir vikið.
Leikir Mörk Stoös. Spjöld DV-Sport
15 0 0 -0 2,80
i
íg
Þetta er kannski staðan þar sem KR-ingar gætu
lent undir í baráttunni. Sigurvin og Veigar Páli eru
fyrst og fremst sóknarmiðjumenn og þurfa því held-
ur betur að bretta upp ermarnar og skila góðri
arnarvinnu ef KR á að hafa yfirhöndina í
miðjuslagnum. Þorsteinn verður að skila boltanum
almennilega frá sér og þarf að koma boltanum eins
fljótt og auðið er til Sigurvins eða Veigar Páls til að
þeir komist inn í leikinn sem fyrst.
Sigurvin Ólafsson
Sigurvin virðist vera að nálgast sitt gamla
form eftir erfið ár þar sem hann var þjakaður af
meiðslum. Hefur fundið sig vel í leikskipulagi
KR. Hann er með frábæra yfirsýn og sendingar
og mjög góður í að hlaupa í opin svæði í vömum
andstæðinga KR.
Leikir Mörk Stoðs. Spjöld DV-Sport
W 10 5 1 -0 3,50
Veigar Páll Gunnarsson
Veigar Páll hefur átt frábært sumar. Hann er gíf-
urlega duglegur og leikinn með knöttinn. Nýtti fær-
in ekki vel framan af móti en hefur skorað upp á
síðkastið. Hann er hins vegar ekki nægilega góður
skotmaður auk þess sem hann leitar stundum tlók-
inpa leiða eins og leikinna manna er oft siður.
Leikir Mörk Stoðs. Spjöld DV-Sport
15 5 2 -0 4,00
Arnar Jón Sigurgeirsson
Amar Jón ætti að hafa alla burði til að vera fyr-
irtaks vængmaður. Hann er fljótur og leikinn en
það er eitthvað sem gerir það að verkum að hann
hefur ekki náð að slá i gegn. Hann vantar á löngum
köflum skap og baráttuvflja tfl að nýta alla þá hæfi-
leika sem hann hefur. Verður að bæta fyrirgjafir.
Leikir Mörk Stoðs. Spjöld DV-Sport
16 1 2 -0 2,50
Einar Þór Daníelsson
Einar Þór hefur ekki verið svipur hjá sjón i ár
miðað við undanfarin. Það stenst honum enginn
snúning þegar hann er upp á sitt besta en hefur ver-
ið þjáður af meiðslum í allt sumar og því ekki sýnt
sitt besta. Ótrúlega leikinn og hugmyndarikur leik-
maður sem getur unnið leiki upp á sitt einsdæmi.
Leikir Mörk Stoðs. Spjöld DV-Sport
13 2 3 -0 3,08
Upphitun
hjáKR
KR-ingar ætla að
hittast í KR-heimil-
inu kl. 11.30 á
sunnudaginn.
Þar verður boðið
upp á andlitsmálun
fyrir böm og full-
orðna, kaffi, kökur
og pizzur auk þess
sem boðið verður
upp á strætóferðir í
Árbæinn.
Miðar á leikinn
eru seldir á bensín-
stöð ESSO á Ægi-
síðunni fyrir leik-
inn.
Siguröur Ragnar Eyjólfsson
Sigurður Ragnar hefur reynst KR-ingum happa-
fengur í sumar. Hann hefur kannski ekki verið að
spila manna best úti á veflinum en hann hefúr skor-
að mörkin sem skipt hafa máli. Ekki nógu öflugur í
loftinu miðað við hæð og mætti vera grimmari í ná-
vígum. Góður skotmaður með mikið sjálfstraust.
Leikir Mörk Stoðs. Spjöld DV-Sport
15 10 4 -1 3,00
.s
<8
Það mun mikið koma til með að mæða á Siguröi
Ragnari í þessum leik. Hann þarf að ná að tengjast þeim
Sigurvini og Veigari vel strax i byrjun því annars er
hætta á að hann verði hálfeinmana í framlínu KR-inga.
Sigurður ætti að geta nýtt sér að Þórhallur Dan er slak-
ur að dekka menn inni í teig. Það er vonandi fyrir KR-
inga að Einar Þór verði heill heflsu því liðinu hefur
gengið illa í mikilvægum leikjum þegar hans hefur ekki
notið við.
Kristinn Hafliöason
Kristinn hefur veriö meiddur meira og minna
í allt sumar og er ekki í neinu formi. Hann vant-
ar tilfinnanlega hraða tfl aö spfla á miðjunni hjá
KR og kemst sennilega ekki í form á þessu tíma-
bili. Kristinn er þó fjölhæfur leikmaður með mik-
inn karkater sem gott er að hafa á bekknum.
Leikir Mörk Stoös. Spjöld DV-Sport
9 0 1 - 0 2,25
Guömundur Benediktsson
Sú var tíðin að fáir leikmenn á Islandi stóðust
Guðmundi Benediktssyni snúning. Það tflheyrir
fortíðinni því í dag er Guðmundur langt frá sinu
besta. Hann er hálfónýtur í hnjánum eftir margar að-
gerðir og hefur misst allan sprengikraft. Hefur góða
yfirsýn og það myndast afltaf spfl í kringum hann.
Leikir Mörk Stoös. Spjöld DV-Sport
14 0 1 -0 2,50