Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Blaðsíða 36
36
Helqarblaci DV
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002
Brölt um
Botnssúlur
Botnssúlur eru einn besti
útsýnisstaður meðal fjalla
í klukkustundarfjarlæqð
frá Reykjavík. Þær eru í
rauninni fjallaklasi sem
býr qfir ýmsum leyndar-
málum líkt oq hinir föqru
dalir við rætur þeirra.
í Súlnadal liátt uppi í Botnssúlum cr skálinn Bratti
sem er í eigu íslcnska alpaklúbbsins. bar er ágætt að
á og fá sér nestisbita.
Innst í Brynjudal lcynast fallegir fossar hátt yfir grónum
dalbotni eins og þessi nafnlausi blæjufoss í Þórisgili.
Vaskir gönguinenn á leið upp Sandhrygg áleiðis á
Botnssúlur. Þetta er greiðfær og hindrunarlaus ganga
en nokkuð löng.
Ferðalangar á leið úr Súlnadal niður á hina fornu
Leggjabrjótsleið sem liggur meðfram Sandvatni sem
blasir við. Fjallið í baksýn heitir Búrfell.
Þótt haustið sé í rauninni gengið I garð er engin
ástæða til þess að láta það stöðva sig frá því að ganga
á fjöll. Haustið er nefnilega besti tíminn til þess að
stunda fjallgöngur því á svölum og lognkyrrum haust-
dögum er loftið svo tært að útsýni af fjallatindum
verður aldrei betra.
Rétt í nágrenni Reykjavíkur, nánar tiltekið fyrir
botni Hvalfjarðar, gnæfa Botnssúlur sem eru meðal
tignarlegustu og fallegustu fjalla landsins og auk þess
þannig staðsettar að af þeim er geysimikil útsýn.
Botnssúlur eru í rauninni íjallaklasi sem teygir
efstu tinda sina upp undir 1100 metra yfir sjó. Hæsta
súlan er Syðstasúla sem nær 1096 metra hæð yfir sjó.
Algengt er að ganga á hana og er þá oftast farið frá
Svartagili við Þingvelli og gengið vestan Súlnagils sem
leið liggur upp á fjallið. Syðstasúla er allbrött og mörg-
um vex í augum að ganga á hana.
Botnssúlur standa í raun fyrir botni tveggja dala
sem skerast inn úr Hvalfirði og er Botnsdalur nyrðri
en Brynjudalur syðri. Milli dalanna er lágur háls sem
nefnist Hrísháls. Úr Botnsdal er auðvelt að finna varð-
aða leið sem liggur úr Botnsdal, upp á Hrísháls og það-
an sunnan Botnssúlna allt til Þingvalla. Þetta er hin
forna Leggjabrjótsleið sem forðum er talin hafa verið
alfaraleið manna sem riðu til þings á Þingvöllum. Á
miðöldum komu kaupskip að landi í Maríuhöfn í Kjós
og þaðan er greið leið inn með Hvalfirði, inn Brynju-
dal og um Leggjabrjót til Þingvalla.
Laugardaginn fyrir réttri viku lá leið blaðamanns
DV á þessar slóðir og var ákveðið að leggja á Botnssúl-
ur úr Brynjudal.
Brynjudalur er einkar fallegur og sérstaka athygli
vekja hinir tignarlegu Þrándarstaðafossar sem fljót-
lega verða á vegi ferðamanns. Við fremsta bæ í daln-
um sem heitir Hrísakot er gott að skilja bilinn eftir og
arka sem leið liggur upp á hinn lága Hrísháls. Rétt fyr-
ir framan skógræktargirðinguna við Hrísakot fellur
Laugalækur niður hlíðina og þar mun vera 33 gráðu
heit jarðlaug sem okkur tókst samt ekki að finna.
Þegar upp á Hrísháls er komið verður hin forna
Leggjabrjótsleið fyrir og gott að fylgja henni upp á
brúnimar. Leið okkar var heitið á Miðsúlu og því
stefndum við sem leið lá upp eftir Sandhrygg sem
gengur fram úr fjallinu. Þetta er greið leið og aflíðandi
halli og engar torfærur á leiðinni, jafn bratti nær alla
leið á tindinn og sést marka fyrir slóð á hryggnum
þegar ofar dregur.
Hvað sé ég?
Af tindi Miðsúlu, sem er reyndar kölluð Botnssúlur
á sumum kortum er geysilega víðsýnt. í norðri má
þekkja Baulu í Borgarfirði, Tröllakirkju á Holtavörðu-
heiði og nær kúrir Hvalvatnið undir Hvalfellinu sem
rís fyrir botni Botnsdals. Eiriksjökull, Þórisjökuli og
Fanntófell blöstu við böðuð í haustsólinni og í austri
þekktum við Skjaldbreið, Hlöðufell, Jarlhettur, Kerl-
ingarfjöll, Heklu, Tindfjöll, Mýrdalsjökul, Eyjafjalla-
jökul og hinn hornótta Löðmund á Landmannaafrétti.
Til austurs sést Iláasúla fremst en fjær Jarlhettur og
Hagafellsjökull sem gengur út úr Langjökli.
í suðri lá landið eins og kort fyrir fótum okkar og úr
Þingvallavatni gátum við rakið silfurþræði Sogsins
allt til sjávar en við hafsbrún stóðu Vestmannaeyjar í
réttri röð. Þetta var dásamlegt og aldrei bragðast kakó
og ostasamloka betur en þegar maður er búinn að rog-
ast með hitabrúsann upp um 1000 metra eða svo.
Heimsókn í Bratta
Af tindinum er sæmilega greiðfært inn eggjar fjalls-
ins og niður á lágan röðul fyrir botni Súlnadals sem
skerst inn á milli Syðstusúlu og Miðsúlu. Þar innst í
dalnum er lítill fjallakofi sem er í eigu Islenska alpa-
klúbbsins og heitir Bratti. Þetta er vistlegur staður og
þar er gott að sitja á veröndinni og fá sér kakó og lesa
undarlegar færslur í gestabók skálans um týnd skíði,
vond veður og menn sem verja jólunum þarna fjarri
heimsins glaumi.
Það er hæg leið niöur dalinn og ágætt að koma inn
á hina fornu Leggjabrjótsleið aftur við Sandvatn og
fylgja henni aftur niður Hrísháls og á upphafspunkt
ferðalagsins. Það er líka hægt að fara sjónhending nið-
ur mjög brattar grasbrekkur meðfram Þórisgili og
virða fyrir sér stórkostlega fallega fossa sem þar leyn-
ast fjarri alfaraleið. Bæði í Þórisgili og í Þrengslum í
Brynjudalsá er háir og fallegir fossar sem samt hafa
ekki nafn nema þá kannski í munni örfárra heima-
manna.
Á leið okkar gegnum kjarrið á Hríshálsi og eins í
dalbotninum sjálfum fundum við talsvert magn af
gríðarstórum aðalbláberjum, krækiberjum og bláberj-
um sem voru komin að fótum fram vegna aldurs en