Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Blaðsíða 41
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 Helcjctrbiaö 3Z>"V 45 Leikfélagi Reykjavikur sem hún fékk fyrsta „alvöru“ hlutverkið sem var i Fröken Nitouche. „Þetta er óperetta og það kom til með þeim hætti að Indriði Waage kom til Hafnarfjarðar og var okkur amatörunum til aðstoðar. Skömmu seinna bauð hann mér hlutverk." - Herdís naut tilsagnar hjá Har- aldi Björnssyni um hríð en þegar Lárus Páisson leikari stofnaði leik- listarskóla varð hún meðal fyrstu nemendanna. Hún ætlaði síðan að fá skólavist á Royal Academy of Dramatic Art og fékk þar skólavist og hóf námið. „Þá vildi það til að mannsefni minu, Gunnlaugi Þórðarsyni, var boðið starf forsetaritara hjá Sveini Björnssyni, fyrsta forseta lýðveldis- ins, en hann hafði annars ætlað í framhaldsnám til London. Svo ég fór náttúrlega heim aftur og var ekki nema þrjá mánuði á skólanum. En ég lærði heilmikið.“ Yngst og lifa enn Herdís var síðan í hópi sextán leikara sem voru fastráðnir við Þjóð- leikhúsið þegar það tók til starfa fyr- ir röskum íimmtíu árum. Hún og Ró- bert Arnfinnsson voru ungu leikar- arnir í þeim hópi og eru þau einu sem enn lifa. Herdís virðist hafa náð að sá leikhúsbakteríunni í hugskot bama sinna því auk leikstjórans Hrafns er Tinna Gunnlaugsdóttir leikkona dóttir Herdísar og síðastlið- ið vor útskrifuðust tvö barnabörn hennar úr leiklistarskólanum, Ólaf- ur Egilsson Tinnusonur og Tinna Hrafnsdóttir. „Það var aldrei talað um leiklist með rómantik á mínu heimili. Það var ailtaf á hreinu að mamma var bara að fara í vinnuna og það hefur stundum komið mér á óvart að af- komendur mínir sýni þessu áhuga.“ Herdís starfaði hjá Þjóðleikhúsinu til loka formlegrar starfsævi og vann með öllum leikhússtjórum sem hafa gegnt starfmu. Hana dreymdi skömmu eftir að Þjóðleikhúsið opn- aði að hún stóð á tröppum þess og horfði á Alþýðuhúsið við Hverfis- götu brenna. „Ég túlkaði það svo að leikhúsið yrði fyrir mikilli gagnrýni almenn- ings því eldur táknar ófrið í draumi. Guðlaugur Rósinkranz sem var fyrsti leikhússtjórinn var mikið gagnrýndur fyrir nánast allt sem hann gerði. En hann sinnti starfmu vel og eitt sem Guðlaugur gerði og var ómetanlegt var að hann var óþreytandi að fá hingað erlenda listamenn sem þurftu að miililenda á leið til Ameríku. Eftir innilokun stríðsáranna var þetta gluggi út í heiminn og það var Guðlaugur sem opnaði hann.“ - Herdís gæti sagt miklu meira um ólíkan stíl hinna ýmsu leikhús- stjóra en hún segir að Sveinn Einars- son hafi hrist upp í leikhúsinu og haft gaman af því að ögra fólki og Stefán Baldursson hafi verið réttur maður á réttum tíma. Það er komið haust - Býstu við að fá önnur tilboð um kvikmyndaleik í framtíðinni? „Framtíðina? Ég lít nú á þetta sem nokkurs konar „Indian summer“. Ég myndi ekki segja að ég væri á upp- leið. Það er komið haust en það er alltaf gaman þegar koma yndislegir dagar á haústin og þá finnst okkur það vera besti árstíminn. Þetta er eins í lífinu. Mér finnst af- skaplega gaman þegar eitthvað kem- ur upp og finnst ég vera enn í fullu fjöri en ég geri ekki ráð fyrir að verða neitt á leiksviði i vetur sem ég veit um og mér er það ekkert kapps- mál því að ég hef nóg að gera. Ég hef mikinn áhuga á guðspeki og hún hefur kennt mér að lífið er eins og kvikmynd þar sem myndin er í rauninni aðeins ljósgeisli á tjald- inu. Eins og okkar líf á þessari jörð. Við erum ekkert nema ljós sem lifir stutta stund og hverfur svo.“ -PÁÁ |5 '690691' r050009l í:. hius- OG VETRARTISKAN '•« 2002-2003 ||fi fk M Oi/Ai IS' *T. AUSTUBLEIÐ ARGRET EIR T HERINE ZETA DYRMÆTjAR GJAFIR ttleiddi tvó is Björn Arni missti tvo bræour MAKALAUST LIF DYRM/ETUSTU GJAFIRNAR - Nanna Christiansen fékk tvö íslensk böm til ættleiðingar TIL jpRA MINNA - Bjöm Ámi Ólafsson missti tvo bræður sína af slysförum. Áhrifamikil frásögn ungs manns. Nýtt líf PTEMBER MEST LESNA KVEÉNABLAÐ / / AISLANDI ÞÆR EIGA WO AF „GULLDRENGJUNUM" OKKAR - Rætt við mæður kappanna Eiðs Smára Guðjohnsens knattspymumanns og Ólafs Stefánssonar handknattleiksmanns. -TÍMARITIÐ SEM TALAÐ ER UM Matur - Bækur - Snyrting - Ferðamál - Stjörnuspá og margt, margt íleíra. Ármúli 17, IOS IteyfciavíXc SBÍmi: 533 1334 fax.- 5GB 0453 ..þafi sem fagmaðurinn notar! WWW.ISOl.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.