Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2002, Síða 6
6
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002
Fréttir
Ráðherra fór offari þegar hann rak framkvæmdastjóra Kvikmyndasjóðs:
Þorfinnur fer að
líkindum fram á bætur
- formaður Kvikmyndasjóðs segir traust enn fyrir hendi
Þorfinnur
Ómarsson er aftur
kominn til starfa
sem framkvæmda-
stjóri Kvikmynda-
sjóðs, eftir að
menntamálciráð-
herra vék honum
frá störfum í sum-
ar vegna meintrar
bókhaldsóreiðu.
Sérstök nefnd sem skipuð var til að
fjalla um mál Þorfinns hefur komist
að þeirri niðurstöðu að brottvikn-
ingin hafi verið tilhæfulaus og mun
Þorfmnur að líkindum fara fram á
bætur.
Ýmis orð, og sum óvægin, féllu í
kjölfar brottvikningar Þorfinns í
sumar og héldu ýmsir því fram að
pólitískur óþefur væri af málinu.
Vilhjálmur Egilsson, formaður
stjórnar Kvikmyndasjóðs, sagði þeg-
ar DV náði tali af
honum í gær, að
hann væri búinn
að hringja í Þor-
fmn og bjóða hann
velkominn til
starfa. „Ég sagði
þegar þetta gekk
yfir í sumar að ég
vonaðist til að
hann kæmi aftur
til starfa og það hefur orðið. Nú er
það helsta ósk mín að við getum átt
góðan sprett saman til áramóta,"
segir Vilhjálmur.
Nefndin átelur vinnubrögð ráð-
herra í málinu og segir m.a. að Þor-
fmnur hafi ekki notið andmælarétt-
ar. Aðspurður hvort niðurstaðan sé
ekki áfellisdómur yfir stjómvöldum
segist Vilhjálmur ekki vilja taka af-
stöðu til þess heldur horfa fram og
leitast við að ná árangri. Spurður
hvort traust ríki
enn milli hans og
Þorfinns játar Vil-
hjálmur því. „Mér
er í grundvallarat-
riðum vel við Þorf-
inn og treysti mér
vel til að vinna
með honum áfram.
Vilhjálmur vill
ekki svara þeirri
spumingu hvort menntamálaráð-
herra hafi ekki verið of bráður á sér
þegar hann rak Þor-fmn. „Ég vil
bara fá að vera í friði og vinna með
Þorfinni," segir Vilhjálmur.
Ekki langrækinn maður
Þorfinniu- Ómarsson segir að síð-
ustu tveir mánuðir hafi verið erfiðir
en hann fagnar niðurstöðu nefndar-
innar mjög. „Ég er mjög ánægður yf-
ir að þetta mál skuli vera að baki og
ég geti snúið mér aftur að því sem ég
hef mestan áhuga á, þ.e.a.s. vinn-
unni minni.“
Spurður um eftirmál segir Þor-
finnur að ekki hafi gefist tími tU að
ræða þau en hann hafi aðeins þegið
hálf laun síðustu mánuði og eigi eft-
ir að ræða málið betur við lögmann
sinn. í kjölfarið muni hann eiga fund
með menntamálaráðherra eftir helgi.
Þorfinnur er sammála Vilhjálmi
Egilssyni um nauðsyn þess að horfa
fram en ekki aftur. „Ég er ekki lang-
rækinn maður.“
Tómas Ingi Olrich menntamála-
ráðherra vill ekki leggja mat á nið-
urstööu nefndarinnar að svo komnu
máli en segist hafa brugðist við með
því að setja Þorfmn aftur inn í
starfið. Hann sagði óljóst hvort
ríkið hefði hugsanlega skapað sér
bótaskyldu eða hvort hann hefði
breytt ranglega. -BÞ
REYKJAVÍK AKUREYRl
Sólarlag í kvöld 19.33 19.18
Sólarupprás á morgun 07.10 06.55
Síödegisflóö 18.38 23.11
Árdegisflóö á morgun 06.52 11.25
Súld eða rigning
Suölæg eða breytileg átt, víöa 3 til
8 metrar á sekúndu og súld eða
dálítil rigning af og til, en úrkomulítið
í kvöld og nótt.
Þorfinnur
Ómarsson.
Tómas Ingi
Olrich.
Bátar varaðir viö
„Ég var alveg
hissa hve mikið
þetta fannst því
bátarnir voru
20-30 kílómetra
frá upptökunum.
Þeir sögðu mér,
sjómennimir, að
þetta hefði fund-
ist eins og snögg-
Stefánsson ir hnykkir - eins
og bátarnir hefðu
fengið sjó á sig eða eitthvað i skrúf-
una. Bátarnir titruðu," sagði Ragn-
ar Stefánsson jarðskjálftafræðingur
sem hafði samband við rækjubáta
út af Norðurlandi í gegnum Til-
kynningaskylduna í vikunni til að
kanna hvort menn hefðu fundið fyr-
ir stóra skjálftanum, 5,5 á Richter, á
mánudag. Upptökin voru um 100 km
frá landi.
Ragnar kvaðst hafa sett sig í sam-
band við Tilkynningaskylduna þeg-
ar jarðskjálftahrinan hófst, en hún
hefur staðið yfir meira og minna
alla vikuna. „Ég benti þeim á að
fara varlega," sagði Ragnar. -Ótt
Hótelnýting batnar
Ánægja er með nýtingu á hótel-
herbergjum norðanlands nú þegar
sumri hallar. Nýting hefur batnað
um 5% frá árinu í fyrra hjá Hótel-
veitingum ehf. en fyrirtækið rekur 5
hótel á Norðurlandi. Páll Lárus Sig-
urjónsson hótelstjóri segir að mark-
aðurinn sé búinn að rétta úr kútn-
um eftir áfóllin í fyrra.
Hótelveitingar ehf. eru með Hótel
KEA, Hótel Hörpu, Hótel Björk, Hót-
el Norðurland og Hótel Gíg við Mý-
vatn á sínum snærum og segir Páll
að menn séu bjartsýnir á framtíð-
ina. Á kaupstefnu VestNorden hafi
komið fram mikill áhugi hjá aðilum
í ferðaþjónustu á Norðurlöndum að
auka sókn til norðurhluta íslands
utan háannatímans. Norðurlanda-
búunum hafi litist mjög vel á svæð-
ið og þá möguleika sem þaö hafi upp
á að bjóða. Einnig þyki orðið erfitt
að fá inni í Reykjavík á jaðarmán-
uðum fyrir og eftir háönn. -BÞ
DV-MYND TCITUR
Busar i Rensborg
Það þykir viö hæfi í framhaldsskólum landsins aö taka nýnema inn í skóiann með formlegum hætti. Busar eru þeir þá kailaðir og
þeir sem nema viö Flensborgarskóla í Hafnarfiröi fengu ekki beinltnis blíöa meöhöndlun þegar böðlar úr hópi eldri nemenda tóku
til óspilltra málanna í gær og tóku nýnemana inn í skólasamfélagiö sem veröur þeim væntanlega betra úr því sem komið er.
Verðbólga hérlendis 3,5%
- neysluverðsvísitala lækkaði um 0,5%
Samræmd vísitala neysluverðs
í EES-ríkjum var 111,2 stig í ágúst
sl. (miðað við 100 stig árið 1996)
og hækkaði um 0,1% frá júlí. Á
sama tima lækkaði samræmda
vísitalan fyrir ísland um 0,5%,
samkvæmt tölum Hagstofu ís-
lands.
Frá ágúst 2001 til jafnlengdar
árið 2002 var verðbólgan, mæld
með samræmdri vísitölu neyslu-
verðs, 1,9% að meðaltali í ríkjum
EES, 2,1% á evrusvæðinu og 3,5%
á íslandi. Mesta verðbólga á Evr-
ópska efnahagssvæðinu á þessu
tólf mánaða tímabili var á írlandi
4,5% og í Portúgal 3,9%. Verð-
bólgan var minnst í Þýsklandi og
í Bretlandi, 1%.
Hagstofan hefur einnig reiknað
út vísitölu byggingarkostnaðar
eftir verðlagi um miðjan septem-
ber. Visitalan er 277,4 stig (var
100 i júní 1987) og lækkar um
0,1% frá fyrra mánuði. Vísitalan
gildir fyrir október. Samsvarandi
vísitala, miðuð við eldri grunn
(desember 1982=100), er 887 stig.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala byggingarkostnaðar
hækkað um 6,1%.
-HKr.
Veröbólga í nokkrum ríkjum
Þýskaland
Brctland
Belgia
Svlþjóð
Frakkland
Rnnland
Lúxemborg
Austurrtki
Danmörk
halta
Spánn
Grikkland
Holland
PortOgal
trtand
Meðaltal evrusvæðis
Meðaltal ESB
Noregur
fsland
Meðaltal EES
Bandartkin
Viðskiptalðnd
Verðbólga í nokkrum ríkjum.
Þokusúld
Sunnan 5 til 10 metrar á sekúndu á
morgun allra vestast en annars
hægari. Skýjað með köflum og hætt
við lítils háttar þokusúld við suður-
og vesturströndina.
Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur
Hiti 8° Hiti 8° Hiti 8°
til 1S" til 15” til 15”
Viitdur: 3-8”/« Vindur: 3-8 "Va Vindur: 3-8
<r
Skýjað að mestu og dá- lítll súld vlð suður- og Skýjað að mestu og dá- lítll súld vlð suður- og Væta norðan og vestan tll en úrkomul'it- Ið austan tll.
vesturströnd- vesturströnd-
Ina. Ina.
j Vindhraöi ^
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviðri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveður 28,5-32,6
Fárviðri >= 32,7
AKUREYRI skýjaö 10
BERGSSTAÐiR skýjaö 13
BOLUNGARVÍK skýjað 12
EGILSSTAÐIR skýjað 13
KIRKJUBÆJARKL. skýjað 12
KEFLAVÍK úrkoma í gr. 10
RAUFARHÖFN alskýjaö 11
REYKJAVÍK rigning 12
STÓRHÖFÐI þoka 10
BERGEN léttskýjaö 13
HELSINKI skýjaö 8
KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 18
ÓSLÓ skýjað 13
STOKKHÓLMUR 8
ÞÓRSHÖFN rigning 11
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 11
ALGARVE hálfskýjaö 24
AMSTERDAM skýjaö 17
BARCELONA skýjaö 27
BERLÍN skýjaö 18
CHICAGO alskýjað 22
DUBUN skýjaö 16
HAUFAX skýjað 15
FRANKFURT skýjaö 18
HAMBORG skúr 14
JAN MAYEN úrkoma í gr. 3
LONDON skýjað 18
LÚXEMBORG skýjaö 17
MALLORCA léttskýjaö 29
MONTREAL heiðskírt 20
NARSSARSSUAQ alskýjaö 5
NEW YORK skýjaö 21
ORLANDO heiöskírt 25
PARÍS skýjaö 19
Vl'N skýjaö 18
WASHINGTON hálfskýjaö 18
WINNIPEG heiöskírt ufsnxnMiSj 11