Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2002, Blaðsíða 54
f 58
Helgarhlctð I>"V"
LAUG ARDAGU R 21. SEPTEMBER 2002
1
Sameinar kraft og
þægindi í skemmti-
legu ferðahjóli
Kostir: Kraftur, rafdrifin framrúða, áseta
Gallar: Grófur gírkassi
Yamaha FJR 1300 hefur verið kallað ferðahjól nýrr-
ar aldar enda sameinar þetta hjól afl keppnishjóla og
þægindi og munað ferðahjólanna. Hjólið kom á markað
i fyrra og leyst þar af hólmi vel heppnað ferðahjól,
FJ1200, sem hafði verið í framleiðslu lengi og notið
mikiila vinsælda. DV-bílar áttu þess kost að grípa hjól-
ið í reynsluakstur á dögunum.
Vel búið ferðahjól
FJR 1300 er vel búið sem ferðahjól. Framrúðan er
stillanleg með rafstýringu úr vinstra handfangi og
mælaborðið minnir meira á vel
búið mælaborð í bíl. Hægra meg-
in er stafrænn upplýsingaskjár
sem sýnir stöðu á bensíntank,
hita, kílómetrastöðu og fleira en
þar vantar þó gírteljara sem auð-
velt hefði verið að bæta við.
Reynsluaksturhjólið var þar að
auki búið upphituðum handfóng-
um sem aukabúnaði og eftir að
hafa prófað þannig búnað er
undirritaður sannfærður um
kosti sllks búnaðar. Stiglaust
stilliviðnám sér um að stýra
hitamagninu og með það í botni
helst góður hiti í höndum, jafn-
vel í gegnum þykka hanska.
Einnig er þetta mikill kostur í
bleytu þar sem upphitunin þurrkar hanskana. Hægt er
að fá þennan aukabúnað i flest hjól hjá umboðinu.
Þægileg áseta
Hjólið er byggt á stífri álgrind og það þarf því ekki
að koma á óvart að aksturseiginleikarnir eru góðir.
Bensíngjöfin fyrir beinu innspýtinguna er næm án
þess að vera ofumæm og með þeim þægiiegri sem und-
irritaður hefur prófað. Bensíntankur er stór, 25 lítrar
og ætti að duga vel á langferðum. Sæti er breitt og
þægilegt, bæði fyrir ökumann og farþega og góð hand-
föng fyrir farþegann. Auðvelt er að stilla afturdempar-
ann fyrir feröir með eða án farþega. Ásetan virkar
nokkuð breið en fer vel með mann og ætti að henta
meðalmönnum og upp úr. Þegar hjólið er sett í gang
heyrist þungur bassahvinur og enginn titringur er frá
vélinni sem er líka með tveimur jafnvægisásum. Hand-
fóng eru létt i meðfórum en þegar sett er í gír er ekki
laust við að maður verði nokkuð hissa á háværu
„klonk“ hljóði. Það má eflaust reka til þess að hjólið er
búið drifskafti og hefur stóran gírkassa.
Rafmagnsúða mikill kostur
Hjólið er snöggt af stað og hefur mikið tog strax frá
byrjun snúningssviðsins. Það er dálítið óvenjulegt en
það er eins og það séu tveir toppar í snúningssviðinu,
fyrst upp á miðjan snúning og svo aftur með gjöftna því
sem næst í botni. Þótt maður verði ekki mikið var við
þessar dæmigerðu drifskaftshreyfingar í hjólinu, þ.e.
að afturendi lyftist aðeins upp við inngjöf, er ekki laust
við að maður vantreysti því samt aðeins út úr beygjum
enda hjólið stórt og kraftmikið. Það tekur ekki á sig
mikinn vind þrátt fyrir stórar hlífar og að reynsluakst-
urshjólið er búið samlitum harðplaststöskum. Rafstýrð
framrúðan gerir þar gæfumuninn. Með hana í upp-
réttri stöðu verður maður nánast ekkert var við loft-
sveipi aftan úr bílum eða þegar maður mætir stórum
farartækjum. Þvert á móti er eins og myndist sveipur
yfir hjólið sem ökumaður fær svo í bakið og á góðri
ferð er eins og hann leggist með nokkrum þunga á bak
ökumannsins og þá er betra að lækka rúðuna. Hjólið er
ekki gefins, verðið er 1.695.000 kr. og hjólið er þá án
aukahluta sem eru töskur, innri töskur og hiti í hand-
fóngum. Hins vegar er þetta mikið hjól sem á ekki eft-
ir að falla fljótt úr tísku og mun örugglega halda uppi
merki Yamaha sem ferðahjóls jafnlengi og FJ1200
gerði. -NG
ÖBremsurnar öflugu sem fyrst sáust í R1 eru nií
komnar á nánast öll sporthjól Yamaha.
©Meðal aukabúnaðar í hjólinu eru upphituð hand-
föng og er hægt að stjórna hitanum með takkanum
ofan á kúplingshandfanginu.
©Töskurnar eru samlitar og innan í þeim er hand-
taska í sömu stærð sem er til mikilla þæginda.
©Mælaborðið er mjög fullkomið og sýnir meðal
annars hita á vél og stöðu á bensíntanki.
YAMAHA FJR 1300
Vél: Vatnskæld 4ra strokka línuvél
Rúmtak: 1298 rúmsentímetrar
Þjöppun: 10,8:1
Ventlar: 16
Kerti: 4
Eldsneytiskerfi: Bein innspýtinq
Bensintankur: 25 lítra
Gírkassi: Fótskiptur, fimm qíra, drifskaft
Rafqeymir: 20 amperstundir
HELSTU TÖLUR
Lenqd/breidd/hæð: 2195/760/1402 mm
Hjólhaf: 1515 mm
Veqhæð: 135 mm
Sætishæð: 805 mm
BURÐARVIRKI
Framfjöðrun: | 48 mm vökvaqafflar
Hreyfiqeta: 135 mm
Afturf jöðrun: Monocross
Hreyfiqeta: 125 mm
Frambremsur: Tvöfaldir diskar
Dælur: Tvær, 4ra stimpla
Afturbremsa: Diskur
Dæla: Eins, 2ja stimpla
Framdekk: 120/70 17
Afturdekk: 180/55 17
HAGKVÆMNI
Verksmiðjuábyrqð: 2 ár
Verð: 1.695.000 kr.
Umboð: I Merkúr hf.
Samanburðartölur
Hestöfl/sn.: 143,5/8000
Snúninqsvæqi/sn.: 134 Nm/7000
Hámarkshraði: 250 km/klst
Þurrviqt: 237 kíló