Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2002, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002
Helgarblaö H>V
Lögð á ráðin fyrir leikinn á morgun, en myndin er tekin á æfingu á fimmtudag, en liðið fór utan í gær.
DV-mynd Hari
Einn mikilvægasti leikur íslensks kvennalandsliðs á morgun:
„Líst alltaf betur og
betur á þennan leik“
- segir Jörundur Aki Sveinsson landsliðsþjálfari
íslenska kvennalandsliðið leikur á morgun síðari
leik sinn gegn Englendingum, en þá ræðst það hvort
liðið mætir Frökkum í tveimur leikjum um laust
sæti í úrslitakeppni HM í Kína á næsta ári. Jörund-
ur Áki Sveinsson landsliðþjálfari er bjartsýnn fyrir
leikinn á morgun, en segist sannfærður um þetta
verði iiörkuleikur og að íslensku stelpurnar muni
mæta þeim ensku af fullum krafti. Það kemur
íslenska liðinu til góða að aðalmarkaskorari enska
liðsins, Karen Walker, er í leikbanni, en hún fékk
að líta gult spjald í leiknum á mánudag. Hún gerði
bæði mörk enska liðsins í fyrri leiknum og hefur
hún skorað í öllum viðureignum þjóðanna.
„Við erum mjög bjartsýn og það hefur sýnt sig í
gegnum tíðina að við höfum farið langt i þessari
keppni á bjartsýninni og dugnaðinum. Við erum
sammála um að það voru margir leikmenn sem ekki
sýndu sitt rétta andlit í leiknum á mánudag og eiga
því mikið inni í getu sem vonandi tekst að ná fram
í leiknum á morgun. Eftir því sem liðið hefur á vik-
una líst mér í raun alltaf betur og betur á þennan
leik og hef fulla trú á því að við munum klára
þetta,“ 'Segir Jörundur Áki.
Hann segir það tilfinningu sína að enska liðið
hafi verið að leika af eðlilegru getu þegar liðið lék
hér á landi. Miðað við það og bættan leik íslenska
liðsins, sem Jörundur Áki segir að sé fullkomlega
raunhæft, þá eigi að vera góður möguleiki á að ná
fram hagstæðum úrslitum í leiknum.
Jörundur Áki ætlar að gera breytingar á leik-
skipulaginu frá því á mánudag og hefur ákveðið að
spila með fimm varnarmenn, fjóra á miðjunni og
Olgu eina frammi. „Ég hef hins vegar ekki gert það
upp við mig hvort ég geri einhverjar breytingar á
skipan liðsins, en mér finnst það reyndar ekki lík-
legt.“
Lokaundirbúningurinn fyrir leikinn hefur ekki
verið áfallalaus. Ásthildur Helgadóttir hefur verið
veik frá því í leiknum á mánudag en í gær sá ekki
fyrir endann á því og þá er Guðrún Sóley Gunnars-
dóttir meidd. Guðrún er brotin eða brákuð á rist, en
hún leikur þannig á sunnudag. Þá fengu þær Erla
Hendriksdóttir og Guðlaug Jónsdóttir sig ekki laus-
ar til að taka þátt í undirbúningnum hér á landi, en
þær eru báðar við nám í Danmörku.
Jörundur segir meiðsli Guðrúnar, veikindi Ást-
hildar og fjarveru þeirra Erlu og Guðlaugar hafa
sett talsvert strik í reikninginn. „Það hefði að sjálf-
sögðu verið betra að hafa þær í undirbúningnum,
en þetta eru hlutir sem ekkert varð gert við og við
verðum að laga okkur að.
Varðandi undirbúninginn fyrir þessar tvær
viðureignir við Englendinga segir Jörundur Áki að
auðvitað hefði hann viljað fá einn æfingaleik, en
það hefði hins vegar ekki verið gerlegt að koma því
við. „Margar af þessum stelpum eru úti i námi og
eru að leika þar með liðum sínum auk þess sem
tímabilið er að klárast og því ekki hægt að koma þvi
fyrir að leika æfingaleik.“
„Við erum staðráðn í að gera okkar allra besta og
vera landi og þjóð til sóma. Mér finnst pressan á lið-
ið vera minni nú en fyrir fyrri leikinn. Eins og ég
hef sagt þá léku nokkrir leikmenn íslenska liðsins
undir getu og það má kannski kenna um þeirri
pressu sem var á liðinu fyrir leikinn. Við eigum
mikið inni frá síöasta leik og við munum gefa allt í
þetta,“ sagði Jörundur Áki að lokum. íslenska liðið
hélt utan í gær og æfði liðið í gær. í dag mun liðið
æfa á St. Andrews, heimavelli Birmingham City, en
leikurinn fer fram þar. -PS
Met slegin í
hverjum leik
Með þátttöku sinni í leiknum gegn Englending-
um á mánudag sló markvörður íslands, Þóra
Helgadóttir, leikjamet markvarðar með íslensku
landsliði. Leikurinn á morgun verður 23. leikur
Þóru í markinu, en fyrra met markvarðar átti Sig-
ríður Fanney Pálsdóttir, 21 leik.
Þess má geta að Margrét Ólafsdóttir bætir leikja-
met kvenna í landsliðinu með hverjum leik sínum
en leikurinn á morgun verður 51. leikur hennar.
Ásthildur Helgadóttir er ekki langt undan en hún
leikur 50. leikinn sinn á morgun. Ásthildur er jafn-
framt markahæst leikmanna kvennalandsliðsins
með 15 mörk og er því ekki langt frá því að verða
markahæsti íslenski leikmaðurinn með landsliði,
en Rikharður Jónsson gerði 17 mörk með karla-
landsliði íslands.
Þjálfari landsliðs Líbíu í knattspyrnu rekinn:
Valdi ekki son Gaddafis
Þjálfari knattspyrnulandsliðs Líbíu, Franco
Scoglio, sem var rekinn úr starfinu á dögunum, segir
farir sínar ekki sléttar i samskiptum við
knattspyrnuyfirvöld í landinu. Hann fullyrðir að
hann hafi verið látinn víkja vegna þess að hann
neitaði aö velja Al-Saadi Gaddafi, son Líbíuleiðtoga,
Muammar Gaddafi, í liðið.
„Ég var hreinlega rekinn vegna þess að ég neitaði
að nota hann í liðið. Ég neitaði bón leiðtogans og
sagði að hann myndi ekki spila mínútu. Al-Saadi
Gaddafi er skelfilegur leikmaður. Það getur líka verið
hluti af ástæðunni að ég neitaði að þjálfa félagslið
sem er i eigu sonarins.
Það er nokkuð ljóst að það er ekki vegna lélegs
árangurs sem Scoglio er rekinn því undir hans stjórn
hefur liðið farið úr 120. sæti á styrkleikalista FIFA
upp i það 104. Líbía hefur unnið þrjá síðustu
landsleiki sina og þar af fyrsta leik þjóöarinnar í
undankeppni Afrikubikarsins, en Líbýa hefur aldrei
tekið þátt í þessari keppni. Sonurinn heittelskaði tók
ekki þátt í neinum þessara leikja, sat á bekknum i
þeim siðasta en var ekki einu sinni í hópnum í hinum
tveimur.
„Ég er knattspyrnuþjálfari, ekki strengjabrúða.
Þegar Al-Saadi var í liðinu töpuðum við öllu, en þegar
hann var ekki með unnum við allt. Svo einfalt er
þetta.“ -PS