Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2002, Qupperneq 30
//<s» / c) a rb lct 3 33 "V
LAUGA.RDAGUR 21. SEPTEM BER 2002
Enska úrvalsdeildin í knattspyrau:
Man. Utd mætir væng-
brotnu Tottenham-liði
- fjöldi leikmanna Tottenham á sjúkralista
Ruud Van Nistilrooy. Það hefur ekld farið jafn inikið fyrir þessum ágæta
leikmanni nú eins og á síðasta lteppnistímabili.
í dag fara fram sjö leikir I ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu en á morgun fara fram tveir leikir og
einn á mánudag. Það er margt athyglisverðra leikja,
bæði á toppi og botni deildarinnar, og ef lið á borð við
West Ham, Sunderland og Newcastle fara ekki að
vinna leiki gætu stjórastólar farið að losna.
Hrekkur Man. Utd í gang?
Man. Utd fær spútniklið Tottenham I heimsókn, en
Lundúnaliðið hefur byrjað mjög vel og situr í öðru
sæti deildarinnar. Það finnst kannski mörgum aðdá-
endum Man. Utd kominn timi til að liðið reki af sér
slyðruorðið en liðið er nú í 10. sæti deildarinnar.
Ekki er víst að Nicky Butt geti leikið á miðjunni
vegna meiðsla sem hann varö fyrir gegn Leeds um
síðustu helgi. Talið er líklegt að í hans stað muni
koma Gary Neville eftir langt hlé vegna meiðsla, en
það fer þó alfarið eftir líðan Butt. Nistilrooy verður
með en hann er að kljást við meisli á kálfa og þá kem-
ur Barthez aftur inn. Á meiðslalista eru enn þeir Roy
Keane, Paul Scholes, Wes Brown og Qutnton Fortune.
Það er áhyggjuefni fyrir Glenn Hoddle að öll vörnin
sem hann stillti upp gegn West Ham um síðustu helgi,
þeir Ziege, Taricco, Perry og Gardner, eru allir
meiddir og leika ekki í dag. Sjúkralisti Tottenham er
æði langur, en til viðbótar þeim sem nefndir hafa ver-
ið eru á honum þeir Darren Anderton, Gus Poyet,
Stephen Carr, Steffen Freund og Neil Sullivan. Les
Ferdinand er þó klár að nýju.
Aðeins eitt stig á Upton Park
Botnlið West Ham fær Man. City í heimsókn á
Upton Park, en West Ham hefur aðeins fengið eitt stig
á timabilinu og var það gegn sjálfum meisturunum í
Arsenal. Austurbæjarliðið hefur ekki náð að sýna
sama stöðugleika á heimavelli og liðið hefur verið
þekkt fyrir á undanförnum árum. West Ham mætir
að mestu með óbreytt lið, en þó er ljóst að Tomas
Repka, sem meiddist í leik gegn Tottenham á dögun-
um, verður í liðinu. Einhver meiðsli hafa verið að
hrjá lið City og nú þykir öruggt að Richard Dunne og
Shaun Goater verða ekki í hópnum á morgun vegna
meiðsla. í hópinn koma þeir Steve Howey og Darren
Huckerby, en þeir hafa verið að kljást við meiösli.
Viera í banni
Meistarar Arsenal taka á móti Guðna Bergssyni og
félögum hans í Bolton, en þeir verða án Patrick Viera
sem er í leikbanni. Fréttir herma að Arsene Wenger
liggi undir feldi með þá spurningu hvort hann eigi að
láta Ljungberg byrja í dag, en hann er að koma inn
eftir langvarandi meiðsli. Það sama má segja um
Lauren og verið getur að hann komi inn í liðið fyrir
Luzny. Sam Allardyce er í vanda hjá Bolton því þeir
David Warhurst, Bruno N’Gotty, Bernard Mendy,
Simon Charlton, Kevin Nolan og Ricardo Gardner eru
allir meiddir, en góðu fréttirnar eru að Ricketts kem-
ur inn að nýju.
Newcastle, sem átti glimrandi tímabili í fyrra en er
nú í bullandi vandræðum, tekur á móti Sunderland,
sem virðist vera í svipuðum vandræðum en bæði lið-
in sitja nú í fallsæti. Newcastle lék gegn Lokomotiv
Moskvu og tapaði þar. Bobby Robson er að gera til-
raunir til breytinga, en Solano var tekinn út úr liðinu
gegn Moskvu og er það í fyrsta sinn sem hann leikur
ekki með vegna annarra orsaka en meiðsla. Ekki er
búist við miklum breytingum á Sunderland-liðinu en
þó er talið að Julio Arca komi inn fyrir hinn unga
Thomas Butler.
Henchoz og Owen inn
Lárus Orri Sigurðsson og félagar hans i WBA verða
á Anfield Road og leika við Liverpool. Stephan
Hencoz kemur inn í liðið að nýju og líklegt er talið að
Michael Owen leiki með eftir að hafa setið á bekkn-
um undanfarna leiki. Smicer er meiddur á fæti og Xa-
vier er veikur. WBA getur unnið fjórða leikinn sinn í
röð í deildinni, en þeir verða án Lee Hughes.
Southampton tekur á móti Charlton og mætir Gor-
don Strachan með sitt sterkasta lið, en bæði þessi lið
hafa byrjað tímabilið mjög illa, sem reyndar kemur
ekkert sérstaklega á óvart. Meiðsli eru hins vegar i
herbúðum Charlton.
Leeds mætir Balckburn á útivelli og það eru gleði-
fregnir að Michael Bridges er nú orðinn frískur að
nýju eftir langt hlé. Hann kom inn á í leik liðsins
gegn úkraínska liðinu í Evrópukeppninni á fimmtu-
dag og sýndi góða spretti. Á sunnudag mætast einnig
lið Aston Villa og Everton. -PS
Laugardagur Sumiudagur
Liverpool-WBA
Arsenal-Bolton Aston Villa-Everton
Man. Utd-Tottenham Blackbum-Leeds
Middlesboro-Birmingham
Southampton-Charlton Mánudagur
West Ham-Man. City Fulham-Chelsea
Newcastle-Sunderland
íslandsbikarinn verður á Akranesi I lokaumferð Símadeildar:
Þyrla verður til taks
Lokaumferð Símadeildar karla verður
leikin í dag og enn er staða á botni og
toppi deildarinnar óráðin.
Eins og kunnugt er eiga KR og Fylkir
bæði möguleika á að verða
íslandsmeistarar i dag. Á Akranesi
eigast við heimamenn og Fylkir en á KR-
velli KR-ingar og Þórsarar sem fyrir
leikinn eru fallnir. Eins og staðan er nú
eru Fylkismenn efstir í deildinni og af
þeim sökum hefur Knattspyrnusamband
íslands ákveðið að íslandsbikarinn verði
uppi á Akranesi á meðan á leikjum
stendur.
Ef sú staða kemur upp að KR-ingar
verða íslandsmeistarar verður þyrla til
staðar uppi á Akranesi til að flytja
íslandsbikarinn yfir flóann og lendir
hún meö bikarinn á KR-vellinum.
Fallbaráttan verður í algleymingi og
þá má ekki gleyma baráttunni um
markakóngstitilinn en baráttan um
hann stendur á milli þeirra Grétars
Hjartarsonar og Sævars Þórs Gíslasonar,
en í baráttuna geta þeir Gunnar Heiðar
Þorvaldsson og Sigurður Ragnar
Eyjólfsson blandað sér. -PS
McAteer dómaranum þakklátur:
Væri höfðinu styttri
Jason McAteer segir að ef Uriah
Rennie hefði ekki hlaupið á milli þegar
þeim McAteer og Roy Keane laust sam-
an í leik Sunderland og Man. Utd þá
hefði Keane rifið af honum höfuðið.
Keane var seinna í leiknum rekinn út af
fyrir að gefa McAteer olnbogaskot í höf-
uðið. McAteer segist ekki hafa verið að'
reyna að meiða Keane sérstaklega og
segir að það hefði hver sem er getað
orðið fyrir tæklingu hans, sem gerði
Keane svo reiðan sem raun bar vitni.
Henni var ekki beint gegn Keane sér-
staklega. „Ég er Rennie óendanlega
þakklátur fyrir að hafa gengið þarna á
milli því í dag væri ég höfðinu styttri.
-PS
m x
ÍA-Fylkir.............lau. 21. sept.
KR-Þór, Ak............lau. 21. sept.
Grindavík-Keflavík . . . lau. 21. sept.
FH-lBV................lau. 21. sept.
KA-Fram...............lau. 21. sept.
Fylkir 17 10 4 3 30-20 34
KR 17 9 6 2 27-18 33
Grindavík 17 8 5 4 31-22 29
KA 17 6 7 4 18-16 25
ÍBV 17 5 5 7 22-20 20
ÍA 17 5 5 7 27-26 20
FH 17 4 7 6 27-29 19
Fram 17 4 5 8 26-33 17
Keflavík 17 3 8 6 21-29 17
Þór A. 17 3 4 10 22-38 13
Markahæstir:
Grétar Hjartarson, Grindavík ... 12
Sævar Þór Gíslason, Fylki......12
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, ÍBV 11
Jóhann ÞórhaUsson, Þór, Ak. ... 10
Sigurður Ragnar Eyjólfsson.....10
? f SÍMA
DEILDil