Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2002, Qupperneq 32
32
Helcjarblciö JÖV
LAUGARDACU R 21. SEPTEMBER 2002
Fágæta fiðlufjöl-
skyldan
Martin Frewer, Hildigunnur Halldórsdóttir, Christian
Diethard, Hrafnkell Egilsson, Stefán Örn Árnason,
Ólöf Sesselja Óskarsdóttir, Sigurður Halldórsson, Ric-
liard Korn, Dean Ferrell og David Bobroff.
Þau eru í fiðlufjölskyldunni.
DV-mynd GVA
Hrosshár ístrengjum og hol-
að innan tré er klassísk Igs-
ing á fiðlunni sem er falleg-
asta hljóðfærið með hrein-
asta tóninn. Það er sérkenni-
leg fiðlufjölskglda sem tekur
til máls íGerðubergi á sunnu-
daginn.
Það eru jafnmargir tónleikar í Reykjavík á einum
vetri eins og laufblööin eru á meðalstóru birkitré
sem reyndar ber ekki lauf á veturnar svo þetta er
sennilega misheppnuð samlíking. Allt að einu þá
verða haldnir mjög sérstæðir tónleikar í Gerðubergi
á sunnudaginn þar sem tiu tónlistarmenn leika á
fjölskyldu sérsmíðaðra strengjahljóðfæra sem hefur
verið kölluð: „Fágæta fiölufjölskyldan."
Dagskráin er unnin í samvinnu við Félag ís-
lenskra tónlistarmanna og er framhald á samstarfs-
verkefnunum:
„Gítar í Gerðubergi“, Dagur flautunnar" , „Dagur
hinna djúpu strengja" og Dagur slagverksins
„Búmm, Krass, Bang!“
„Þessi samstarfsverkefni eru þannig til komin að
Félagi íslenskra tónlistarmanna barst styrkur frá
Reykjavíkurborg. Það var ákveðið að nota styrkinn
til þess að auðga tónlistarlif í Reykjavík með eftir-
minnilegum hætti og ég tel að það hafi tekist í þess-
um samstarfsverkefnum með Gerðubergi," sagði
Margrét Bóasdóttir, formaður félagsins, í samtali
við DV.
Hún sagði að þetta sérstæða verkefni væri í raun-
inni tilkomið fyrir persónulegan áhuga og tengsl
Deans Ferrells sem leikur á kontrabassa í Sinfóníu-
hljómsveit íslands. Dean fékk fiðlufjölskylduna lán-
aða til íslands án eiginlegs endurgjalds en með þeim
skilyrðum að leikið yrði á þær opinberlega og þær
notaðar.
Spuming um stærð
Dean sagði að það hefði gengið ágætlega að finna
hljóðfæraleikara til þess að taka þátt í verkefninu
en það krefðist talsverðs áhuga og væri erfitt í þeim
skilningi að hver hljóðfæraleikari þarf að ná valdi á
nýju hljóöfæri. Auk þess getur verið hreinlega lík-
amlega erfitt fyrir þann sem er vanur að spila á
fiðlu að skipta um hljóðfæri og fara að takast á við
hljóðfæri sem er mörgum númerum stærra. Þetta
getur í rauninni verið spurning um handleggja-
lengd og styrk.
Vegna þessa hefur hin fágæta fiðluíjölskylda í
rauninni dvalið á íslandi um alllanga hrið og hljóð-
færaleikurunum þvi gefist tækifæri til vandlegra
æfinga.
Fágæta fiðlufjölskyldan er engin venjuleg fjöl-
skylda. Hún samanstendur af átta fiðlum, í átta ólík-
um stærðum. Hljóðfærin eru með samstilltan hljóm,
hvert með sína stillingu og sitt tónsvið, en saman
spanna þau nánast allt tónsvið þeirrar tónlistar sem
samin hefur verið í heimsbyggðinni allri. Hljóðfær-
in eru stillt með um hálfrar áttundar millibili; allt
frá kontrabassafiðlunni sem er stillt eins og hefð-
bundinn kontrabassi, til sópranínófiðlunnar sem er
stillt áttund ofar en venjuleg fiðla.
Þessum ótrúlega tjáningaríku hljómum má líkja
við tjáningamöguleika sjálfrar mannsraddarinnar.
Fjölskyldan samanstendur af sópranínófiðlu,
sópranfiðlu, messófiðlu, altfiðlu, tenorfiðlu,
barytonfiðlu, bassafiðlu og kontrabassafiðlu.
Óvenjuleg fjölskylda
„Sum þessara hljóðfæra líta nokkurn veginn út
eins og hefðbundnar fiðlur eða víólur en stærri
hljóðfærin eru frábrugðin að útliti því þau líta út
eins og risastórar fiðlur. Þannig er fjölskyldan í
senn hefðbundin og óvenjuleg," sagði Dean Ferell.
Hann rekur í stórum dráttum fyrir blaðamann
þær breytingar sem hafa orðið á fiðlufjölskyldunni
frá því á miðöldum. Fyrst í stað voru fiðlur gerðar
til þess að líkja eftir mannsröddinni en smátt og
smátt fjarlægðust þær manninn og urðu að meiri
einleikshljóðfærum og þá urðu jafnframt til stjörn-
ur í hljóðfæraleik og fiðluleikarar urðu frægir með-
an aðrir strengleikarar urðu að „ annars flokks
borgurum," eins og Dean orðar það í gamansömum
tón.
„Áður voru hljóðfæraleikarar í hóp og hópurinn
allur jafn. Síðan þegar stjörnurnar urðu til þá
breyttist allt og þetta hélst í hendur við breytingar
í samfélaginu að öðru leyti.
Upphaflega voru sennilega sjö fiölur í fjölskyld-
unni en i dag eru almennt aðeins fiðla, víóla og selló
og kontrabassi efstur. Þau sem voru þarna á milli