Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2002, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2002, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 HelQorblaö H>"V 33 hafa horfiö. Gömburnar lutu í lægra haldi fyrir fiðlunum og duttu úr tísku og fiðlustjörnurn- ar fæddust. Þetta þýddi líka að slyngir ein- leikarar urðu eftirsóttir og hátt- launaðir meðan hljóðfæraleikar- ar sátu almennt eftir,“ segir Dean sem segir að með þessu hafi í rauninni allur sósíalismi horfið úr hljóðfæraskipan hljómsveita og það sé í rauninni sérkennilegt að endurreisn hinnar fornu skip- anar fiðlufjölskyldunnar skuli nú koma frá Ameriku sem er höfuð- vígi einstaklingsfrelsis. Afrakstur vísindanna Þessi hljóðfærafjölskylda er uppskera rannsókna i Bandaríkj- unum sem eðlisfræðingurinn Frederick A. Saunders við Harvardháskóla hefur leitt allt frá árinu 1933. Afburðafiðlur, eins og Guarnerius-fiðlan, sem Jascha Heifetz átti og lék á, voru prófaðar og tónn þeirra notaður sem viðmið til að skapa eftir- sóknarverð hljómeinkenni nýju fiðlanna. Til þess að hægt væri að ná fram þessum einkennum í öllum nýju fiðlunum var notuð sérstök deilitækni og einkennun- um jafnað á allar fiðlustærðirn- ar. Eftir tíu ára rannsóknir og prófanir á fræðilegum og hagnýt- um eiginleikum þessa nýja fiðlu- hljóms varð nýja fiðlufjölskyldan til. Að rannsóknunum stóð Cat- gut Acoustical Society, rannsókn- arstofnunin sem F.A. Saunders stofnaði árið 1963 en meðal vís- indamannanna voru eðlisfræð- ingar, verkfræðingar, efnafræð- ingar, tónlistarfræðingar, hljóð- færaleikarar, tónskáld, fiðlu- smiðir og áhugafólk. Árið 1965 var fyrsta settið af nýrri fiðlufjöl- skyldu tilbúið. Frá þeim tíma hefur Fágæta fiðlufjölskyldan farið víða og verið kynnt á fyrir- lestrum og tónleikum um öll Bandaríkin, í Kanada og víða í Evrópu. Nú gefst íslendingum einstakt tækifæri til að kynnast þessari óvenjulegu hljóðfærafjöl- skyldu sem kemur hér fram í fyrsta sinn á íslandi. Á tónleikunum gefst tækifæri til að bera saman hljóm hinnar fágætu fiðlufjölskyldu við tón annarra fjölskyldna. Stundum munu hljóðfæraleikararnir flytja verk sín tvisvar með ólíkri hljóð- færaskipan eða þeir skipta um hljóðfæri í miðju verki. Öfundin leitar fegurðarinn- ar - Það er ekki ósanngjarnt að segja að með smíði hinnar fá- gætu fiðlufjölskyldu birtist okk- ur tilraun vísindamanna til þess að skilja hvað gerir fallega tón- list fallega. En er þetta ekki und- arleg tilraun til þess að fanga feg- urðina sem lengi hefur heillað menn í fögrum fiðlutóni og marg- ir hafa álitið guðlegan og gera hann að einhvers konar vegnu fegurðairmeðaltali. Er þetta ekki eins og taka eitthvert sigurverk í sundur og reyna að komast að þvi hvemig hinir einstöku partar þess virka? Þau Margrét og Dean eiga kannski ekki neitt sérstakt svar við þessu en Margrét segir að þarna séu líklega nokkrir kraftar að verki. „Ég held að forvitni mannsins sé þarna að verki en einnig öf- undin. Ég held að nútímamann- inum með alla sína tækni gremj- ist það óskaplega að á miðöldum skuli hafa verið smíðaðar hljóm- fegurstu fiðlur sem við þekkjum og við vitum ekki hvers vegna.“ Tónleikarnir verða í Gerðu- bergi sunnudaginn 22. september 2002 kl. 14.00-18.00 Á efnisskrá eru verk eftir D. Ferrell, J. S. Bach, A. Part, G. Gabrielli, J. Lanner, G. Wag- enseil, G. Rossini, G. Jacob, Jón Leifs og H. I. F. von Biber. Að- gangseyrir er kr. 1.000. PÁÁ Leiðrétting Slæmar staðreyndavUlur voru i gein um Oliver North, sem birtist I síðasta laugar- dagsblaði. Rétt er að leið- rétta að Oliver North var ekki að reyna að fá banda- ríska sendiráðsstarfsmenn lausa úr gíslingu í Teheran, heldur gísla sem haldið var föngnum í Líbanon. Hitt gislamálið var þegar leyst er North kom við sögu. En þeir sem héldu gíslunum þar voru hliðhoUir stjórninni í íran. Þá er að sjálfsögðu mis- hermt að Bush hafi náðað þá sem dæmdir voru í svo- nefndu iran-contramáli 1994 en þá var Clinton kominn tU valda. Missagnir þær sem hér er minnst á stafa af fljótfærni og er ekki einu sinni hægt að kenna lélegri heimUd- könnun um. Lesendur er beðnir velvirðingar á mis- sögnum en þeir munu Uestir hafa rekið augun í hvar vit- laust var með farið, svo aug- ljóst sem það má vera. TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS l ^ Styrkir til bifreiðakaupa Tryggingastofnun ríkisins veitir viðtöku umsóknum um styrki sem veittir eru hreyfihömluðum til bifreiðakaupa og framfærendum bama sem fá umönnunargreiðslur. Helstu skilyrði úthlutunar: • Nauðsyn bifreiðar vegna hreyfihömlunar sé ótvíræð. • Umsækjandi má elstur verða 70 ára á umsóknarári. • Umsækjandi hafí ökuréttindi. Þó er heimilt að víkja frá því skilyrði tilnefni umsækjandi ökumann. • Kaup á biffeið eigi sér stað á umsóknarári eða fyrir 1. júlí 2003. • Árstekjur lífeyrisþega séu undir 2.397.772 kr. (hjá hjónum 4.795.544 kr.). • Eignir í peningum og verðbréfum séu undir 4.000.000 kr. (hjá hjónum 8.000.000 kr.). Fjögur ár þurfa að líða á milli styrkveitinga og undirritar styrkhafí kvöð um eignarhald bifreiðar á þeim tíma. Umsóknareyðublöð vegna úthlutunar árið 2003 em afhent í þjónustumiðstöð TR og hjá umboðsmönnum hennar um land allt. Einnig er hægt að nálgast eyðublöðin á heimasíðu TR sem er www.tr.is. Læknisvottorð á þar til gerðu eyðublaði skal fylgja umsókn. Umsóknarfrestur er til 1. október 2002. Frekari upplýsingar em veittar í síma 560 4460 og á heimasíðu Tryggingastofnunar www.tr.is. AFGREIÐSLUNEFND BIFREIÐAKAUPASTYRKJA Utiijós Classica úr áli Verð áður: kr. Loftljós Miramar, hvítt. Verð áður: J^fS'kr. í pakka Ljósaperur 40 og 60 w. Vinnukastari á fæti, 500 w Vinnukastarí, 500 w. HÚSASMIÐJAN Sfmí 526 3000»www.huss.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.