Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2002, Page 45
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002
Helcja rblaaf HJ'V*
49
Grátandi Skandínavar syngja
Enda fór svo að íslenskir náttúruunnendur fengu
sig ekki hamið á útleið heldur hófu upp raust sína
og sungu dýrðaróð til náttúrunnar af þvílíkri til-
finningu að jarðbundnir Skandínavar táruðust.
Smæð mannsins gagnvart náttúrunni opinberast
óvíða eins vel og á siglingu um borð í litlum fiski-
bátum á milli þessara ferlíkja, allt að 200 metra
hárra, en það er aðeins sá litli hluti jakans sem er
okkur sýnilegur; þumalputtareglan segir jú að ein-
ungis einn tíundi hluti borgarísjaka sé ofanborðs.
Eftir rúmlega klukkustundarsiglingu er komið inn
í litla vík og þar bíður veisluborð; grillað kjöt og
meðlæti. Sá er munurinn á þessu veisluborði og
því sem við Norður-Evrópubúar eigum helst að
venjast að hér er boðið upp á grillað hvalkjöt og
sauðnautalundir. Hnossgæti sem bráðnar á tung-
unni og áfram er sungið í grænlenskri kyrrð fjall-
anna, hvar sólin lýsir upp hið stórkostlega leiksvið
náttúrunnar, 300 kílómetrum noröan við heim-
skautsbaug. Á heimleiðinni fáum við tækifæri til
að skoða borgarísjakana úr lofti, stór Sikorsky
þyrla (sem flugstjórinn kallar drottningu háloft-
anna) sækir ferðalangana. Flugstjórinn sýnir hvers
þyrlan er megnug og stýrir henni af miklu listfengi
en ekki síður af dirfsku niður á milli jakanna og
jafnsnöggt upp aftur. Rússíbanaferð í Tívolí verður
ekki söm eftir slikt flug.
Hættulegir jaltar
En þótt borgarísjakarnir séu fallegir þá eru þeir
stórlega varasamir. Því fengu 3 sænskir ferðalang-
ar að kynnast nokkrum dögum áður en okkur bar
að garði. Þeir höfðu siglt á kajökum norður fyrir
Ilulissat og slegið upp búðum rétt um 20 metra frá
sjávarmáli. Þegar kvöldaði brotnaði „flís“ úr borg-
arísjaka í nágrenni við þá. Flísin kom af stað því-
líkri flóðbylgju að nokkrum mínútum síðar hafði
hún kastað piltunum þremur og öllum þeirra bún-
aði 200 metra upp á land. Piltarnir voru illa
lemstraðir en tókst að gera vart við sig og voru
þeir fluttir á sjúkrahús. Af búnaði þeirra sagði fátt.
Þessi saga og viðvörun frá lögreglustjóra bæjarins
hékk uppi víða í Ilulissat, vísast til að sýna fáfróð-
um ferðamönnum við hvers kyns öfl þeir ættu í
höggi.
Skammlífir og grimmir hundar
Bátsferðir og þyrluferðir eru ekki einu möguleik-
ar ferðamanna til að ferðast um nágrenni Ilulissat.
Gönguferðir um nágrennið eru vinsælar, að ekki sé
minnst á hundasleðaferðir. Því nóg er af hundun-
um í Ilulissat. Eins og áður sagði búa rúmlega 4.000
manns í bænum. Þar búa hins vegar 6.000 hundar!
Því þótt nútíma atvinnuvegir hafi rutt sér til rúms
í Ilulissat á síðustu árum eru hundurinn og sleðinn
ennþá lífsnauðsynleg verkfæri til að afla sér fæðu
yfir veturinn. Grænlenski sleðahundurinn er fal-
legur. Hann er þó langt því frá að vera besti vinur
mannsins og því er fólk varað við að nálgast
ókunna hunda. Af slikum tilraunum eru til marg-
ar sorgarsögur í Ilulissat. Hundarnir eru nánast
allir tjóðraðir niður úti á víðavangi í og við bæinn
og setja óneitanlega svip sinn á bæjarlífið, að ekki
sé talað um tónlistarlífið eftir að kvölda tekur!
Grænlenskur sleðahundur þarf að erfiða mikið í
lífinu og lifir að meðaltali mun skemur en aðrir
hundar, ekki nema rétt um tvö ár, þó dæmi séu um
hunda sem ná 12-13 ára aldri.
Á aldur við píramídana
, Vitað er að byggð hefur verið í Ilulissat í 4.000 ár.
Menjar um slíkt liggja skammt frá bænum, og er
hægt að fá leiðsögn um svæðið og skoða gamlar
húsatóttir og aðrar menjar um samfélag manna frá
þvi 2000 árum fyrir Krist. Til samanburðar má geta
þess að skömmu áður voru Píramídarnir reistir
austur í Egyptalandi og um svipað leyti var menn-
ing maya að taka á sig mynd í Mið-Ameríku. Þetta
var á tímum bronsaldar í Evrópu. Árið 1741 er hins
vegar talið stofnár bæjarfélagsins, en það ár veitti
Kristján 6. Danakonungur, Jakobi Severin einka-
leyfi til verslunar í bænum, og heitir staðurinn síð-
an Jakobshavn á dönsku. Nú í upphafi 21. aldar
hafa íbúarnir í Ilulissat það gott. Óviða á Græn-
landi hefur verið jafnmikill uppgangur á síðustu
árum og eru fiskveiðar og ferðamennska helstu at-
vinnuvegir svæðisins. Grálúða og rækja hafa
lengstum verið uppistöðuafli báta frá Ilulissat og á
síðustu árum hafa krabbaveiðar færst í aukana.
Heildarársafli hefur sveiflast á milli 10.000 og
20.000 tonn. Aflinn er unninn í bænum og er stefnt
að því á næstu árum að flytja hann mestallan með
flugi til Evrópu, Kanada og Bandaríkjanna.
Mikil áhersla er lögð á að byggja upp atvinnu í
kringum ferðamennsku í bænum. Þar eru menn-
ingar-, sögu- og listasöfn og a.m.k. 3 fyrirtæki bjóða
upp á lengri og skemmri ferðir í nágrenni Ilulissat.
Nægt framboð er á gistirými og eru 4 hótel auk far-
fuglaheimilis starfrækt í hænum. Fjölbreytileikinn
er mikill, allt frá fjögurra stjömu glæsileika á
Arctic Hotel og niður í ódýra og einfalda gistingu á
Þetta er miðbærinn í Ilulissat þar sem búa rúmlega 4000 nianns. Húsin eru byggð á klöppum og fátt um
skrúðgarða. Fótboltavöllurinn er í hjarta bæjarins og þar fór Grænlandsmótið í fótbolta frant á fjórum dögum.
farfuglaheimilinu inni í miðjum bæ.
Sjálfsmorð í velsældinni
Velsældin í Ilulissat er áþreifanleg. Mikið er af
nýlegum bílum, jafnt fólksbílum sem jeppum.
Margar verslanir eru í hænum og vöruúrvalið gott.
Vöruverð er hins vegar hátt, og talsvert hærra en
hér á landi. Þrátt fyrir velsæld hvílir skuggi sorg-
ar yfir Ilulissat. Ung stúlka sem leiddi hópinn í
gönguferð á slóðir frumbyggjanna upplýsti okkur
um að gríðarlega hátt hlutfall ungs fólks í Ilulissat
tæki eigið líf á hverju ári. Þetta væri mönnum ráð-
gáta, því velsæld og uppsveifla hefðu verið ríkjandi
á síðustu árum og atvinna handa hverjum þeim
sem vinna vildi. Hún sagði þetta vera aðkallandi
rannsóknarefni en að sálfræðirannsóknir væru
enn sem komið er mjög skammt á veg komnar í
landinu. Annað stórt vandamál í landinu (sagði
hún og kveikti sér í sígarettu) er að 80% þjóðarinn-
ar reykja og reykja mikið. Það er því ljóst að þrátt
fyrir efnahagslegar framfarir og velsæld þarf að
huga betur að heilsu og sálartetri þessa fólks sem
hefur í þúsundir ára tekist að lifa í sátt og sam-
lyndi við miskunnarlausa en ægifagra náttúru á
jaðri jarðarkúlunnar. Þar sem sólin hverfur að
fullu i byrjun desember og birtist aftur þann 13.
janúar. Þá fara allir íbúar Ilulissat upp á Holms
Bakka og fagna sólinni, sem birtist þeim þegar
klukkuna vantar 13 mínútur i eitt. Daginn lengir
síðan fram til vors og frá miðjum maí og til loka
júlí er hún stanslaust á himni Ilulissat. Nái nýjar
tillögur samgönguráðherra fram að ganga um að
hefja að nýju flug frá Islandi til Narssarssuaq á
suðurströnd Grænlands gefst enn fleiri íslending-
um tækifæri á komandi árum til að fara norður til
Ilulissat - Perlu Grænlands - og upplifa náttúrufeg-
urð sem á fáa sína líka.
Nánari upplýsingar um þennan sérstæða stað er
að finna á netslóðinni: www.illulissat.gl
Jóhann Hlíðar Harðarson
Grænlenskur kirkjugarður. Grafir geta aðeins verið
um metri á dýpt vegna sífrera og þær eru teknar á
sumrin fyrir áætluðum fjölda látinna á komandi vetri.
Deyi fleiri þarf loftbor til að taka gröfina.
Sleðahundar eru á hverju heimili eins og örbvlgjuofn.
Þeir verða að vera tjóðraðir og ferðamenn eru varað-
ir við að koma nálægt þeim. Þeir bíta.
Þvrlur eru algengasti ferðamáti niilli staða í Grænlandi enda vegakerfið í Ilulissat aðeins 25 kin. Þar eru al-
mennt ekki vegir milli þéttbýliskjarna og ekki er vitað um jarðgöng.