Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2002, Qupperneq 60
f &4 H&lgctrblað 33’V’
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002
Engar timapantamr.
Komdu núna!
REYKJAVIK
AKUREYRI
Starfsfólk óskast
Nýkomin stór sending af
funtós-stólum.
Full búð af nýjum
vörum á góðu verði.
imm
NYR
Jeep Cherokee Limited 3,1 disil
skráöur 8/2002, ekinn 0 km, allt rafdr., minni
á sætum, samlitur, 10 diska CD-magasín,
gler-topplúga, álfelgur, aksturstölva.
Einn með öllu.
Höfum einnig Cherokee Laredo til sölu.
Bilreiðaverkstœði Graíarvogs
Visa/Euro raðgreíoslur.
Til sölu og sýnis hja Bílahöllinni,
Bíldshöfða 5, sími 567-4949/694-3308.
Opið a laugardögum
frá kl. 12-16
SMURNING
RESTBURHNT/BBR
Vesturgötu 3b sími 5512344 www.tapas.is
Starfsfólk óskast í sal.
Upplýsingar gefur Kári
á staðnum eða í síma 5512344
milli kl. 16.00 og 18.00
VIGTARMENN
Haustnámskeið 2002 til löggildingar vigtarmanna verða haldin sem hér segir
Ef næg þátttaka fæst!
Á Reyðarfirði 15., 16. og 17. okt. Endurmenntun 18. okt.
Skráningu þátttakenda lýkur 11. okt.
í Reykjavík dagana 21., 22. og 23. okt. Endurmenntun 29. okt.
Skráningu þátttakenda lýkur 21. okt.
Námskeiðin hefjast öll kl. 10.00 og þeim lýkur með prófi.
Skráning þátttakenda og allar nánari upþlýsingar
á Löggildingarstofu í síma 510-1100
Námskeiðsgjald kr 24.000.
Endurmenntunarnámskeið kr 10.000.
Löggildingarstofa
www.ls.is
Skákþátturinn___________
Umsjón
Sævar Bjamason
Evrópukeppni taflfélaga:
Flestir sterkustu skák-
menn Evrópu mæta
Á morgun hefst Evrópukeppni
taflfélaga í Halkdiki í Grikklandi.
Mótið er einn stærsti
skákviðburður hvers árs en meðal
keppenda eru flestir sterkustu
skákmenn Evrópu. Sterkustu liðin
eru sterkari en á sjálfum ólympiu-
mótunum sem skýrist af því að á
ólympiumótunum geta „aðeins"
sex Rússar teflt en þarna eru þeir
í tugavís!
Fulltrúi íslands að þessu sinni
er Taflfélagið Hellir en það varð í
2. sæti á íslandsmóti skákfélaga.
Taflfélagið Hrókurinn afþakkaði
að vera með enda flestir sem
tefldu með því uppteknir með öðr-
um félögum þarna á Evrópumót-
inu. Það er skrýtið en
íslandsmeistarar Hróksins eru
meistarar margra landa og flakka
á milli þar sem best er boðið, tefla
svo venjulega með sigurlandi
heimalands síns. En í liði
íslandsmeistara Hróksins voru 7-9
erlendir stórmeistarar sem geta
bara teflt með einu liði í einu!
Hellismenn eru ekki líklegir til
stórafreka að þessu sinni. Sveit
Hellis virðist vera u.þ.b. 30.
sterkasta sveitin af 44 sveitum. I
fyrra gekk Hellisbúum afar vel og
hafnaði sveit félagsins í 10. sæti og
varð Hellir efst tafifélaga úr Vest-
ur-Evrópu! Sveit Hellis var þá
betur skipuð, með henni tefldu
þrír stórmeistarar en nú eru þeir
aðeins tveir. Þar fyrir utan virðast
hin liðin enn sterkari en í fyrra!
Hreyfilseinvígið
Stefán Kristjánsson hélt
sannkallaða flugeldasýningu í síð-
ustu skák Hreyfilseinvígisins og
lagði Tomas Oral með stæl. Hann
tefldi af mikilli hörku og fórnaði á
báðar hendur fyrir óverjandi mát-
sókn gegn tékkneska meistaran-
um. Báðir lentu í gríðarlegu
tímahraki og Tomas Oral féll á
tíma í 29. leik en þá voru kóngi
hans allar bjargir bannaðar.
Lokaúrslit í Hreyfilseinvíginu
urðu því 4-2 fyrir Oral en Stefán
má sannarlega vel við una. Hann
gafst ekki upp þótt Oral ynni þrjár
fyrstu skákirnar heldur barðist af
mikilli einurð og uppskar eftir
því. Svo skrifar Hrafn Jökulsson,
sá mikli skákjöfur og frumkvöðull
einvíginsins, á netsíðu Hróksins.
Þetta er vel meint og vissulega
tefldi Stefán af mikilli einurð og
uppskar eftir því. Hins vegar fell
Oral á tíma í 30. leik og var með
unnið tafl er hann lék hinum
örlagarlka 29. leik -sínum. En ég
samgleðst Stefáni og þeim
Hróksmönnum með frábært
einvígi og að hann skyldi hafa
sigur i lokaskákinni. Menn vinna
ekki skák nema andstæðingurinn
leiki af sér. Það gerðist hins vegar
mun seinna en þarna var lýst.
Eins og það skipti einhverju
máli?! Það kom ekki í ljós fyrr en
við nánari skoðun! Lítum á þessa
sögulegu og skemmtiiegu skák! Sá
sem leikur næstsíðasta afleiknum
í skák vinnur, sagði skákmeistar-
inn Tartakower í byrjun 20. aldar-
innar, minnir mig.
Hvltt: Stefán Kristjánsson (2428).
Svart: Tomas Oral (2549).
Hreyfilseinvigið,
Þjóðarbókhlöðunni (6), 19.09.2002
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Dc7 5. Rc3 e6 6. Be2 a6
7. 0-0 Rf6 8. Khl Rxd4 9. Dxd4
Bc5 10. Dd3 b5 11. Bg5 Bb7 Þetta
afbrigði tefldu þeir félagar í öllum
Stefán Kristjánsson
Sigraði loks í síðustu skákinni í
einvíginu við Toinas Oral.
skákunum sem Stefán hafði hvítt
í. Stefán reynir hér nýja leið en
hafði áður leikið 12. f4 og þurft að
taka tilit til Bb4 sem kom í báðum
skákunum. 12. a3 h5 13. Bxf6
gxf6.
Þetta afbrigði byggist á biskupa-
parinu og árásum þess á
miðborðið og sókn eftir g-línunni.
Á móti kemur að hættulegt er að
hróka langt og hvitur getur
djöflast á stöðu svarta kóngsins.
14. f4 h4 15. h3 Hc8 16. Hadl
Ke7 17. Bg4 Hhd8 18. Hd2 Ba7.
Staða hvíts er sterk og hann hefur
ágæt sóknarfæri. En ekki má
vameta mótspil svarts. 19. e5 f5.
Varkárir skákmenn myndu
leika hér 20. Bf3 og hvíta staðan er
aðeins betri. En gæfan fylgir þeim
djörfu! 20.Bxf5! exf5 21.Dxf5
Hg8 22.Hfdl Hcd8.
23. Hd5?! Þessi leikur er
djarfur mjög og keppendur eyddu
miklum tíma. En þessi glæsilegi
leikur er ekki góður (?!) Hér
kemur til greina að leika 23.Df6+
Ke8 24.Í5 með öflugri mátsókn eins
og Jón Viktor Gunnarsson hefur
stungið upp á. 23. -Hg6 24. Dh5
Hdg8 25. Dxh4+ Ke8 26. Hld2
Bxd5?! Hér virðist 26. -Dc4! vinna
skákina fyrir svartan, annar
leikur er 26. Db6! En það er ekki
nóg að vera með unnið. 27. Rxd5
Dc5.
Stefán leikur nú mjög
skemmtilegan leik og svartur má
ekki taka hrókinn vegna mátsins
á e7. En tíminn var mjög naumur
hjá stórmeistaranum og hann sá
ekki leikinn 28. Hh6! sem virðist
vinna skákina fyrir svartan. 28.
Hd4 f6? 29. Dh7 Hxg2?? Leikur
sig beint í mát í tímahrakinu.
Betra var 29. Kd8 eða 29. fxe5 með
betra tafli fyrir svart. En nú
kemur snoturt mát hjá hvítum.
30. Rxf6+ Eftir 30. Kf8 kemur 31.
Rxd7+ Ke8 32. Rf6+ Kf8 33. Hd8
og mát! 1-0.
Ungir stómieistarar!
Humpy Koneru frá Indlandi varð
fyrsta konan þar 1 landi til að
verða stórmeistari í karlaflokki!
Það er, ekki alveg ljóst hvort hún
sló méf Juditar Polgar sem var
yngst kvenna til að vinna stór-
meistaratitilinn. Judit var 15 ára
og sló met Bobby Fischers en hann
var yngstur til að ná titlinum á sín-
um tíma. Sú indverska er nokkrum
mánuðum yngri en Judit að því er
talið er en fæðingarheimildirnar
eru ekki taldar alveg öruggar. Eins
hefur verið á reiki lengi hversu
gömul Judit Polgar er í raun og
veru en hún var alla vega 12-13 ára
á Egilsstöðum 1988. Indverjar eru
alla vega skiljanlega í skýjunum
yfir sinni stúlku. En metið að
verða yngsti stórmeistari heims
hefur verið margslegið. Sergei
Karjakin, 12 ára!, frá Úkraínu er
yngsti stórmeistari heims, hann
náði titlinum fyrir skömmu. Við
eigum örugglega eftir að heyra
meira um piltinn, hann hefur
aðallega teflt í Úkraínu, sem á nú-
verandi heimsmeistara FIDE í
skák, hinn 19 ára gamal Rustam
Ponomariov! Unglingastarfsemin í
skák er greinilega í góðu lagi þar í
landi.
Haustmót TR
Vetrarvertíðin hjá skákmönn-
um byrjar venjulega með Haust-
móti TR. Sigurður Daði Sigfússon
leiðir á Haustmóti Taflfélags
Reykjavikur með 5 vinninga að
loknum 6 umferðum. í 2. sæti með
4,5 vinninga er Davíð Kjartansson.
3. Kristján Eðvarðsson með 4
vinninga. 4. Magnús Örn Úlfars-
son með 3,5 vinninga. 1 B-flokki er
staða efstu manna: 1. Stefán
Bergsson, 5,5 vinninga, í 2.-3. sæti
eru Guðni Stefán Pétursson og
Stefán Freyr Guðmundsson með 5
vinninga.