Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2002, Síða 25
LAUCARDAGUR 30. N ÓVEMBER 2002
Helgarbloö 33V
25
DV-rayndir Sig. Jökull
Mörg bragðmikil og góð krvdd
fara í marineringuna sem kol-
inn liggur í. Þar á nieðal er
kóríander sem Sveinn sker hér.
Sveinn brýtur saman Voii Ton
deigið svo úr verður kola Dim
Sum, bragðgott snakk á austur-
lenska vísu.
Dim Sum pakkarnir settir inn í
200 gráða lieitan ofn og bak-
aðir í 10 mínútur. Þeir eru
síðan bornir fram volgir með
plómu-chilli ídýfu.
Frábær matarvín frá
Rínarbökkum og Alsace
- er val Ágústs Guðmundssonar, víndeild Globus
Ágúst Guðmundsson hjá víndeild Globus er á
þýskum og frönskum nótum í vali á vínum með
réttunum hér til hliðar en þetta eru spennandi rétt-
ir sem gefa skemmtilega möguleika i vínum. í sum-
ar sem leið hitti Ágúst einn virtasta víngerðar-
mann Þýskalands, Hanns Joachim Louis Gúntrum,
og konu hans. Víngerð þeirra stendur í miklum
blóma við bæinn Nierstein við bakka Rínar. Með
fyrri réttinum frá þeim í Fylgifiskum mælir Ágúst
einmitt með víni frá Louis Gúntrum.Yellow Bottled
Spátlese. Þetta vín hefur ljósgylltan og tæran lit
með góða meðalfyllingu. Vinið er hálfsætt með
nokkuð grösugan og kryddaðan ávöxt. Yellow
Bottled Spatlese býður upp á nokkurn fjölbreyti-
leika hvað varðar mat, hentar ekki síst réttum með
austurlensku yfirbragði eins og kolanum hér til
hliðar. Einnig gæti þetta vín fallið vel að léttum
fuglakjötsréttum og fersku sjávarfangi, þó ekki
mjög feitum fiski. Kjörhitastig vinsins er um 10-11
gráður. Áríðandi er að hafa vínið ekki of kalt en
það dregur úr skemmtilegum ávextinum í bragði.
Yellow Bottled Spatlese fæst í verslunum ÁTVR og
kostar 890 krónur sem verður aö teljast góð kaup.
Með seinni réttinum færir Ágúst sig yfir til
Frakklands, nánar tiltekið til hins óviðjafnanlega
hvítvínshéraðs Alsace. Þar verður Gewúrstraminer
Reserve frá Frederic Emile Trimbach fyrir valinu.
Trimbach-fjölskyldan hóf víngerð um miðja 17. öld
og er i dag með höfuðstöðvar sínar í bænum
Ribeauvillé. Vínin frá Trimbach hafa lengi notið
mikiUar hylli á mörkuðum víða um heim.
Gewúrstraminer Reserve 1998 er tært með
fallegan gylltan litarflöt og framkallar þykka
tauma þegar glasinu er „þyrlað“. Vínið hefur
góða fyllingu og þéttan kryddaðan ávöxt þar
sem suðrænir ávextir eru fyrirferðarmikl-
ir. Einnig má greina mild steineftii og
sætu í eftirbragðinu. Vínið er farið að
sýna nokkum þroska og verður best til
drykkjar næstu tólf mánuði. í réttinum
frá Fylgifiskum er mikiö af bragðmiklu
hráefni eins og pipar, chilli, engifer og hrís-
grjónaediki. Allt eru þetta hráefni sem falla
vel að þeim kryddaða ávexti sem oft einkenn-
ir Gewúrstraminer vínþrúguna. Þetta vín er
frábært matarvin eins og mörg Alsace-vín.
Þau gefa mikla möguleika þegar velja skal
vín með mat.
Alsace-vín eru yndisleg með flestu sjávar-
fangi, feitum fiskréttum, svo ekki sé minnst
á austurlenska rétti. Gewúrstraminer Reser-
ve væri einnig gaman að drekka með bragð-
meiri ostum á borð við Munster og Dímon.
Gewúrstraminer Reserve 1998 verður komið
til sölu í sérbúð ÁTVR í dag og kostar flask-
an 1.890 krónur.
Umsjón
liaukur Lárus
Hauksson