Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2002, Page 26
26
Helqa rblaö 13V LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002
Skólavörðustígur:
Endurbótum
fagnað
Gagngerum endurbótum og end-
urgerð Skólavörðustígs frá Klapp-
arstíg og niður úr er lokið. Til að
fagna þessum tímamótum efna
Reykjavíkurborg og rekstraraðilar-
við Skólavörðustig til hátíðar í
dag, laugardag.
Hátíðin hefst kl. 14 á því að Árni
Þór Sigurðsson, forseti borgar-
stjórnar, ávarpar gesti við Kjafta-
klöpp gegnt Hegningarhúsinu.
Milli kl. 15 og 16 mun Guðjón Frið-
riksson sagnfræðingur ganga með
gestum um Skólavörðustíginn og
veita leiðsögn. Gangan hefst neðst
á Skólavörðustíg. Þá mun Jóel
Pálsson saxófónleikari spila af
fmgrum fram og i boði verða veit-
ingar. Verslanir við Skólavörðu-
stíg verða með opið til kl. 18 í dag.
í dag
Fagnar endurgerð
Svava Jónsdóttir í Galleríi Sntíðar
og skart fagnar endurgerð
Skólavörðustígs eins og fleiri.
Hefðbundin óöyr
Tekur lítið pláss.
Verð kr. 1.324.
'mM
HefðB
Skálifrei
Verð 2.9!
Jólabúði
iKtefðHundin með skal'
iti#si
Ssmmm
ELDHUS-
VOGIR
Úrvailð er hjá okkur.
Þesaar oru aðelns hluti úrvalsirts.
byggtogbúiö
, Kringlunni
Smaralind 568 9400
554 7760
Jólaleg búð í Þingholtunum
Anne Helen Lindsay segist afar ánægð með móttökurnar sem Litla jólabúðin hennar hefur fengið frá því hún
var opnuð í apríl. Mcðal þess sem þar býðst eru handunnar íslenskar jólavörur frá snjöllu handverksfólki
víða um land.
Anne Helen Lindsay rekur Litlu jólabúðina allt árið á Grundarstíg:
Heillandi jólaveröld
í Þinghol tunum
Ég opnaði í april og fékk strax
afar góöar viðtökur hjá ferðamönn-
um enda búðin stíluð á þá yfir
sumarmánuöina. Þeir gátu sest út í
garð með kafíi og keypt sér falleg-
ar jólavörur, aðallega íslenskt
handverk. Frá og með október hef
ég hins vegar stílað á íslenska
markaðinn enda aðventan á næsta
leiti og öll umgjörð jólalegri. Nú er
minn tími,“ sagði Anne Helen
Lindsay sem á og rekur Litlu jóla-
búðina í bakhúsi að Grundarstíg 7.
Búðin ber nafn með rentu þar
sem hún er líklega ein minnsta
jólabúð hér á landi og þó viöar
væri leitað. En úrval jólavara í
búðinni er ekki í neinum takti við
nafnið því það er afar mikið og fjöl-
breytt. Aðkoman að búðinni er
mjög skemmtileg, sérstaklega eftir
aö skyggja tekur. Þegar gengið er
suður Grundarstíginn glittir í
ljósaskreytt grindverk sem leiðir
vegfarendur að litlu bakhúsi. Þar
rekur Anne litla heildsölu og versl-
unina og jólin eru í hávegum höfö
allan ársins hring.
„Ég vil hafa jólabúðina opna allt
árið og viðbrögðin fyrstu mánuð-
ina benda til að það sé vel gerlegt,"
segir Anne sem bæði selur inn-
fluttar jólavörur af öllu tagi auk
innlendrar framleiðslu. Þar nýtur
hún göðs af duglegu handverks-
fólki um allt land sem sendir henni
vörur sem hún síðan selur. „Orig-
inal“ íslenskar jólavörur gefa búð-
inni sérstakan og skemmtilega
andblæ. Þessi búð er sannarlega
öðruvísi, frábrugðin verslunarmið-
stöðvum eða verslunargötum með
tilheyrandi erli.
Anne Helen hefur lengi sinnt
verslunarstörfum. Hún varð hins
vegar atvinnulaus á síðasta ári og
í stað þess að þiggja atvinnuleysis-
bætur ákvað hún að stofna eigin
fyrirtæki og hefja verslun með
jólavörur. Hún tók lítið bakhús á
lóöinni í gegn og opnaði búðina
síðan i apríl eins og áður sagði.
Hún segist alsæl með að hafa
tekið þessa ákvörðun.
„Maður verður að reyna að
bjarga sér og þetta er auk þess
mjög skemmtilegt. Ég hef auglýst
mikið á stöðum þar sem ferðamenn
koma og það er ákveðin samvinna
hjá okkur sem sinnum ferðamönn-
um. Síðan fæ ég mjög marga ferða-
menn sem eru á leið upp á holtið
að skoða Hallgrímskirkju. En nú
er líka nóg að gera enda íslending-
ar í jólahugleiðingum farnir að
láta meira á sér kræla.“ -hlh