Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2002, Síða 28
28
HelQctrblað H>"Vr LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002
Þctta er áróöursljósnivnd sem var ætlaö að sýna hve góð samskipti her-
menn ættu við innfædda. Konurnar sem brugðu sér í íslenskan búning í
tilefni dagsins eru Ingibjörg Pétursdóttir, húsfreyja á Reykjum í Mos-
fellssveit, til hægri, ásamt Ingibjörgu Árnadóttur ráðskonu. Hermaðurinn
er úr kanadísku herfylki sem hafði bækistöðvar sínar þar í túnfætinum
og mun þessi uppstilling vera eina samvinnuverkefni þessara aðila.
Herflokkar fóru uni bæinn daginn sem ísland var hernumið og handtóku Þjóðverja og þýska skipbrotsmenn.
Þarna sjást þeir marséra á kunnugleguin slóðum fyrir frainan Hótel Borg sem enn er á sfnum stað þótt Nora
Magasín sé horfið.
ísland í hers höndum
Þessi mynd sýnir skemmtilega hvernig raunverulegur aðbúnaður her-
manna, sem voru svo óheppnir að vera sendir til íslands, var í raun og
veru. Hér hafa hermenn lagt af sér vopn og verjur og þyrpst í bað í Bað-
húsi Reykjavíkur sem í eina tíð var að finna í Kirkjustræti.
Þór Whitehead sagnfræðingur
hefur verið öðrum fræðimönnum
iðnari við að skrásetja aðdraganda
seinni heimsstyrjaldarinnar á ís-
Einn afskckktasti varðstaður herveldisins á íslandi var án efa í Aðalvík á Ströndum en þar byggðu Bretar rad-
arstöð á fjallinu Darra. Þessi mynd er tekin í Aðalvík í maí 1941 og sýnir breska hermenn sem hafa brugðið sér
í útreiðartúr með heiinamönnum. Aðalvík fór í eyði skömmu eftir stríðslok.
landi eins og ritröð hans: Island í
síðari heimsstyrjöld, ber vitni um
en hún telur nú alls fimm bækur
en sú fyrsta kom út 1980.
Nýjasta bókin í röðinni ber nafn-
ið ísland í hers höndum og er eins
og nafnið bendir til ljósmyndabók.
Þar birtast á sjötta hundrað ljós-
mynda en Þór hefur áratugum
saman safnað ljósmyndum austan
hafs og vestan, bæði í söfnum og
hjá einstaklingum.
Hverri einustu mynd fylgir itar-
legur texti sem ljóst er að hefur
orðið til með gríðarlegri heimUda-
vinnu og viðtölum og sumar mynd-
anna hafa aldrei sést opinberlega
áður. Myndir segja meira en þús-
und orð og það verður ljóst viö að
fletta þessari bók því sú Reykjavík
og það ísland sem þar blasir alls
staðar við er það ísland sem stökk
á ógnarhraða inn í nútímann á
stríðsárunum eftir aldalanga kyrr-
stöðu.
Við birtum hér nokkrar myndir
úr þessari stórfróðlegu bók sem
geta varpað ljósi á það stórvirki
sem höfundur hefur augljóslega
unnið.
Ungur piltur á Seltjarnnrnesi stillir sér upp við hlið hernianns í varð-
stöðu skammt frá Sæbóli við Nesveg í ágúst 1940. Þarna sést hve
snemma krókurinn beygist því pilturinn sem þarna er níu ára er Helgi
Hallvarðsson sem seinna átti giftusaman starfsferil sem skipherra hjá
Landlielgisgæslunni en hún er stundum kölluð fslenski sjóherinn. Það
var það næsta sem hann komst því að verða hermaður.