Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2002, Page 50
54
Helqarblaö JÖV LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002
Sextán
ára í flokkinn
Með þvíað tryggja sér öruggt
þingsæti íprófkjöri sjálfstæðis-
manna fgrir viku verður Sigurður
Kári Kristjánsson íhópi gngstu
þingmanna. Hann er strákur úr
Breiðholtinu sem ólst upp við fót-
bolta og smitaðist snemma af
ólæknandi áhuga á stjórnmálum.
Sigurður Kári Kristjánsson er tæp-
lega þrítugur lögfræðingur sem verð-
ur i öruggu þingsæti á lista sjálf-
stæðismanna í Reykjavík í þingkosn-
ingunum í vor. Þær fara fram nánar
tiltekið 10. maí eða daginn eftir að
Sigurður Kári verður þrítugur. Þetta
gerir hann líklega að yngsta þing-
manni á því þingi sem þá verður
skipað og í sögulegu samhengi lend-
ir hann í flokki fárra en harðsnú-
inna þingjaxla sem eiga það eitt sam-
eiginlegt að hafa sest á þing innan
við þrítugt þótt það standi auðvitað
glöggt í hans tilviki. í þessum hópi
er að finna menn eins og Eystein
Jónsson, Gunnar Thoroddsen, Hall-
dór Ásgrímsson, Steingrím J. Sigfús-
son, Guðmund Ágústsson og Ragnar
Amalds og eru þá líklega ekki allir
taldir. Þrítugt er frekar ungt í hópi
þar sem meðalaldurinn hefur vafrað
frá 47 til 51 síðustu 60 árin.
Sigurður Kári er lögfræðingur
eins og fyrr segir og starfar á lög-
mannastofunni Lex í hópi nokkurra
lögfræðinga sem sumir eru þekktir
en aðrir ekki. Við tölum saman á
skrifstofu hans í Olís-húsinu við
Sundagarða þar sem er útsýni til
austurs.
„Ég er mjög ánægður með þetta,
finnst ég vera kominn í virðulegan
hóp,“ segir Sigurður þegar hans ungi
aldur samanborið við þingmenn er
til umræðu.
Krossaði við allt
Sigurður Kári Kristján.sson trj’ggði sér öruggt þiugsæti í prófkjöri sjálfstæðismauna í Reykjavík. Hann er strákur úr Breið-
holtinu sem verður í liópi allra yngstu þingmanna.
Sigurður Kári fór í gegnum Hóla-
brekkuskóla, Verslunarskóla íslands
og lagadeild Háskóla Islands. Á leið
sinni um skólakerfið hafði hann við-
komu á mjög mörgum þeirra við-
komustaða sem ungir og upprenn-
andi stjórnmálamenn eiga leið um.
Hann var framarlega í félagslífi, var
formaður Nemendafélags VÍ, keppti
af hörku i ræðuliði skólans 1 Morfís
ásamt vinum sínum, Rúnari Frey
leikara, Ólafi Teiti blaðamanni og
Gísla Marteini sjónvarpsmanni, og
þeir félagar voru býsna harðir í hom
að taka. Sigurður var einnig í liði
sins skóla í Gettu betur sem komst í
úrslit. Síðan var hann aðsópsmikill í
stúdentapólitíkinni en segir sjálfur
að hann hafi ákveðið að hella sér út
í stjórnmál af alvöru þegar hann sett-
ist í stjórn Heimdallar 1995. Hann settist síðan í
stjórn SUS 1997 og varð formaður þar 1999 eftir að
hafa verið kosningastjóri forvera síns í embætti,
Ásdísar Höllu Bragadóttur. Formaður SUS hefur
seturétt og málfrelsi á fundum þingflokks sjálfstæð-
ismanna og Sigiu'ður Kári segir að þegar hann lét
af formennsku í SUS haustið 2001 hafi hann i raun
ákveðið að taka þátt í þessu prófkjöri sem nú er ný-
afstaðið og kynni hans af þingflokki sjálfstæðis-
manna hafi ráðið úrslitum.
Félagar fljúgast á
Margir spáðu því fyrirfram að framboð Ingva
Hrafns, aðstoðarmanns Sólveigar dómsmálaráð-
herra, og Sigurðar kynnu að taka fylgi hvert frá
öðru en þeir eru næstum jafnaldrar og félagar úr
lagadeildinni. Annað kom á daginn. Segja má að í
næsta holli á undan séu Guðlaugur Þór Þórðarson
og Birgir Ármannsson sem eru 5-6 árum eldri en
Sigurður en hafa átt mjög áþekka leið gegnum
skólakerfi og æfingabúðir í stjórnmálum sem þar
er að finna. Af þessu öllu saman má ráða að í skóla-
kerfinu eru starfandi nokkrar félagsmaskínur sem
virðast framleiða stjómmálamenn.
„Ég skráði mig í Sjálfstæðisflokkinn 1989 til þess
að kjósa Birgi Ármannsson, formann Heimdallar, í
erfiðri kosningabaráttu. Þá var ég sextán ára,“ seg-
ir Sigurður Kári.
Það er nánast hefð fyrir harðvítugum átökum um
forystu í ungliðasveitum Sjálfstæðisflokksins og
sjálfur barðist Sigurður eins og ljón á SUS-þingi í
Eyjum við Jónas Þór Guðmundsson 1999. Það er
hægt að stikla eftir ártölunum inn í fortíðina og sjá
Guðlaug Þór takast á við Jónas Fr. Jónsson, Árna
Sigfússon og Sigurbjörn Magnússon allt aftur til
1973 þegar Friðrik Sophusson og Björn Bjarnason
tókust á um forystu í SUS á frægu þingi á Egilsstöð-
um.
Af hveiju pólitík?
- Nú ert þú lögfræðingur í góðu starfi og getur
tekið mörg þúsund krónur á tímann. Hvað færðu í
staðinn fyrir að vasast í pólitík?
„Ég hef svo mikinn áhuga á þessu. Maður verður
ekki ríkur af þvf að sitja á Alþingi. Það er alveg
klárt enda ekkert sérstakt keppikefli hjá mér að
verða ríkur. Ég er að elta mín áhugamál. Þetta er
mikið félagslíf og maður sækir í samstarf með fólki
og ég hef ákveðna lífssýn og skoðanir sem ég vil