Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2002, Page 52
HelQarblacf DV LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002
5fe
Reynsluakstur nr. 723
Reynsluakstur
Njáll
Gunnlaugsson
Góöur akstursbíll
á betra verði
Kostir: Frágangur, aksturseiginleikar
Gallar: Lágt undir hann, lykiakippa
Lexus hefur nú sett á markað nýja gerð af Sport
Cross og er eitt eintak komið til landsins. Bíllinn er
með sama lagi og áður en fæst nú með tveggja lítra
vélinni og kallast þá IS200 Sport Cross. Þannig er
hann fáanlegur ódýrari og einnig beinskiptur sem
gerir bílinn skemmtilegri, eins og DV-bílar reyndu á
dögunum.
Eins að innan
Að innan er bíllinn líkur öðrum IS200 bílum að
öðru leyti en því að komin er hefðbundin gírstöng.
Virkar hún reyndar frekar mjóslegin miðað við aðra
bíla en það hefur reyndar engin áhrif á notkun henn-
ar. Mælum svipar til skifna i kafaraúri og innrétting-
in er vönduð í flesta staði. Eitt var þó að fara í taug-
amar á undirrituðum en það voru háværir smellir í
lyklakippu þegar hún dinglaöi við hart plastefni í
mælaborðinu, fyrir neðan svissinn. Hefði verið lítið
mál að setja mýkra efni þar til að losna við þetta leið-
indabank.
Góður frágangur
Bíllinn er ágætlega rúmgóður þótt hann taki minna
heldur en helstu keppinautar. Hægt er að fella niður
aftursæti til að skapa meira flutningsrými. Útsýni er
ágætt fram á við en blindhornin fyrir aftan bilinn eru
nokkuð stór. Athygli vekur góður frágangur á verk-
færum og varadekki aftur í sem komið er fyrir í sér-
hönnuðum hólfum. Annað sem vert er að nefna eru
góö hljómtæki með geislaspilara og sex hátölurum
sem er lágmarksbúnaður í Lexus. Bíllinn er hljóðlát-
ur í akstri þrátt fyrir lágbarða dekk.
Nýtur sín sem akstursbíll
Sem akstursbíll fær bíllinn mest að njóta sín. Vél-
in skilar ágætisafli þótt munurinn á henni og vélinni
í IS300 sé auðfmnanlegur. Bíllinn er afturhjóladrifinn
og búinn spólvörn svo að hann virkar öruggur í
beygjum en þegar slökkt er á henni er hann fljótur að
fara út í yfirstýringu nema að ökumaður sé vel vak-
andi. Reyndar minnkaði þessi tilhneiging bílsins með
fleiri farþegum. Þrátt fyrir lágbarða dekk og stórar
felgur er ekki hægt að segja að fjöðrun í bílnum hafi
verið óþægileg. Hún er kannski í stífari kantinum,
enda hentar slík uppsetning bílnum afar vel. Stýrið
er nákvæmt þótt það þurfi nokkra vinnu við það.
Á viðráðanlegu verði
Með tveggja lítra vélinni er bUlinn nú boðinn bein-
skiptur á 3.100.000 kr. sem verður að teljast viðráðan-
legt verð fyrir bíl í þessum tlokki. Hann er svipað bú-
inn og Alfa Romeo 156 Sportwagon sem er aðeins
ódýrari, á 2.960.000 kr. Lexus IS200 Sport Cross nær
þó ekki að keppa við sambærilegar útgáfur Benz og
BMW en þeir eru í báðum tiifellum nokkuð dýrari.
-NG
Vél:
LEXUS IS200 SPORT CROSS
2ja lítra, sex strokka bensínvél.
Rúmtak:
1988 rúmsentímetrar.
Ventlar:
24
Þjöppun:
10,1:1
Gírkassi:
Sex qíra beinskiptur
UNDIRVAGN:
Fjöðrun framan:
Tvöföld klafafjöðrun
Fjöðrun aftan:
Tvöföld klafafjöðrun
Bremsur:
Loftkældir diskar/diskar, ABS, EBD, TRC
Dekkjastærð:
215/45 ZR17
YTRI TOLUR:
Lenqd/breidd/hæð:
4505/1725/1430 mm
Hjólahaf/veqhæð:
2670/135 mm.
Beyqjuradíus:
10,8 metrar.
INNRI TOLUR:
Farþeqar m. ökumanni:
5
Fjöldi höfuðpúða/öryqqispúða:
5/6
Faranqursrymi:
365-1010 lítrar.
HAGKVÆMNI:
Eyðsla á 100 km:
9,8 litrar
Eldsneytisqeymir:
70 lítrar
Ábyrqð/ryðvörn:
3/12 ár
Grunnverð:
3.100.000 kr.
Umboð:
P. Samúelsson
Staðalbúnaður: Rafmagn í rúðum og speglum, upphitað-
ir speglar, 6 öryggispúðar, geislapilari með 6 hátölurum,
16 tomma álfelgur, fjarstýrðar samlæsingar, armpúði,
hæðarstilling á framsætum, niðurfellanlegt framsæti,
loftkælinq, þokuljós, spólvörn,
SAMANBURÐARTOLUR:
Hestöfl/sn.:
155/6200
Snúninqsvæqi/sn.:
195 Nm/4600
Hröðun 0-100 km:
9,5 sek.
Hámarkshraði:
215 km/klst.
Eiqin þynqd:
1430 kq.
o Vegna sveigjulagsins á afturenda tekur bíllinn
ekki eins ntikið og hans helstu keppiuautar.
© Vélin er sú saina og í fjögurra dyra bílnuni,
þokkalega aflmikil en ekkert meira en það.
ð Innréttingin er með hefðbundnu Lexus-útliti og
vel útfærð.
© Það er skemmtilegur frágangur á verkfæruin og
þess háttar aftur í og undir þessu leynist vara-
dekk í fullri stærð.