Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2002, Side 53
I_A.UGARDA.GUR 30. NÓVEMBER 2002
57
/ / e / C) c) rbla rJ H>"V
Stórtega hefur dregið úr
mengun af völdum bíla
Með tilkomu ýmissa þátta, svo sem
rafeindatækninnar og hvarfakútanna
sem skyldubúnaðar fyrir áratug, var
stórlega dregið úr mengun af völdum
bilvéla. Mestur er munurinn þegar CO
(kolmónoxíð, kolsýrlmgur) á í hlut og
þegar dísilvélar eiga í hlut einnig sót-
mengun eða reykmengun, sem mæld
er í ppm (parts per miilion) - kallað
reykþykkni. Blýmengun, sem áður var
mikil, er nú nánast horfm.
Rafeindatæknin, sem gerði einbunu-
tæknina (samrásarinnsprautun) mögu-
lega, og strangar og stigvaxandi kröfur
Evrópubandalagsins með stöðlum sem
nefhast EURO, að viðbættri tiltekinni
tölu, hafa dregið verulega úr mengun
af völdum dísilvéla, þar með talið sót-
mengun. Með hækkandi EURO-tölu fer
þessi mengun minnkandi.
Þegar nýjar kynslóðir bensínvéla
með hvarfakút eiga í hlut má segja að
stöðugleiki lítillar mengunar hljóti að
teljast góður. Rafeindastýrð vélar-
stjómun bílsins fær jafht og þétt skila-
boð frá hvarfakútnum og leitast í sí-
fellu við að hafa nýtingu eldsneytisins
sem jafnasta, sem þýðir beinlínis að
vélin er stöðugt að stifla sig sjálf og
heldur með því menguninni í lág-
marki. Þessari tækni hefur líka farið
fram, þannig til dæmis að það tekur nú
styttri tima frá því að bíll er kaldræst-
ur þar til hvarfakúturinn er farinn að
virka.
Sigurður Hreiðar
Hreiöarsson
Blaðamaður
Bílaljós
Dísilvélar fara yfir staðal-
mengun
Þetta er ekki eins öraggt með dísil-
vélamar. Euro-staðallinn kveður á um
hvaða kröfur bílamir eiga að standast
þegar þeir koma nýir út úr verksmiðj-
unni. I sumum tilvikum - ekki öllum -
verða þeir að standast tilteknar kröfur
eftir ákveðinn akstur. Staðallinn er
miðaður við meðaltal. Hvað sótmeng-
un dísilvélanna snertir er engin sjálf-
virkni á borð við hvarfakúta bensín-
vélanna. I reynd menga bílamir í
mörgum tilvikum mun meira en
EURO-staðallinn gerir ráð fyrir. í
hvert skipti sem þeir era teknir af stað
úr kyrrstöðu og þurfa að vinna sig upp
í eðlilegan umferðarhraða puðra þeir
langtum meira af sótögnum út í and-
rúmsloftið en staðallinn segir til um;
hann er meðaltal þar sem gert er ráð
fyrir að langkeyrsla og stuttir spottar
skiptist á nokkuð til jafnaðar.
Bílar sem mest era notaðir á stutt-
um leiðum - vöru- og sendibilar í efh-
isflutningum og snatti stuttar leiðir,
fólksflutningabílar og strætisvagnar
sem stansa oft og þétt, menga notkun-
ar sinnar vegna meira og jafiivel vera-
lega meira en EURO-staðallinn segir til
um.
Eitraða loftíð litíaust
Enn er ótalinn koltvísýringur
(koldíoxíð, koltvíildi, C02). Þegar
brennt er jarðefnaeldsneyti (bensini,
olíu, kolum) fer óhjákvæmilega koltví-
sýringur út í loftið. Sama gerist raun-
ar þegar fólk og önnur dýr anda frá sér
eða láta frá sér loft með öðrum hætti
þannig að þetta efni er í sjálfu sér afar
náttúrlegt og magn þess hlýtur að
aukast með vaxandi fólksfjölda. Á viss-
an hátt er það undirstaða lífs á jörð-
inni því gróska gróðurs er að verulegu
leyti undir koltvísýringi, C02, komið.
Plöntur taka C02 til sín gegnum svo-
kallaða ljóstillífun og breyta því í vöxt
- til dæmis grænmeti, sem sagt er
fjarska hollt. í of stórum skömmtum er
þetta efhi þó eitur og bráðdrepandi og
kannski varasamast fyrir það að það
er litlaust og lyktarlaust. Eðlilegt
magn þess í andrúmslofti er um
0,036%. '
Langoftast þegar fréttamiðlar þurfa
að myndskreyta loftmengun kjósa þeir
að sýna mynd af gufu úr púströri á bíl.
Þegar heimilisbíllinn á í hlut er þetta
oftast aðeins gufa af vatni sem mynd-
ast fyrir þéttingu af völdum kælingar
útblástursins á ferð hans um útblástur-
skerfið. Hin eiginlegu eiturefiii sem
koma ft-á sæmftegri bílvél eru hins
vegar ósýnileg. Það eru aðeins frá vél-
um sem „brenna“ - það er smurolían
af vélinni kemst í svo miklum mæli
upp í sprengihólfm að hún nær að
dekkja útblásturinn - sem þessi meng-
un verður sýnileg. Þó er það sjaldan
nema í litlum mæli og gjarnan í sam-
bandi við gírskiptingar, snöggt við-
bragð eða annað álíka.
Blár eða grár útblástur úr bensín-
vélum, sem stafar af vondri eldsneyt-
isnýtingu, sést varla lengur, og þá ekki
nema úr bílum með „gömlu“ númer-
unum sem era með blöndunga og plat-
ínukveikjur og því sjaldan með ýtrustu
stillingu.
26 þúsund manns á dag í
strætó
Samt er seint og snemma klifað á
bílnum sem mengunarvaldi og meira
að segja Strætó bs notar mengunar-
grýlu einkabílsins í auglýsingum sem
hvatningu fyrir almenning að nota al-
menningssamgöngur frekar en einka-
bílinn. Yfir þessu hafa menn gjaman
velt dálítið vöngum. Reykþykknið úr
púströrum vagnanna er oft æði ber-
sýnilegt og eins hefur oft verið haft á
orði að sá sem ferðast með strætó búi
við mikinn lúxus - hafi einkabílstjóra
Schumacher á Alfa GTA
Michael Schumacher hefur fengið
sér Alfa Romeo 156 Sportwagon
GTA, en sá bíll er lítil 250 hestöfl.
Það er kannski ekki mikið fyrir for-
múluhetjuna en slíkur bíll kostar þó
hingað kominn aðeins 5.760.000 kr.
Segja má að þetta sé sportbíll með
plássi fyrir alla fjölskylduna,
golfsettið, hundinn og skíðin.
Hröðunin á GTA er 6,3 sekúndur
í 100 km og fæst hann bæði með
hefðbundinni gírskiptingu og skipt-
ingimni Fl-Selespeed. Báðar skipt-
ingamar eru 6 gíra.
Leiðrétting
I reynsluakstrinum um Alfa
Romeo 156 um síðustu helgi urðu
þau mistök í tækniupplýsingunum
að bíllinn var sagður eyða 11,6 litr-
um á hundraðið í blönduðum
akstri. Það rétta er aö hann eyðir
8,6 lítrum á hundraðið sem fyrir
tveggja lítra vél er i góðu meðallagi
og því ekki rétt að taka fram sem
galla að hann eyði miklu. Leiðrétt-
ist það hér með.
Dísilbílar gefa frá sér sótagnir - svokallað reykþykkni. Það fer þó minnk-
andi með endurbættum véluni í samræmi við Evrópustaðla. Staðlarnir
eru þó miðaðir við meðaltöl og nýjar vélar þannig að mcngun af þeim er
gjarnan rneiri en staðlarnir kveða á um, einkum þar sem þétt er stöðvað
og tekið af stað á ný.
Daufa gufan sem kemur út um
púströrið meðan einkabíllinn er
að ná eðlilegum vinnuhita er ekki
til að óttast. Hin raunverulega
mengun er litlaus og sést ekki.
Eitt hinna hættulegu útblástursefna
er koltvísýringur - C02. Eins og
mörg önnur efni er þetta þó hið
ákjósanlcgasta efni þar sem það er í
réttu magni á réttum stað á réttum
tíma. Plöntur lifa á því að verulegu
leyti og mannfólkið sækist eftir því
til neyslu þegar plönturnar liafa
ummyndað það með Ijóstillífun -
svo sem að gera úr því grænmeti.
og býsna rúmgóðan bíl. Með þessu er
skírskotað til þess að í mörgum ferð-
um þessara vagna séu farþegar afar
fáir. Þó er ekki allt sem sýnist og hér
sem víðar er það ekki síst meðaltalið
sem gildir. Samkvæmt upplýsingum
Strætó bs. ferðast 9,4 milljónir manna
á dag með almenningsvögnum á höfuð-
borgarsvæðinu, eða 26 þúsund manns
á dag hvem einasta dag ársins til jafn-
aðar.
Miðað við þær tölur verður mýtan
um einkabílstjóra strætófarþegans
einmitt að þeim brandara sem hún er.
DV-bílar hafa leitað eftir saman-
burði á mengun einkabílsins og al-
menningsvagnsins út frá þeim tölum
og reiknistöðlum sem fyrir liggja og
verður fjallað um þær í næsta bílaljósi
DV. I framhaldi af því verður einnig
komið inn á vetni sem orkugjafa farar-
tækja, en fyrir liggur að strætó mun
taka í notkun tilraunabíla af því tagi
þegar á næsta ári.
tuhinjL ú ^klandi
Svo sem fram hefur komið er
nú unnið að sögu bílsins á ís-
landi, en senn er öld liðin frá því
að fyrsti bíllinn kom hingað til
lands. DV-bíIar mun á næstunni
leggja hönd að þessu verki með
því að leita eftir upplýsingum.
Þeir sem vilja leggja hönd á plóg-
inn eru beðnir að hafa samband
við söguritara, Sigurð Hreiðar, í
sima 895 1635 eða senda honum
tölvupóst á netfangið
auto@simnet.is.
Bíll og blá fjöll
Þessi rómantíska mynd úr
sveitasælunni er dæmi um það
hvemig gamall bíll getur bætt
upp fallegt landslag og vinalegt
umhverfi. Hér myndar gamall,
þreyttur vörubíll skjól fyrir bú-
fénað á flatlendi þar sem annars
væri fátt til að skýla sér við.
Tíguleg, hreinskorin fjöll með
hvítum bryddingum mynda bak-
grunninn í fjarska. -SHH
Baleno Wa
1/99, ek. 75
on 4x
us.
kr. 1140 þús.
Suzuki Swift GLS. 3dr., bsk.
Skr. 9/99, ek. 23 þús.
Verð kr. 750 þus.
Suzuki Vitara JLX, 5dr., bsk.
Skr. 6/99 ek. 86 þús.
Verð kr. 1090 þús.
Suzuki Baleno GLX, 4dr.,
bsk. Skr. 8/99, ek. 39 þús.
Verð kr. 1150 þús.
Suzuki Grand Vitara 2,0
bsk. Skr. 11/98, ek.87þús.
Verð kr. 1490 þús.
Suzuki Grand Vitara V-6,
sjsk. Skr. 2/99, ek. 65 þús.
Verð kr. 1850 þús.
Suzuki Jimny JLX, bsk.
Skr. 6/02, ek. 15 þús.
Verð kr. 1480 þús.
Chrysler Stratus 2,5, sjsk.
Skr. 3/97, ek. 113 þús.
us.
Verð kr. 890 þus.
Skoda Octavia Elegance,
sjsk. Skr. 10/02, ek. 1 þús.
Verð kr. 1890 þúsV
VW Golf Comfort 4motion,
bsk. Skr. 11/00, ek. 34 þús.
Verð kr. 1650 þús.
Sjáöu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, simi 568-5100