Dagblaðið - 12.10.1981, Blaðsíða 21
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 1981.
21
I
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
ViggóSigurdsson:
Vestur-þýzka knattspyman:
Enn gerir Atli það gott
—Diisseldorf sló bikarmeistara Frankf urt út úr bikamum og Atli átti mjög góðan leik
Frá Viggó Sigurflssyni, Leverkusen:
Alit gengur nú eins og i sögu hjá For-
tuna Diisseldorf eftir að Atli Eðvalds-
son var keyptur til félagsins. Á laugar-
dag sló Diisseldorf sjálfa bikarmeistar-
ana Frankfurt út úr bikarnum og Atli
átti mjög góðan leik. Hann fékk mikið
lof frá þjálfara Dússeldorf eftir leikinn,
og talað var um að Atli og Thomas All-
ofs hefðu verið beztu menn liðsins.
Allofs skoraði mjög ódýrt mark þegar
á 6. mín., hlægilegt mark að sögn
þýzkra. Stefan Lottermann jafnaði
fyrir bikarmeistarana á 25. mín. Man-
fred Bockenfeld skoraði annað mark
Dússeldorf á 72. min. og Rudi Bommer
innsiglaði sigurinn með marki á 87.
min. Dússeldorf átti sigurinn skilinn,
sótti nær látlaust og átti mörg færi.
Slæm fjárhagsstaða, sem meðal annars
leiddi til sölu Klaus Allofs til Köln,
gæti leitt til þess að félagið neyddist til
að selja Thomas bróður hans. Aðeins
15.000 áhorfendur sáu leikinn.
Úrslitin í vestur-þýzku bikarkeppn-
inni á laugardag urðu þessi:
Dússeldorf-Frankfurt 3—1
Bielefeld-Núrnberg 0—1
Bayern M.-SV Neckargerach 5—1
Duisburg-FK Pirmasens 3—0
Darmstadt 98-Hasseabingen 4—1
SSV Salmarohr-Werder Bremen 0—3
HSV-EintrachtTrier 2—1
M’gladbach-HannoverOSV 3—1
Karlsruhe-WuppertalerSV 3—0
Stuttgart-T uS Oberwinter 10— 1
Bochum-FC Tailfingen 3— 1
Elversberg-Dortmund 1—4
FC Köln Amateur-Leverkusen 3—3
Aachen-SC Freiburg 2—1
Wattenscheid-Hannover 96 2—2
Vestur-þýzki
handboltinn
Úrslit i vestur-þýzka handboitanum
um helgina:
Núrnberg-Leverkusen 24—18
Berlin-Gummersbach 17—17
Göppingen-Nettelstedt 20—16
Hofweier-Dietzenbach 25—18
Allt gengur á afturfótunum hjá
Leverkusen, lifli Viggós Sigurflssonar.
Það gæti þó farið að bregða til betri
tíðar þar sem liðið á nú von á júgóslav-
neskum leikmanni sem miklar vonir eru
bundnar við.
-VS.
ítalskir byrjaðir
að skora!
Úrslitin i 1. deild ítölsku knattspyrn-
unnar um helgina:
Bologna-AC Milano 0—0
Catanzaro-Ascoli 1—0
Fiorentina-Avellino 1—0
Genor-AS Roma 0—1
Inter Milano-Cesena 3—2
Juventus-Cagliari 1—0
Napoli-Como 2—0
Udinese-Torino 3—2
Það er eitthvað meira en lítið ein-
kennilegt að gerast í ítölsku knattspyrn-
unni. Um síðustu helgi enduðu tveir
leikir 2—2 og nú enduðu tveir leikir 3—
2! En AC Milano, lið Joe Jordan, er
samt við sig, markatala liðsins eftir 5
leiki er 1 — 1! Juventus vinnur enn og
hinn 31 árs gamli Roberto Bettega
skoraði sigurmarkið. Hann hefur skor-
að 5 mörk og er að sjálfsögðu marka-
hæstur í 1. deild. Fá lið í deildinni hafa
skorað jafn mörg mörk og Bettega ein-
samall!
Staða efstu liða:
Juventus 5 5 0 0 12—2 10
Fiorentina 4 3 1 0 4—0 7
AS Roma 5 2 3 0 6—4 7
Inter Milano 5 2 3 0 5—3 7
Napoli 5 1 3 1 4—3 5 -VS.
Hessen Kassel-Fortuna Köln 1—0
1860MUnchen-Waldhof Mannh. 0—1
RW Essen-Leiwen 4—1
Freiburger FC-TuS Celle 5—1
FV 08 Weinheim-Osnabrúck 1—3
Hertha Berlin-Viktoria Griesheim 6—2
Neunkirchen-Worms 1—2
Stuttgart Amateur-Bayreuth 1—2
Göttingen-Oberhausen 1 —0
Eppingen-Press Berlin 2—0
FSV Frankfurt-FC Gohfeld 2—0
Viktoria Köln-OLI BUrstadt 1—1
SS V Ulm 46-Wolfsburg 2— 1
Kaiserslautern Am.-UR Hamburg 1—3
Fremur auðvelt hjá Bayern Múnch-
en. Kurt Niedermayer skoraði 2, Paul
Breitner, Bernd Dúrnberger og Dieter
Hoeness eitt hver. Werner Heck skor-
aði sigurmark NUrnberg í Bielefeld.
Ewald Linien, sem slasaðist svo eftir-
minnilega í haust, leikur nú alltaf verr
og verr með Bielefeld, greinilega
hræddur við meiðsli, og missir senni-
lega stöðu sína i liðinu fljótlega. Otto
Rehagel, þjálfari Bremen sem gaf skip-
unina frægu um að ganga frá Linien,
hefur verið sýknaður í yfirrétti, en eins
og kunnugt er kærði Linien hann og
Siegmann, leikmann Bremen, fyrir lík-
amsárás.
Uwe Helmes, Bernard Dietz og Rudi
Gores skoruðu mörk Duisburg gegn
Pirmasens. Darmstadt átti i miklum
erfiðleikum með Hasseabingen, 0—0 i
hálfleik, og áhugamannaliðið jafnaði
1—1. Willi Weiss 2, Rudi Collet og
Helmut Vorreiter skoruðu fyrir Darm-
stadt.
Hamburger Ienti i miklum erfið-
leikum með Eintracht Trier, liðið sem
Elmar Geirsson lék áður með. Franz
Beckenbauer lék nú með Hamburger
að nýju eftir meiðslin sem hann varð
fyrir í haust. Horst Hrubesch var á
bekknum að eigin ósk, hann vildi ekki
taka stöðu Júrgen Milewski sem hefur
leikið mjög vel í fjarveru Hrubesch.
Hann kom þó inn á i leiknum. Holger
Hieronymus skoraði fyrir Hamburger á
8. mín. en Kohr jafnaði á 23. mín. Lars
Bastrup skoraði svo sigurmark
Hamburger á49. mín.
Gladbach vann OSV Hannover með
mörkum hinna ungu leikmanna Uwe
Rahn, og Wolfram Wuttke og Lothar
Mattháus sem allir eru um tvítugt. Uwe
Dittus, Stefan Gross og Wolfgang
Schúler skoruðu mörk Karlsruhe gegn
Wuppertaler sem lék í Bundesligunni
fyrir sex árum. Dieter Lemke, Rahn
og Walter Oswald skoruðu fyrir Boch-
um í fyrri hálfleik gegn Tailfingen.
Markahátíð hjá Stuttgart. Ellefu
mörk, þar af eitt í eigið net. Dieter
Múller skoraði 5 mörk, Didier Six,
Alexander Szatmari, Harald Beck,
Hermann Ohlicher og Karl Allgöwer
eitt hver. Manfred Burgsmúller skoraði
fyrir Dortmund á fyrstu minútu í Elv-
ersberg, Frans-Josef Tenhagen bætti
öðru við á 10. mín. og allt stefndi i stór-
sigur. Aðeins tvö mörk bættust þó við,
Meinolf Koch og Burgsmúller.
Leverkusen náði aðeins jöfnu gegn
áhugamannaliði frá Köln. Framlengt
var en allt kom fyrir ekki. Norðmaður-
inn Arne-Larsen ökland skoraði tvö
mörk og lagði það þriðja upp sem fyrir-
liðinn Júrgen Glowacz skoraði.
í gær dró Helmut Schön, fyrrum
landsliðseinvaldur Vestur-Þjóðverja,
um hvaða lið skyldi mætast í næstu
umferð. Helztu Ieikir: Bayern-Dort-
mund, Duisburg-Karlsruhe, Núrnberg-
Dússeldorf, Hessen Kassel-Bochum,
Stuttgart-Gladbach, Aachen-Ham-
burger, Darmstadt Bremen og RW Ess-
en-Leverkusen eða Köln Amateur.
-Viggó/VS.
K
„Víkingarnir frá íslandi” — Pétur
Ormslev til vinstri og Atli Eðvaldsson
ásamt Jörg Berger, þjálfara Fortuna
Dússeldorf. Myndin var tekin, þegar
Pétur var við æfingar hjá Fortuna
Dússeldorf og birtist i leikskrá félags-
ins. Þeir Pétur og Atli eru nú með is-
lenzka landsliðinu i Swansea i Wales.
Likur á að Pétur fari ásamt Atla til
Dússeldorf eftir HM-leikinn á miðviku-
dag.
AÐSTAÐA
BUNAÐARBANKINN
Austurstræti
BÚNAÐARBANKINN
Hlemmi