Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1956, Qupperneq 38

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1956, Qupperneq 38
94 að haustfrost, er koma venjulega seint í ágúst eða um mán- aðamótin ágúst og september, eyðileggi kartöflugrasið, svo að þaðan af er lítils vaxtar að vænta. Gerir þó oft góða tíð, svo vikum skiptir, að frostnóttum þessum afstöðnum. Fleiri heldur en við hér á íslandi eiga við frostnætur á síðsumrum að stríða, er spilla kartöfluuppskeru, og hefur ýmissa ráða verið leitað til þess að verjast frostinu, en ekki er hægt að segja, að árangurinn sé mikill, eða að við munum geta haft hans mikil not. Næturfrost á sumrum verður nær ávallt í kyrru og heið- skíru veðri. Útgeislun frá jarðvegi er þá ör, stundum einnig uppgufun nokkur, sem bindur hita. Við þetta kólnar loftið, og með því að kalt loft er þyngra heldur en hlýtt, verður kalda loftið næst jörðinni. Þar sem landslag er hallandi eða hæðótt, leitar kalda loftið undan brekkunni og fylgir þá oft giljum og dalsskorum. Þar sem land verður flatt eða dregur í lægðir, sezt þetta kalda loft svo að, og þar er frosthættan mest. Hættan á næturfrosti á sumrin er lítil eða engin, ef skýjað er, jafnvel þótt í úrkomu og kuldatíð sé. Skýjahulan hindr- ar útgeislun og hitatap, svo að hitamunur dags og nætur verður lítill. Því hafa varnir gegn næturfrosti mjög miðazt við það að framleiða lag yfir ökrum þeim, er verja þarf, af nokkurs konar skýjum, er tafið gætu útgeislunina, og hefur einkum verið notað til þessa eldsneyti, er gefur mikinn reyk eða efni, er nota má til að framleiða þoku yfir gróðrinum. Mikið hefur verið gert af slíkum tilraunum víðs vegar og með nokkrum árangri. Má segja, að í flestum þessum til- raunum hafi tekizt að halda hitanum 1—1.5° C hærri, þar sem varið var, heldur en á óvörðu, og stundum hefur mun- urinn orðið meiri, en líka miklu minni og jafnvel enginn. Þess verður þó að gæta í þessu sambandi, að gagnsemi reyks eða þoku yfir kartöfluakri getur verið mikil, þótt þar verði nær því eins mikið frost og þar, sem óvarið er, því að reyk-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.