Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1956, Blaðsíða 78
134
Frá Búnaðarsambandi Skagafjarðar: Kristján Karlsson,
Hólum, Egill Bjarnason, ráðunautur.
Frá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar: Ármann Dalmanns-
son, Akureyri, Ingi Garðar Sigurðsson, ráðunautur, Bjarni
Arason, ráðunautur.
Frá Búnaðarsambandi Suður-Þingeyinga: Baldur Bald-
vinsson, Ófeigsstöðum.
Frá Búnaðarsambandi Norður-Þingeyinga: Björn Karls-
son, Hafrafellstungu, Grímur Jónsson, ráðunautur.
Þá voru mættir á fundinum Ámi G. Eylands, Stjórnar-
ráðsfulltrúi, og Árni Jónsson, tilraunastjóri.
Gengið var til dagskrár þannig:
1. Tilraunamál. — Árni Jónsson hafði framsögu. Ræddi
hann einkum um dreifðar tilraunir. Benti hann á þann
mikla mismun, sem er hér á jarðvegi, og þá einkum veðr-
áttu, á milli landshluta og héraða. Af þessum ólíku skilyrð-
um leiddi, að mikil þörf væri fyrir dreifðar tilraunir. Þá
ræddi hann um framkvæmd dreifðra tilrauna og lagði
áherzlu á nauðsyn þess, að sama tilraun stæði lengri tíma en
eitt ár, helzt þrjú ár, til þess að óvenjulegt veðurfar tmflaði
ekki um of niðurstöður hennar. Hann taldi mjög æskilegt,
að héraðsráðunautarnir hefðu eftirlit og umsjón með þess-
um tilraunum.
Þessir menn tóku til máls um tilraunamálið: Ármann Dal-
mannsson, Ólafur Jónsson, Grímur Jónsson, Sigfús Þor-
steinsson.
2. Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands. — Ólafur Jónsson
skýrði frá tillögu, sem samþykkt var á síðasta aðalfundi fé-
lagsins. Var hún þess efnis, að stjórn félagsins var falið að
leita eftir samvinnu við héraðsráðunautana á félagssvæðinu,
um að þeir tækju að sér útbreiðslu og innheimtu Ársritsins,
hver á sínu starfssvæði. Ræddi Ólafur tildrög þess að þessi
tillaga hafði komið fram og óskaði eftir að heyra undirtektir