Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1956, Blaðsíða 75
131
Á fundinn komu nokkrir gestir, er fundarstjóri bauð vel-
komna.
bórarinn Bjömsson, skólameistari, flutti hugleiðingar um
„Hvers vegna mér þykir vænt um íslenzkar sveitir og sveita-
líf“. Inn í ræðu sína fléttaði hann merkar hugleiðingar um
uppeldis- og skólamál. Taldi hann að menn gætu ekki öðl-
ast þroska nema í gegnum ábyrgð. íbúar strjálbýlis væru yf-
irleitt þroskameiri en íbúar þéttbýlis. Var erindið hið at-
hyglisverðasta og þakkað af fundarmönnum.
5. Þá var tekin fyrir fjárhagsáætlun félagsins fyrir árið
1956. Framsögumaður fjárhagsnefndar, Helgi Kristjánsson,
lagði fram fjárhagsáætlun nefndarinnar og tillögur. Til máls
tók Ólafur Jónsson. Tillögur nefndarinnar voru svohljóð-
andi og samþykktar samhljóða:
„Fundurinn ályktar að fela stjórn félagsins að vinna að því
hið bráðasta, að ráðunautar búnaðarsambandanna í Norð-
lendingafjórðungi taki að sér innheimtu á gjöldum fyrir
Ársrit Ræktunarfélagsins, hver á sínu sambandssvæði, gegn
innheimtulaunum, er stjórnin semur um. Jafnframt leggi
þeir áherzlu á að safna nýjum áskrifendum.
Fundurinn samþykkir að hækka verð Ársrits félagsins um
10 krónur til áskrifenda og 5 kr. til æfifélaga."
Svohljóðandi fjárhagsáætlun, fyrir árið 1956, var sam-
þykkt samhljóða:
T e k j u r :
1. Leiga af Gróðrarstöð o. fl.......... kr. 20.000.00
2. Vextir af sjóðum og innstæðum........ — 4.500.00
3. Styrkur frá Búnaðarfélagi íslands.. — 5.000.00
4. Styrkur frá búnaðarsamböndum ........ — 2.500.00
5. Tekjur af Ársriti Rf. N1............. — 26.000.00
Kr. 58.000.00
9*