Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1956, Blaðsíða 74
130
son, framkvæmdastj. félagsins. Varamaður var mættur Ár-
mann Dalmannsson.
2. Framkvæmdastjóri félagsins lagði fram reikninga fé-
lagsins og skýrði þá í ýtarlegri ræðu. Reikningarnir voru
endurskoðaðir.
Eign í árslok............... kr. 274.452.30
Halli á árinu............... — 597.97
Reikningarnir voru samþykktir.
3. Lögð fram fjárhagsáætlun fyrir árið 1957. — Skýrði
framkvæmdastjóri hana lið fýrir lið.
Á fundinum mættu Ketill Guðjónsson, Finnastöðum,
Búnaðarþingsfulltrúi, og Sigurður O. Björnsson, fulltrúi
Æfifélagadeildar Akureyrar.
í fjárhagsnefnd voru kosnir: Jón Sigurðsson, Helgi Krist-
jánsson, Brynjólfur Sveinsson, Sigurður O. Björnsson, Árni
Jónsson.
Gefið fundarhlé, svo að nefndin geti lokið störfum.
Að loknu matarhléi, kl. 13.30, hófst fundur aftur.
Mættu þá fulltrúar frá Búnaðarsambandi Suður-Þingey-
inga: Baldur Baldvinsson, Ófeigsstöðum, og Hermóður
Guðmundsson, Árnesi, og frá Æfifélagadeild Akureyrar:
Bjarni Arason, ráðunautur.
4 Á fundinum voru mættir Þórarinn Björnsson, skóla-
meistari, og Erik Eylands, verkfræðingur, til erindaflutn-
ings.
Erindi Eriks Eylands fjallaði um dvöl hans í Pakistan s.l.
H/2 ár, en þar hefur hann dvalið við leiðbeiningar í véla-
notkun á vegum Matvælastofnunar Sameinuðu þjóðanna —
F. A. O. — Var erindið glögg lýsing á landsháttum og lífs-
möguleikum ungs ríkis, 8 ára gamals, frumstæðs og bjart-
sýns, með vaxandi menningu. Var erindið þakkað af fundar-
mönnum.