Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1956, Blaðsíða 66

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1956, Blaðsíða 66
trá Aske, Syiþjóð: Fjögra ára furur. T. v. fosfór og kali, t. h. fosfór, kali og köfn.e. Áb. samsv. 270 kg þríf., 300 kg brs. kali og 122 kg kjarna á ha. rækta skóg, þar sem enginn tekur í munn sér, að erfitt sé að fá tré til að lifa og þrífast. Þetta gefur auga leið, hvernig vér eigum að hugsa um slíka hluti, hvernig oss ber að álykta og hvernig oss ber að standa að verki. Hér er ekki um það að spyrja, hvort það borgi sig í aukinni uppskeru, auknum skógarnytjum, að bera áburð að trjánum, sem vér plöntum og viljum allt til vinna að nái þrifum og þroska. Hér er blátt áfrarn um það að spyrja, hvað vér getum gert fyrir þessi tré, án þess að reikna í krónum og aurum, alveg eins og húsbóndinn og húsmóðirin láta sér ekki til hugar koma að telja hvað marg- ar klukkustundir þau vinna í garðinum sínum, eða hve mörgum stundum þau verja til þess að ala upp börnin sin. Ef það er svo, og það er áreiðanlega svo, að vér getum bætt og tryggt árangurinn af skógrækt kringum hús og bæi, og ræktun skjólbelta um garða og tún, með því að bera áburð að trjánum, því þá ekki að gera það. Því þá ekki að taka þetta upp sem ákveðið atriði í skógræktinni og leið- beina fólki í samræmi við það. Það heltast áreiðanlega ekki margir skógræktarmenn úr lestinni, þó að öllum verði gert það ljóst, að eitt meginatriði við alla plöntun trjáa og hirð- ingu þeirra, á unga aldri, er að bera áburð að trjánum, bera á trjáreitina og hinn uppvaxandi skjólskóg. Sá, sem vill rækta tré, og trúir því að hægt sé að rækta tré á íslandi, tel- ur ekki áburðinn eftir, hvorki verð hans né fyrirhöfnina við að bera á. Hitt er óútreiknanlegt, hvað aukinn og bættur ár- angur, hvernig sem hann fæst, hvort sem það er með notkun áburðar, eða með öðru, er til bóta má verða og hægt er að veita sér, getur eflt trúna á málstað skógræktarinnar og um leið trúna á líf og framtíð lands og þjóðar. Þó að um nokkur hundruð eða nokkur þúsund trjáplönt- ur sé að ræða, vex mönnum alls ekki í augum að bera á þær, ef þeir aðeins vita, skilja og síðar fá að reyna, að það bætir vöxt og þrif plantnanna og tryggir þannig árangur ræktun- arinnar. Nýtt trúboð. Þess gerist áreiðanlega þörf að taka upp nýja starfshætti, nýjan þátt trúboðs í skógræktinni. í stað þagnar, um áburð- arþörf trjáplantna, eða jafnvel viðvarana um, að það sé var- hugavert að bera áburð að trjám, það geti verið hættulegt, verður blátt áfram að taka upp þá háttu, að athuga og rann- saka eftir föngum hvað og hvemig á að bera á tré til vaxtar. Skógarverðir og forráðamenn skógræktar þurfa að geta gef-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.