Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1956, Side 77
2. fundur ráðunauta og fulltrúa
búnaðarsambandanna í Norðlendingafjórðungi.
Ár 1956, sunnudaginn 4. nóv., var, að tilhlutun Ræktun-
arfélags Norðurlands, haldinn fulltrúafundur búnaðarsam-
bandanna á Norðurlandi. — Fundurinn var haldinn í fund-
arsal Landsbankahússins á Akureyri, og hófst kl. 15.30.
Ólafur Jónsson setti fundinn í fjarveru formanns félags-
ins, Steindórs Steindórssonar. Bauð hann fundarmenn vel-
komna, og sérstaklega bauð hann velkominn Árna G. Ey-
lands, stjórnarráðsfulltrúa, sem mættur var á fundinum að
ósk stjórnar félagsins. Þá gat Ólafur þess, að hlutverk fund-
arins væri hið sama og fulltrúafundar, er haldinn var á Ak-
ureyri, að tilhlutun sama aðila, fyrir ári síðan. Það er að gefa
forustumönnum búnaðarsamtakanna og ráðunautum þeirra
tækifæri til þess að skýra hver öðrum frá störfum sínum og
viðfangsefnum og ræða þau málefni, sem væru efst á baugi
hjá búnaðarsamböndunum.
Fundarstjóri var kosinn Ármann Dalmannsson og fundar-
ritarar Aðalbjörn Benediktsson og Bjami Arason.
Á fundinum vom mættir:
Úr stjóm Ræktunarfélags Norðurlands: Ólafur Jónsson,
Jónas Kristjánsson.
Frá Búnaðarsambandi Vestur-Húnavatnssýslu: Steinbjörn
Jónsson, Syðri-Völlum, Aðalbjörn Benediktsson, ráðu-
nautur.
Frá Búnaðarsambandi Austur-Húnavatnssýslu: Hilmar
Frímannsson, Fremsta-Gili, Sigfús Þorsteinsson, ráðunautur.