Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1975, Page 96
VI. Rögnvaldur Erlingsson flutti eftirfarandi tillögu og ræddi efni
hennar.
„Aðalfundur B.S.A. 13. - 14. júní 1978, beinir því til mennta-
málaráðuneytisins, að reglur um hreindýraveiðar verði rýmkaðar
bæði varðandi tíma og tilfærslu veiðileyfa milli sveitafélaga til að
tryggja, að hægt sé að halda stofninum innan hóflegra marka”.
— Samþykkt samhljóða.
13. Álit jardræktarnefndar.
I. Sigurður Guttormsson flutti eftirfarandi tillögu og mælti fyrir
henni.
„Aðalfundur B.S.A. 1978 beinir því til stjórnar sambandsins, að
hún kanni, hvort ekki sé hægt að veita afslátt á ýtuvinnu hjá
bændum sem kaupa mikla vinnu”. — Tillagan samþykkt sam-
hljóða.
II. Sigurður flutti næst tillög'u um graskögglaverksmiðju. Um tillög-
una urðu nokkrar umræður. Jón Sig. felldi sig ekki við orðalag,
þar sem talað var um sambandssvæðið, aðeins tveir staðir kæmu til
greina. Páll Sigbjörnsson, Ingimar Jónsson, Sigurjón Friðriksson
og Benedikt Sigfússon ræddu tillöguna og lögðu allir áherslu á
verðjöfnun. Páll upplýsti um íblöndun í grasköggla og um fóður-
gildi þeirra.
Tiliögunni var síðan vísað aftur til nefndarinnar, sem tók hana
til endurskoðunar og lagði hana síðan fram svohljóðandi.
„Fundurinn telur:
a. Að vinna þurfi að því að efla og bæta graskögglaframleiðslu í
landinu, þannig að fóðurgildi kögglanna nái sem næst sama
fóðurgildi og innflutt kjarnfóður.
b. Flutningur grasköggla verði verðjafnaður.
c. Fundurinn leggur áherslu á, að næsta graskögglaverksmiðja
verði reist á búnaðarsambandssvæðinu og felur stjórninni að
fylgja málinu eftir til réttra yfirvalda.” — Samþykkt sam-
hljóða.
III. Tillaga um leiðbeiningar og rannsóknir fyrir austfirskan lancb
búnað.
100