Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.07.1992, Blaðsíða 13
VÍNLANDSFERÐ FLATEYJARBÓKAR
13
Hinn nafnlausi bréfritari í Nationaltidende virðist hafa fengið
að hluta upplýsingar sínar úr Dannebrogsgreininni, en \ itnar auk
þess í grein í Lundúnatímaritinu „Academy" nr. 1079 7. janúar
1893 eftir sagn- og málfræðinginn Frederick York Powell í Ox-
ford.181 þeirri grein eru taldar fram fjórar ástæður til að mótmæla
útláninu: (1) hægt er að rannsaka handritið í Kaupmannahöfn
(„handritið er mjög aðgengilegt, dr. Brown, hinn ljúfasti bóka-
vörður, greiðir götu manna að því á hverja lund“);19 (2) aðeins
sárafáir amerískir fræðimenn geta lesið handritið, og þeir, sem
geta það, telja ekki eftir sér að fara til Kaupmannahafnar til að
rannsaka það; (3) amerískur fræðimaður („þ\í miður dáinn,
annars hefði hann tekið undir þessi mótmæli", leyfir Powell sér að
segja)20 hefur þegar látið ljósprenta ágætlega þá staði í handritinu,
er hér skipta máli; og loks (4) er til vönduð útgáfa handritsins. —
Powell fullvissar lesendur sína um, að afstaða sín yrði hin sama,
þótt ekki ætti að sýna handritið í Ameríku, heldur t.a.m. í Moskva
eða London („það er enginn ’brezkur hroki’ í mótmælum
mínum“), og hann herðir á í lokin, þegar hann segir: „Eg skrifa
þetta í þeirri von, að fræðimenn, er meira mega sín, skori á dönsku
stjórnina að stöðva framgang þessa óskynsamlega máls og bjarga
einum af dýrgripum Evrópu úr þessum óæskilega og óþarfa
háska.“21
Grein Powells var líka lesin í Christianíu. I Aftenposten laugar-
daginn 21. janúar er vitnað til hennar í athugasemd frá ritstjórn-
inni undir fyrirsögninni „Flatóbogen", þar sem ekki er látið undir
höfuð leggjast að halda frarn hinu norska sjónarmiði. Með tilvísun
til hinnar miklu útgáfu Guðbrands Vigfússonar og Ungers segir
svo: „Við getum bætt því við, að tilmælum útgefandans [þ.e.
Ungers prófessorsj um lán á handritinu til Christianíu vegna
útgáfunnar svaraði þáverandi yfirbókavörður, Werlauff, á þann
veg, að hann harmaði, að hann yrði að neita um lánið, en rneðan
18 L'm Powell (1850-1904) s)áDictionary ofNationalBiography, Second supplemenl vol. III.
London 1912. Hann gaf út ásaml Guðbrandi Vigfússyni m.a. An Icelandic Prose Reader,
Oxford 1879/og Corpus Poeticum Boreale I—II, Oxford 1881.
19 Powell kann að hafa kynnzt greiðvikni Bruuns í ágúst 1884, er hann dvaldist í
Kaupmannahöfn ásamt Guðbrandi Vigfússyni við rannsókn íslenzkra handrita.
20 Powell á við Arthur Middleton Reeves, er dó 25. febrúar 1891, 34 ára að aldri. Sbr.
Dictionary of American Biography Vol. XV, London 1935, s. 470.
21 Ljóst er, að Bruun hefur ekki haft í höndum fyrr en mjög seint alla grein Powells.
Lppskrift hennar, sem hér er vitnað til, með hendi Bruuns (í KB/JS) er undirrituð og
dagsett 10.2.1893.