Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.07.1992, Blaðsíða 59
BRÉF TIL STEPHANS G. STEPHANSSONAR
59
Þetta er nú orðið fróðlegt bréf, vinur! En af því það var regn í
dag og ofurlítið á milli hjá mér, gríp ég tækifærið að rispa þér, svo
ég verði ekki eins og að myrkum skógi, þó ég viti að þú sért
óumbreytanlegur.
í hjáverkum hef ég mikið að skrifa, með því ég er skrifari
skólanefndar (enskrar), hef oft skjöl að uppfylla sem Commis-
sioner, staðfesta eiðstafi og ýmsum bréfaskriftum að sinna. Svo
það dregur úr að rispa kunningjum og skriftum sem fremur eiga
við mig. Samt myndast staka svona við og við.
Þú sérð í Hkr., að farið er að sletta til mín og nokkurra, sem
standa fyrir utan Hagyrðingafélagið, og eftir allan þann óþverra
sem útaf því hefir spunnist, þykir mér leiðinlegt að þurfa að fara út
í hnútukast við það, en kemst þó varla hjá því. Er félagið búið að
spilla fyrir sér með þessum þvættingi. Var nóg komið, þó ekki væri
farið að ráðast persónulega á okkur, sem fyrir utan stóðurn og
hvað suma okkar snertir heldur höfðum borið blak af því. Kalla
rnenn það nú Leirvellufélagið eða Oþokkafélagið, og gerir það
ykkur heiðursfélögum þess lítið gott að vera bendlaðir við það.
Verst er að surnir halda, að þið séuð í ráði með því sem kemur út
frá félaginu, sem ég skoða að sé ekki, þó þið hafið leyft því að hafa
nöfn ykkar.
Þú rispar mér, kæri vin, svona við tækifæri. Mér líður fremur
vel. Búinn að leggja inn beiðni um landið, svo ég geti farið að verða
ofurlítið lausari við og með út í frá. Til þessa hefi ég verið svo
bundinn með því ég hefi orðið að stunda landið, sem ég er nú allt
búinn að umgirða og þar að auki stykki fyrir beitiland. Gripi og
það sem ég hef undir höndum á ég skuldlaust, svo ég þykist nú
góður fyrir minn hatt hvað það snertir. Gætum við nú spjallað um
margt og hlegið að sumu, því ég er sá sami og ég var og öllu kátari
og hressari að mér finnst, með því ég var ekki kominn á eins fastan
fót með heimili þegar við kynntumst. Biður öll familían að heilsa
hjartanlega, og langar okkur oft til að vera komin í hópinn þarna
vestur undir fjöllunum.
Með alúðarkveðjum og bestu óskum.
Þinn einlægur vin
Jón Kernested.
Athugasemdir og skýringar: Magnús Bjarnason\ Jóhann Magnús Bjarnason (1866-1945).
Coimnissioner\ stjórnarnefndarmaður. Hagyrðingafélagið\ stofnað í Winnipeg árið 1903 af
Sigurði Júlíusi Jóhannessyni.
oo