Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.07.1992, Blaðsíða 101
LANDSBÓKASAFMÐ 1991
101
STARFSLIÐ Hálfri stöðu Regínu Eiríksdóttur var 1.
febrúar breytt í 3A stöðu, og á sama tíma
var Ingibjörg Gísladóttir sett í fulla stöðu. Fyrsta marz breyttust
stöður Bryndísar Isaksdóttur og Guðrúnar Eggertsdóttur þannig,
að Bryndís fór úr 75% stöðu í 62,5% stöðu og Guðrún á móti úr
50% stöðu í 62.5% stöðu. Á sarna tíma var % stöðu Sigrúnar Jónu
Marelsdóttur breytt úr % stöðu í 3A stöðu.
Þorsteinn Kári Bjarnason var ráðinn frá 8. apríl í 75% starf,
vann áfrarn 25% \ ið uppröðun rita, er léð höfðu verið á lestrarsal,
en 50% starf í handritadeild. Unnur Björk Lárusdóttir lét af Í4
starfi í maílok, og var Sigrún Pálsdóttir þá ráðin í það starf, en
jafnframt til afieysinga íjúní, júlí og ágúst og var í fullu starfi þann
tíma. Hún var síðan í 62.5% starfi til miðs desember, leysti af
Bryndísi ísaksdóttur, er var í launalausu leyfi 1.9.-15.12.
Dr. Haraldur Sigurðsson vann í ígripum að skrá sinni, Island í
skrifum erlendra manna —, er frá segir annars staðar í þessari
skýrslu.
Axel Kristinsson lét samkvæmt eigin ósk af Vi starfi í Landsbóka-
safni í septemberlok. í stað hans var ráðin Hrafnhildur Wilde B.A.
Helga Kristín Gunnarsdóttir gegndi fullu starfi frá 1. septem-
ber, var áður í 3A starfi.
Sigurþór Sigurðsson bókbindari fór 15. sept. úr fullu starfi í
hálft, og var Steinunn Sigurðardóttir skömmu síðar ráðin í það
hálfa starf, er losnaði við stöðubreytingu Sigurþórs.
Menntamálaráðuneytið og fjármálaráðuneytið veittu síðla sum-
ars fyrir tilmæli byggingarnefndar Þjóðarbókhlöðu heimild til, að
hvort bókhlöðusafnanna fengi 3 milljónir króna af bókhlöðufé til
að ráða viðbótarfólk, er gerði söfnunum kleift að snúa sér að
sérverkefnum, er tengdust sameiningu safnanna, en þar eru
tölvuvæðingarverkefnin brýnust. Það fólk, er ráðið var að Lands-
bókasafni fyrir umrætt fé, var frá 1.10. Hrafnhildur Wilde í Vi
starf (var í Vi starfi fyrir) og Arnþrúður Sigurðardóttir í 25% starf
(var í 25% starfi fyrir), Kolbrún Andrésdóttir í fullt starf, frá
10.10., ogSkúli Snæland, einnigí fullt starf, frá 15.10. Þá var Kári
Petersen ráðinn í tímavinnu í hálft starf.