Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.07.1992, Blaðsíða 43
BRÉF TIL STEPHANS G. STEPHANSSONAR
43
og hef ég hlustað á þá báða. Er þar svona eins og vant er að vera hjá
prestum.
Ekki hefir neitt orðið úr því hjá mér að rita um kvæðabálk þinn.
En eins og þú hefir séð í Jólablaði Hkr., sendi ég þér kveðju mína
þar. Og þó að ég hefði eigi tíma til að útbúa það kvæði eins vel og ég
hefði viljað, vildi ég þó heldur láta það fjúka. Hefir verið gerður
góður rómur að því kvæði og ekki laust við að sumir öfundi þig —
og mig líka! Ritdóm séra Bergmanns í Aldamótunum hefi ég lesið,
og þykir mér prestur hafa gætt sín furðu vel þar. Kristinn hafði
ekki viljað senda honum sín kvæði. En í gamla Sigurði kve vera
„fúss“ yfir því sem hann fékk. Ekki líklegast þótt hagyrðings-
nafnið nógu töfrandi.
Samkomum og þessháttar gugti hefi ég ekkert gefið mig við
síðan ég kom austur í sumar. En reynt að verja tómstundum
mínum til þess að rita og safna þeirn molurn, sem huganum hafa
borist, og eins og þú hefir séð í Kringlunni, losað mig við nokkuð af
„andlegri ómegð“!
Þegar ég kom auga á „Jólablaðið“, var farið að bera það út um
bæinn. En með því að það var ekki sem best úr garði gert, fór ég til
Baldwins og benti honum á það, svo blaðið var „umsteypt að nýju“
og kostaði sú endurbót um 25 dollara. Fer þetta að eins okkar á
milli. Hefir blaðið geðjast vel.
Margt fleira gæti ég masað við þig. En með því að þetta er nóg til
þess að „opna bréfaskriptir“ okkar á millum, ætla ég ekki framar
að orðlengja þennan rniða. Fyrirgefur þú, kæri vin, dráttinn hjá
mér að rispa þér línu, sem ekki hefir komið af öðru en því að ég
hefi haft í ýmsu að snúast og því trassað bréfaskriptir. Vona ég að
þú ritir mér við tækifæri og treystir því, að ég sé þér einlægur og sá
hinn sarni sem ég var þann litla tíma, sem við vorum í nágrenni
hver við annan. Það sem við rispum hver öðrum geturn við séð um
að ekki fari nema okkar á millum. Sé það eitth\ að sem ég gæti gert
þér til hagræðis, bið ég þig að hlífast ekki við að rispa mér um það.
Þakka ég þér fyrir góða viðkynning og bið hjartanlega að heilsa
konu þinni og börnurn og móður. Einnig biður konan mikið vel að
heilsa, Helga og litla systir hennar, sem heiti Flora. Eru þær báðar
vel þróttugar. Sigurlaugu systur þinni og Kristni manni hennar
biðjum við einnig innilega að heilsa, og þarf ég að skrifa þeirn við
tækifæri.
Með bestu óskum. Þinn
Jón Kérnested.