Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.07.1992, Page 35

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.07.1992, Page 35
SR. MATTHÍASAR JOCHUMSSONAR 1893 35 Allt fólk leit upp og starði á þennan stóra „Grím meðhjálpara", og margir gripu í vasann og réttu meiri eða minni skerf að Greenwood. Sumir brostu eða glottu og hreyfðu sig ekki, en fleiri voru hinir, einkum kvenfólk, sem gáfu sinn pening. Sömu dæluna lét meðhjálparinn ganga á allri lestinni, meðan vagnarnir entust, og varð okkur misjafnt vel til. í einum sat ung kona dáfríð; hún hafði verið í sörnu káetu og ég frá Englandi, kom frá tveimur börnunt sínum ungum og ætlaði til fundar við bónda sinn, sem beið hennar á eyjunni Hongkong í Kína; var sú leið mörg þúsund mílur, en þó var hún jafnan glöð og kát sem ekkert væri um að vera. Hún kallaði á mig og hvíslaði: „Ég skal gefa mest, en þér lofið mér að sjá barnið, þegar við komum til Winnipeg." Ég lofaði því. Að lokunt vorum við búnir að fá nál. 50 krónur, sem við færðum móðurinni. Peim skozka þökkuðum við með hæfilegri biblíugrein; kvaðst hann hafa ærin iðgjöld í samvizku sinni, sem hann líkti við lampa, er ekki ætti saman nema nafnið, hvernig hann lýsti og logaði í syndarökkri þessarar veraldar. Greenwood gaf ég stafprik mitt til menja og hét honum því, að áður en lyki skyldi ég ausa barnið vatni og skíra það Tomas Greenwood í höfuðið á honum, og það enti ég seinna. Það féll honurn vel í geð, og síðan kvöddumst við, því þá var kvöld, en um morguninn komum við til Winnipeg. Sáumst við ekki síðan. En skyldi einhver landa minna í Albertu, sem þennan mann þekkir, lesa þessar línur, á hinn sami að ber honum kæra kveðju mína, og eins nafna hans, óvitans nýfædda á eyðimörkinni." Sr. Matthías hafði skamma viðdvöl í Winnipeg, hitti þar Jón Ólafsson og nokkra fleiri landa, en hélt síðan með lest suður til Chicago, kom þangað 12. júlí. Matthías naut þar einkum fyrir- greiðslu íslenzks vinafólks, barna Þorvalds Stephensens fyrrum kaupmanns í Reykjavík, er fluttist til Chicago 1872. Dóttir Þor- valds, Hólmfríður, gift enskum lækni, Sharpe að nafni, fór með Matthíasi um sýninguna, og kveðst hann eiga „mest að þakka hennar tilsögn það lítið ég sá og nam af sýningunni, því hún og systkini hennar voru oftast með mér“. Það var fyrir hennar atbeina, að Matthías náði fundi aðalforstjóra sýningarinnar, og lýsir hann því í ferðapistli, er birtur var í Þjóðólfi 8. september 1893. Hann segir þar svo m.a.: „Ég kom hingað 12. þ.m. og dvel hér hálfan mánuð. Allt er hér miklu stórfelldara en ég bjóst við, fyrst vegalengd og allar stærðir, og svo sýningin — þetta risa- og töfraverk, engu líkara en „þúsund og ein nótt". Til þjóðfræðaþingsins kom ég of seint — náði í síðasta fundinn; menn flýttu þeim fundarhöldum, ég hygg sakir hitans (um 100°F.), sem gekk þá daga. Samt náði ég viðkynningu við nokkra góða menn af þeim flokki og fæ þeirra fundargerðir. Annars eru hér haldnir alls konar málfundir í sambandi við „World’s Fair“. Það helzta, sem ég hef afrekað — þótt sumum kunni að þykja „humbug“ — er það, að ég fyrir sköruglega hjálp frú Sharpe hér í borginni (Fríðu Stephensen) náði fundi general Davis, forstjóra heimssýningarinnar. Hann tók okkur ágætavel og lét heila þvögu af
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.