Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.07.1992, Qupperneq 66

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.07.1992, Qupperneq 66
66 SKRÁ UM HANDSKRIFUÐ BLÖÐ 31-32. Það er tekið upp í Bernskuminningum Kristins á Núpi (eftir hann sjálfan) sem Finnur Sigmundsson bjó til prentunar og birtust íMönnum ogminjum IX, R\ ík 1960, bls. 119-126 (sjá einnig bls. 79-84 um blaðaútgáfu Kristins), og einnig í riti Halldórs Kristjánssonar, Sigtryggur Guðlaugsson prófastur ogskólastjóri á Núpi. Aldarminning, Rvík 1964, bls. 23-29. Eftir þann sem þessa skrá tók saman er greinin „Mjölnir í Skáleyjum" í Fjölmóðarvíli til fagnaðar EinariG. Péturssynifimmtugum 25. júlí 1991, Rvík 1991,bls. 13-15. Þórarinn Grímsson Víkingur segir frá blaðaútgáfu í Kelduhverfí fyrir síðustu aldamót í riti sínu, Komið víða við. Endurminningar og sagnapœttir, Rvík [1954], bls. 53-55, og loks má geta skrifa um sveitarblöð, einkum efni þeirra og ekki síst tilgang, í Norðanfara, 16. árg„ 15.-16. tbl., 28. febr. 1875, bls. 30-31. Hér skal nú farið fáeinum orðurn um handskrifuð blöð og sjónum þá beint að sveitarblöðunum því að fyrir þeim fer lang- mest, auk þess sem flest sem um þau segir gildir um önnur handskrifuð blöð, svo sem blöð ungmennafélaga, skólablöð o.s.frv. Ekki er heldur ætíð einsýnt, þótt aldrei valdi vandræðum, hvar í flokk á að skipa blaði, t.d. stóðu ungmennafélög iðulega að útgáfu sveitarblaða, eftir að þau félög kornu til sögu. Sveitarblöðin voru langflest skrifuð í einu eintaki. Vitað er þó um eitt blað, Ófeig, blað Kaupfélags Þingeyinga (sbr. skrána hér á eftir), sem gefið var út í 25 eintökum þegar flest var,- en upphaf- lega var því ætlað að koma út í sjö eintökum. Blöðunum var ekki ætlað að fara vítt yfir. Þau gengu bæja á milli í sveitinni eftir ákveðinni boðleið, sem iðulega er rakin íblaðinu, voru lesin þar og stundum gjald greitt fyrir, og sektum beitt ef týndust, sem rann þá einatt til lestrarfélags sveitarinnar, þar sem því var t.d. ráðstafað til bókakaupa. Efni blaðanna var mest bundið sveitinni, þótt sumt gæti átt erindi til allra, svo sem þegar fjallað var um almenn framfaramál. Blöðin áttu bæði að fræða og skemmta, þar áttu rnenn að fá æfingu í að setja fram hugsanir sínar í rituðu máli, ekki síst unga fólkið. Skrifað er um fjölmargt sem sveitarfélagið varðar, eins og útgefendur ætluðust til, svo sem búnað, samgöngur, fræðslumál og félagsstarfsemi, gagnrýni er á það sem betur mætti fara o.s.frv. Einnig er efni af léttara taginu: skrýtlur, gátur, 2 Sveinn Skorri Höskuldsson, í handriti aö væntanlegri bók um Benedikt á Auðnum, kafla um kaupfélög og samvinnufélög. Um fjölda eintaka af Ófeigi sjá einnig Andrés Kristjánsson, Aldarsaga Kaupfélags Þingeyinga. 1882 - 20. febrúar - 1982, Húsavík 1982, bls. 278 og 281.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.