Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.07.1992, Page 99
LANDSBÓKASAFNIÐ 1991
99
Björg Ingólfsdóttir, Reykjavík, aflienti ýmis gögn, er látinn
eiginmaður hennar, Haraldur Gíslason, hafði eignazt eftir föður
sinn, Gísla Jónsson alþingismann.
Dr. Lúðvík Kristjánsson afhenti handrit að nýútkominni bók
sinni, Jón Sigurðsson og Geirungar, ennfremur ljósrit kafla verks
hans Sjávarhátta með hendi konu hans, Helgu Proppé.
Gyða Helgadóttir, Reykjavík, aflienti dagbækur (slitróttar)
langafa síns og langömmu, sr. Arnljóts Ólafssonar og Hólmfríðar
Þorsteinsdóttur.
Guðrún Guðmundsdóttir, ekkja dr. Björns Þorsteinssonar, af-
henti 5 kassa með ýmsum rituðum gögnum Björns og 2 bréfum til
hans.
Dr. Ólafur Halldórsson afhenti um hendur Ólafar Benedikts-
dóttur bókavarðar prófarkir nokkurra rita Halldórs Laxness,
Barns náttúrunnar, Dúfnaveizlunnar, Innansveitarkróníku, Sjö-
stafakversins og Upphafs mannúðarstefnu.
Þórunn Sigurðardóttir, er vann um hríð í Fiske-safninu í Iþöku,
sendi ljósrit fjölmargra bréfa til Willards Fiske og Halldórs Her-
mannssonar.
Sigurlaug Guðjónsdóttir aflienti ræðusafn manns síns, sr.
Skarphéðins Péturssonar í Bjarnanesi.
Guðlaugur Arason rithöfundur færði safninu handrit nokkurra
prentaðra verka sinna og þýðinga.
Tryggvi Sigurlaugsson, Kópavogi, aflienti um hendur dr. Þor-
leifs Jónssonar ýmis gögn afa þeirra og ömmu, Níelsar Jónssonar
og Guðrúnar Bjarnadóttur á Grænhól á Gjögri, meðal þeirra
dagbækur, 7 hefti 1893—96, sem Bjarni Sæmundsson, ættaður frá
Gautshamri, faðir fyrrnefndrar Guðrúnar, hefur ritað.
Kvæðabók Kristjáns Guðmundssonar (1899-1940). Dóttir
hands, Laufey Bára, búsett í Florida, sendi um hendur Erlu
Kristínar Bjarnadóttur, Reykjavík.
Guðrún Jónsdóttir frá Asparvík sendi æviágrip sitt, sem lagt
hefur verið með öðrum gögnum hennar.
Loks bárust safninu ýmis gögn Fylkingarinnar í 20 merktum
skjalakössum eða öskjum.
Þessir afltentu handrit, án þess að þeirra verði hér nánar getið:
Benedikt Guðlaugsson garðyrkjumaður, Reykjavík. - Björn
Halldórsson gullsmiður, Reykjatík. — Bragi Halldórsson
menntakskólakennari, Reykjavík. - Guðbjörg M. Benediktsdóttir
ritari, Reykjavík. - Guðrún Valdimarsdóttir, Reykjavík. - Haukur