Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.07.1992, Page 107

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.07.1992, Page 107
LANDSBÓKASAFNIÐ 1991 107 stofnun Háskólans í Tæknigarði. Reiknistofnun annast rekstur vélbúnaðar og tölvunets Háskólans, en Háskólabókasafn og Landsbókasafn sjá um rekstur bókasafnskerfisins að öðru leyti. ÞJÓÐARBÓKHLAÐA Fjárveiting til Þjóðarbókhlöðu í fjárlög- um fyrir árið 1991 reyndist 145 m. króna, þótt álagning nýja eignarskattsaukans svonefnda væri áætluð 335 m. króna. Sótt var 5. nóv. 1990 um heimild til að bjóða út 11. áfanga, en hún var ekki veitt fyrr en 15. janúar. Tilboð voru opnuð 19. febrúar og leyfi veitt 12. marz til að semja við verktak- ana Harald og Sigurð. Framkvæmdir við áfangann hófust því ekki fyrr en í apríl. Hann var einkum fólginn í vinnu við frágang í turnum hússins, í málun þess að innan og klæðningu veggja á 1., 3. og 4. hæð, svo að nokkuð sé nefnt. Aætlað var að ljúka 11. áfanga í nóvemberlok, en vegna bruna verkstæðis þess í Þorlákshöfn, er smíðaði viðarþil í fyrrnefndar hæðir, varð að leita annað eftir smíði þeirra, og dragast framkvæmdir því fyrirsjáanlega framyfir áramót. Við tilkomu nýrrar ríkisstjórnar hét Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra þegar stuðningi við bókhlöðumálið og beitti sér fyrir því, að bókhlöðunni yrði í frumvarpi fjárlaga fyrir árið 1992 ætlaður meginhluti eignarskattsaukans, eða 335 m. kr. Við þeirri upphæð var ekki hróflað í meðferð íjárlaga á Alþingi. Ekki reyndist unnt, þótt eftir væri leitað, að fá heimild til útboðs 12. áfanga á árinu 1991 og vinna þannig dýrmætan tíma. Útboðið varð að bíða nýs árs. Hinn 31. maí var haldinn fundur með starfsliði Landsbókasafns og Háskólabókasafns, þar sem fjallað var um Þjóðarbókhlöðu. Finnbogi Guðmundsson ræddi um fjármál og framkvæmdir, en Einar Sigurðsson um endurskoðaða rýmisskrá, er hönnuðir bók- hlöðunnar mundu nú snúa sér að ásamt samstarfsnefnd um Þjóðarbókhlöðu undir forystu Egils Skúla Ingibergssonar verk- fræðings, framkvæmdastjórabyggingarnefndar. En nefndin átti á árinu fjölmarga fundi með hönnuðum. Á fundinum 31. maí gerði Þórir Ragnarsson jafnframt grein fyrir hinu nýja tölvukerfí, Libertas. Landsbókasafni íslands, 1. desember 1991, Finnbogi Guðmundsson.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.