Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1993, Blaðsíða 29
FRÚ DISNEY LEITH OG ÍSLAND
29
henni lið við það verk og fleira, sem hún skrifaði.5 Árið 1865 giftist
Mary Gordon ofursta og stríðshetju af frægri hermannafjöl-
skyldu, Robert William Disney Leith frá Aberdeen-skíri í
Skotlandi. Hann hafði misst annan handlegginn í átökum við Síka
í Punjab 1849 og bar fleiri menjar um harðan hildarleik á
orrustuvelli. Robert William Disney Leith ofursti og síðar hers-
höfBingi var maður mikill á velli og vörpulegur, tæplega tveir
metrar á hæð, en kona hans var fíngerð og smávaxin, og var
aldursmunur þeirra 21 ár. Eiginmann sinn missti hún 1892, og
höfðu þau þá eignast sex börn, tvo syni og fjórar dætur. Fljótlega
eftir það lét hún gamlan draum rætast um að fá augum litið
sögueyjuna Island.
Það hefur verið nokkuð á huldu, hvað vakti áhuga Disney Leith
á Islandi. Vitað er, að í hópi félaga Swinburnes voru rithöfundar
eins og William Morris, sem þekktu til íslands og íslenskra
bókmennta, og kemur því fyrst upp í hugann, að hún hafí orðið
fyrir áhrifum af þeim. En dr. Helgi Pjeturss jarðfræðingur hafði
aðra skýringu. Hann var nákunnugur Disney Leith og var gestur
hennar í Lundúnum 1912.6 í blaðagrein skýrir hann frá því, að
skáldsaga eftir de la Motte Fouqué hafi fyrst leitt huga hennar að
íslandi, og var hún þá unglingur. Síðar hafí frú Disney Leith
komist í kynni við þýðingu Dasents á Njálu og orðið svo hrifín, að
hún hafí ákveðið að læra íslensku á eigin spýtur. Það hafi hún gert
með Lexicon poeticum sér við hönd.7 Mörgum árum síðar rifjuðust
upp þessi fyrstu kynni hennar af sögueyjunni. Hún var þá í
herbergi sínu á Hótel íslandi, nýkomin til landsins í fyrsta sinn.
Henni var litið út um gluggann og kom þá auga á nokkuð, sem hún
átti síst von á:
Mér brá, þegar ég sá nafnið „Þjóðólfur" á húsinu hinum
megin. Það minnti mig á gamla góða Fouqué og skáldsögu
hans „Þjóðólfur íslendingur". Ég held í raun og veru, að
þetta hafi verið fyrsta bókin, sem vakti hjá mér áhuga á þessu
dásamlega landi og bjó mig undir að geta metið að verðleik-
um hinar sönnu Islendingasögur.8
5 Disney Leith skrifaði um Swinburne bókina The Boyhood of A. C. Swinburne. Sbr. Hare,
Humphrey: Swinbume. A biographical Approach. London 1949, bls. 5, 91-92.
6 Ferðabók dr. Helga Pjeturss. Reykjavík 1959, bls. 313-315.
7 „Mrs. Disney Leith." Fjallkonan 26. apríl 1901, bls. 2; Um Njáluþýðingu Dasents sjá
Andrew Wawn: „The Assistance of Icelanders to George Webbe Dasent.“ Landsbókasafn
íslands. Árbók 1989, bls. 73-92.
8 Leith, Disney: Three Visits to Iceland. London 1897, bls. 23.