Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1993, Blaðsíða 81

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1993, Blaðsíða 81
BRÉF TIL BJARNA ÞORSTEINSSONAR 81 fyrrum kaupmaður (borgari) G. Pétursson, mágur séra H. Thor- dersens, í Innri Njarðvík. Mín störf hversdagslega eru hin sömu. Mikið vel líkar mér við Árna, og ekki sýnist mér vafi á því, að hann hafi góðar gáfur. Það var vel þér minntuð mig á Odysseuna, eg var búinn að gleyma því; eg skal hafa til 12 seinustu bækurnar, þá þér komið í sumar; vænst væri, ef fyrra bindið þá gæti verið til eftirsjónar fyrir bókbindarann. Annars er bráðum von á annarri útgáfu af henni. Stiftið skrifaði mér til um það fyrir jólin, að það hefði í hyggju að gefa hana út í Rvíkurprentsmiðju, svo sem einhverja skemmtunarbók fyrir almenning, sisona til húslestra. Eg gat ekki, þá svo var komið, undan því mælst að endurskoða útlegginguna og yfirfór 4 fyrstu bækurnar í upplestrartímanum um jólin, varð að hreinskrifa þær sjálfur, því pappírinn á þeim bókum er slæmur og öll útgáfan annars svo þéttprentuð að ekki verður á skrifað. Eg ætlaði líka að gera réttritunina nokkuð samkvæmari sjálfri sér en áður var. Þessi nýja útgáfa á að vera með nýju latínuletri, sem koma á inn í vor. Ekki er þess að vænta, að eg geri þá bót í þessu, sem í augu geti fallið, og er eins víst eg skemmi í stað þess að bæta. Því ætlun mín er, að þetta verk þyki nú lítt nýtt; því það er eins og veröldin skeiði áfram eins og hestur (eg meina ekki rösulan hest). Þá er um fulltrúavalið og rektorsembættið: í þessu fór eg eftir því, sem minn genius sagði mér (þér munið hann jánkar aldrei), og mér þykir vænt um, að yður sýnist, eins og mér var sagt, um hið fyrra. En hvað segið þér um það: núna um daginn gekk eg inn í Bindindisfélagið, og dr. Scheving, sem eg má segja að ekki hefir bergt á áfengum drykk í 16 ár, gerði það líka. Það stendur svo á því, eins og þér vitið af Fjölnir, að 2 skólalærisveinar gengu inn í það í fyrra; síðan bættust fleiri við, en þó voru æði margir eftir. Til þess nú að koma á þá rekspölnum gerðum við Scheving þetta, og varð góður árangur að því. Held eg þetta nauðsynlegt fyrir skólalærisveina, að þeir haldi sig öldungis frá áfengum drykkjum, einkum þá þeir eiga að fara til Rvíkur. Eg hafði ekki smakkað þá fyrr en eg kom til Khafnar, 24 ára gamall, og enn man eg hvaða kvöl eg átti með í fyrstunni að fá púns ofan í mig, þegar riddari B. Sivertsen kenndi mér að drekka það. Síðan þá tíð hefi eg aldrei haldið mér frá þess konar drykkjum, án þess eg geti sagt að eg hafi haft neina sérlega löngun til þeirra, en þó oft í kunningja félagi neytt þeirra meir en frjálsleg lyst heimti, sem helst var um tíma á Bstöðum, meðan B. Thorarensen sál. var á Gufunesi. Hvað sjálfan mig snertir, er það þá engin dyggð að gera
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.