Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1993, Qupperneq 98

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1993, Qupperneq 98
98 LANDSBÓKASAFNIÐ 1992 safnsfræða í þriðja heiminum. Háskólabókasafnið í Uppsölum hefur umsjón með síðasta flokknum í nánu samstarfi við söfn á Norðurlöndum. Framlag Landsbókasafns til þessa viðfangsefnis er miðað við höfðatölu, þ.e. að styrkurinn sé svipaður á mann miðað við framlög hinna Norðurlandaþjóðanna. En auk þessa styrkir Landsbókasafn í einu lagi hin verkefnin, sem talin voru. LEIGUHÚSNÆÐI Enn bættist við leiguhúsnæði utan safns, þegar 20 m2 herbergi á 3. hæð Alþýðuhússins var tekið á leigu frá 1. október. Landsbókasafn var fyrir með leiguhúsnæði í Alþýðuhúsinu, 150 m2 á 2. hæð og 170 m2 á 5. hæð. Mikið hagræði er að því, hve nálægt húsið er Safnahúsinu. ÞJÓÐARBÓKHLAÐA Eins og fram kom í síðustu Árbók, varð að bíða fram yfir áramót heimildar til að bjóða út 12. áfanga. Jafnskjótt og sú heimild fékkst snemma í janúar, var áfanginn boðinn út með tilboðsfresti til 24. marz, þar sem um mikinn og allflókinn áfanga, svokallaðan loftaþátt, væri að ræða. Tilboð reyndust, þegar á hólminn kom, mun lægri en kostnaðaráætlun hönnuða. Hvort tveggja var, að þröngt var á vinnumarkaði og efnissalar höfðu lækkað verð til mikilla muna frá því er hönnuðir unnu að áætlun sinni og könnuðu verð hjá þeim. Tilboð það, er tekið var, reyndist vera frá Hagtaki og hljóðaði upp á 218 milljónir, en áætlun hönnuða var 321 milljón. I greinargerð byggingarnefndar í maí um fjárþörf á árinu umfram 12. áfanga, svo sem til reksturs byggingar, hönnunar og undirbúnings flutninga, kom fram, að eftir urðu 39 m. til annarra verka. Tillaga var gerð um, hver þau verk væru, og féllst ráðuneyt- ið síðar á árinu á þá tillögu. Heildarfjárveiting til Þjóðarbókhlöðu á árinu var 335 m.kr. Vegna þess hve seint framkvæmdir hófust við 12. áfanga, var sýnt, að áfanganum yrði ekki lokið fyrr en undir vor á árinu 1993 og hluti fjárveitingar ársins 1992 yrði því fluttur á milli ára. Samstarfsnefnd um Þjóðarbókhlöðu undir formennsku Egils Skúla Ingibergssonar verkfræðings hélt reglulega fundi með hönnuðum og Einari Sigurðssyni, er leystur var frá háskólabóka- varðarstarfí sínu 1. des. 1991 allt til nóvemberloka 1992 til þess að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.