Frjáls verslun - 01.04.1959, Side 18
öðrum frönskum ríkisstjórnum, verðbólgan geis-
aði og fjórði hluti ríkisútgjaldanna fóru til hers-
ins, en þegar til stóð að skera hernaðarútgjöldin
niður, sagði De Gaulle af sér. Þær vonir manna,
að reynt verði að fóta sig á vettvangi efnahags-
málanna í Frakklandi eftir valdatökuDe Gaulles,
eru því ekki tengdar neinni oftrú á fjármálaviti
forsetans, heldur eiga þær rætur sínar að rekja
til almenns, vaxandi trausts á stjórnarfarinu
og álits á hæfni þeirra manna, sem forsetinn
hefur valið til þess að hafa sér til ráðuneytis um
stjórn efnahags- og fjármála, og má þar fyrstan
telja fjármálaráðherrann, Antoine Pinay.
Til þess að ákveðnar efnahagslegar aðgerðir
takist, er nauðsynlegt, að fyrir hendi sé hið rétta
pólitíska andrúmsloft. Pierre Mendes-France,
sem sérstaklega hefur undirstrikað þýðingu sál-
fræðilegra atriða í sambandi við búskaparstarf-
semina, hefur orðað þetta þannig: „Það er vissu-
lega rétt, að mannlegar framfarir byggjast ekki
eingöngu á skynsamlegum vinnubrögðum, heldur
geta þær einnig verið komnar undir þeirri hrifn-
ingu, sem tekst að vekja fyrir framförunum.“ —
Þannig var þetta í Frakklandi; valdataka De
Gaulles skapaði þann siðferðilega grundvöll, sem
var nauðsynleg undirstaða aðgerðanna í efna-
hagsmálunum.
Pinay fór í fyrstu hægt í sakirnar. Hann
hefur sjálfur sagt i ræðu, að í júní hefði ekki
verið fært að grípa umsvifalaust til róttækra
aðgerða, og því hefði hann notað fyrstu sex
mánuði stjórnarsetu sinnar til undirbúnings-
starfa. A þeim tíma hefði stjórninni tekizt að
róa verðlagið. Frá maí til nóvember hefði smá-
söluverð aðeins lækkað um 1,5% og heildsölu-
verð um 3,4%. Aukið traust þjóðarinnar til
stjórnarinnar hefði getið af sér vaxandi sparnað,
og meira jafnvægi komizt á utanríkisviðskiptin,
t. d. hefði verzlunarjöfnuðurinn í október og
nóvember verið sá hagstæðasti um þriggja ára
skeið. „Þetta var árangur af þolinmóðu starfi
okkar án meiri háttar aðgerða,“ segir Pinay. En
til undirbúnings hinum veigameiri ráðstöfunum
setti Pinay 30. september á laggirnar nefnd sér-
fræðinga undir forustu Jaques Rueff, viður-
kennds sérfræðings í efnahagsmálum, sem m. a.
hafði verið ráðgjafi Poincarés við lausn efna-
hagsvandamálanna árið 1920 og hlaupið undir
bagga með Laval í erfiðleikunum árið 1930.
Þeir Rueff og félagar hans sömdu tillögur og
„Hei, Jói, vissir þú að
Sókrates, Galileo,
Gandhi og Churchill
haia allir verið í
íangelsi?"
skiluðu álitsgerð. De Gaulle hitti Ludwig Er-
liard efnahagsmálaráðherra Þýzkalands í Bad
Kreuznach og ræddi við hann frönsk vandamál
og kynnti sér þýzk úrræði. Franz Etzel fjár-
málaráðherra Þýzkalands og einkavinur Erliards
flaug til Parísar og færði Pinay tilboð um efna-
hagslegan stuðning — 252 milljónir DM, — við
ráðgerðar fjármálaframkvæmdir Frakka. Hver
atburðurinn rak annan, enda sandurinn senn að
renna úr tímaglasinu, því að 1. janúar 1959 átti
að hefjast innbyrðis tollalækkun landanna sex,
sem standa að „sameiginlega markaðnum“ og
á hverri stundu mátti vænta þess, að Bret-
ar og Þjóðverjar lýstu yfir takmörkuðu yfir-
færslufrelsi á myntum sínum, hvorttveggja
aðgerðir, sem gátu liaft ófyrirsjáanlegar afleið-
ingar fyrir fjármál Frakklands að öðrum kring-
umstæðum óbreyttum, jafnvel leitt til algers
efnahagslegs hruns, ef ekkert yrði að gert.
A tveim löngum ráðuneytisfundum voru til-
lögur efnahagsmálanefndar Rueffs ræddar og
að lokum samþykktar lítið breyttar, þó varð
niðurskurður á fjárlögum minni en nefndin ráð-
lagði og sömuleiðs var opinber fjárfesting ekki
minnkuð í samræmi við tillögur nefndarinnar.
Þriðja dag jóla fluttu þeir De Gaulle og Antoine
Pinay svo þjóðinni boðskap sinn í útvarpi.
De Gaulle boðaði þjóðinni nýja stefnu í efna-
hagsmálum, sem einkennast myndi af „vérité
et sévérité,“ — sannleika og strangleika. —
Pinay sagði meðal annars, að Frakkar hefðu
lifað um efni fram, atvinnuvegunum hefði verið
fleytt áfram með „innlendri verðbólgu og erlendu
betli“. Ef ekki yrði snúið við blaði, væri ekkert
framundan nema verðbólga og vergangur. Hann
benti mönnum á, „að þeir, sem neyta hlutanna,
eiga að greiða þá“ og „að framleiðslu og þjón-
18
FHJALS veuzlun