Frjáls verslun - 01.04.1959, Blaðsíða 25
Með tilkomu hins nýja m.s. „Selfoss“ hefur
skipastólnum bætzt góður liðsauki, þar sem hér
er traust og afkastamikið skip. M.s. „Selfoss“
er smíðaður hjá Aálborg Vœrft í Alaborg, og var
afhentur Eimskipafélagi Tslands í byrjun nóv-
ember á fvrra ári. Skipið er smiðað samkvæmt
ströngustu smíðareglum Lloyd’s Register of
Shipping, og útbúnaður allur er samkvæmt
ströngustu gildandi reglum um siglingar á öllum
höfum. Þar sem skipið er byggt sem opið hlífðar-
þilfarsskip, er ])að lítið í brúttósmálestum (2340
smálestir), en duglegt í burði (3460 burðarsmá-
lestir). Einnig hefur skipið fullan styrkleika til
þess að lestast dýpra sem lokað hlífðar-þilfars-
skip, og þá verður það enn burðarmeira (4065
burðarsmálestir). Tvær af fjórum lestum skips-
ins eru búnar sem frystilestar, eða um 100 þús.
rúmfet, en þar með getur „Selfoss“ flutt allt að
2000 smálestir af frosnum fiski í einu. Til þess
að drýgja afköstin hafa lúgur og vindur verið
„Tröliafoss“, þ. e. a. s. ein lest með skutþilfari
(poop-deek) l'yrir aftan yfirbyggingu, en þrjár
fyrir framan. Iíelztu stærðarmál skipsins eru
sem hér segir:
Mesta lengd
Lengd milli lóðlína
Breidd
Djúprista (opinn)
Djúprista (lokaður)
334T0” (102.05 m)
302’2” ( 92.00 -)
50’4” ( 15.35 -)
20’6” ( 6.25 -)
22’4” ( 6.80 -)
Aðalvél skipsins er smíðuð hjá Burmeister
& Wain í Kaupmannahöfn, og er hún rúm 4000
hestöfl. Með yfirþrýstingi á skolloftinu til vélar-
innar er hægt að fá meira afl úr henni en ann-
ars, og er hér um að ræða 15% sparnað i þunga
og 20% sparnað í rúmi, miðað við eldri gerð
véla. Hjálparvélar framleiða 380 volta riðstraum,
en það er algjör nýlunda í íslenzkum skipum
en eykur burð og rúm skipsins til vöruflutninga.
E.s. Selfoss siglir úr Reykjavíkurhöfn í síðasta sinn. Hann var seldur til Belgíu til niðurrifs
valdar sem hraðvirkastar og jafnframt er skipið
búið tveim krönum, sem hvor um sig getur unn-
ið við 2. eða 3. lest (frystilestarnar). Frystilest-
arnar eru einangraðar með glerull, en innra
byrðið er aluminiumplötur, en það er einangr-
andi (geislun) og mjög auðvelt að halda hreinu
án málningar. Reynslan hefur sýnt að frystingin
gengur mjög vel, og hægt er að kæla sumar lest-
ar skipsins allt niður í 30° C ef með þyrfti.
M.s. „Selfoss“ hefur líkt byggingarlag og m.s.
Hraði skipsins eru 15 sjómílur á klst. fullhlaðið.
Aður en „Selfoss“ var afhentur í Álaborg varð
hann samningi samkvæmt að þola ýmsar „raun-
ir“, sem sýndu, að skipið var starfi sínu vaxið.
Hraði þess og stjórntök voru reynd, sönmleiðis
legufærin, radar, djúplóð, loftskeytastöð, kæli-
vélar og lestar, lyftiásar, vindur, hjálparvélar,
raflagnir o. s. frv.
Sem endranær biðu verkefnin, og skipið lestaði
þegar í Álaborg 50 smálestir af sementi, en hélt
FRJÁLS VERZLUN
25