Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1962, Blaðsíða 27

Frjáls verslun - 01.12.1962, Blaðsíða 27
 m 115 id |JH C: 1|| ■ Bókaverz'.un Sigfúsar Eymundssonar fyrstu órin ó horni Lækiargötu og Austurstrætis NÍRÆÐ BÓKÁVERZLUN í REYKJAVÍK Elzta bókaverzlun landsins og jafnframt eitt elzta fyrirtæki höfuðborgarinnar varð !)() ára 2!). nóv. sl. I'ctta er bókaverzlun Sigfúsar Eyntundssonar. Verzl- unin hefur frá öndverðu verið til húsa í hjarta höf- uðstaðarins, gegnt mikilvægu hlutverki i íslenzku menningar- og menntalífi — og sjálfsagt eru þeir Reykvíkingar fáir, sem ekki hafa átt meiri eða minni viðskipti við þetta rótgróna og virta fyrir- tæki. Stofnandi verzlunarinnar var Sigfús Eymundsson, fjölhæfur og hugkvæmur framkvæmdamaður, sem lagði gjörva hönd á margt. Hann fæddist árið 1837, og sigldi tvítugur til Hafnar og lauk þar bókbands- námi tveimur árum síðar. Starfaði hann þar í iðn sinni næstu tvö árin, en lærði jafnframt ljósmynd- un — og stundaði hvort tveggja fyrst í stað, eftir að hann kom heim árið 186ö. Síðar sneri hann sér að verzlun og rak víðtæk viðskipti, var m. a. verzlunarstjóri fyrir norsk-ís- lenzku verzluninni, sem m. a. kom á föstum gufu- skipaferðum milli Islands og Noregs á sínum tíma. Hann gerðist og umboðsmaður skipafélaganna, sem fluttu Vesturheimsfarana héðan. Þessir mannflutn- ingar voru síður en svo vinsælir með þjóðinni, en til marks um það, hve mikillar virðingar og trausts Sigfús Eymundsson naut, má geta þess, að ekki hlaut hann óvinsældir fyrir. Það var fátæktin, sem rak íslendingana vestur um haf, þeir voru hjálpar- þurfi. Og þá var betra, að jafngrandvar niaður og FRJÁLS VEHZLUN 27

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.